08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1609 í B-deild Alþingistíðinda. (1158)
40. mál, Útflutningsráð Íslands
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Þrátt fyrir síðustu orð forseta vildi ég leyfa mér að taka undir orð hv. 16. þm. Reykv. hér rétt áðan. Þar var hvert orðið öðru sannara.
En svo vík ég að því máli sem fyrir liggur. Ég vildi minna hv. þingdeild á að það sem við erum hér að ræða er Útflutningsráð Íslands eða færsla á forræði þess frá viðskrn. til utanrrn., en ekki útflutningsleyfaveitingar. Það mál hefur þegar fengið afgreiðslu og ég fullvissa hv. 5. þm. Reykv. að hvergi er í þessu frv. vikið að því að draga úr hvatningu til að menn flytji héðan varning eða þjónustu úr landi til þess að afla þjóðarbúinu tekna. Þvert á móti er það tilgangur Útflutningsráðsins að hvetja menn til dáða á þeim vettvangi. Og það er einmitt í mjög góðu samræmi við andann í ræðu hv. 5. þm. Reykv. hér rétt áðan. Það sem hér er um að tefla er einföld formleg till. sem ég flyt og hún er sú að forræði Útflutningsráðsins verði fært til utanrrn. í þeim tilgangi að þar verði á einni hendi öll útflutningsörvandi starfsemi til þess að nýta enn betur þá góðu starfskrafta sem utanríkisþjónustan býr yfir. Þetta er tilgangur frumvarpsins.
Ég vildi líka vekja athygli hv. þingdeildar á því að viðskrn. tilnefnir eftir sem áður mann í stjórn Útflutningsráðs Íslands. Þar með er tryggt að hin innlendu viðskipti, sem auðvitað geta oft og einatt verið nátengd erlendum viðskiptum, og breytast sem betur fer oft í slík viðskipti, eru þarna á sínum stað.
Að lokum mælist ég svo til þess að þetta mál fái nú skjóta afgreiðslu því það er eitt af þeim sem er nauðsynlegt að ljúka sem fyrst.