08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1651 í B-deild Alþingistíðinda. (1176)

179. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Það er lítil tillaga sem e.t.v. væri betur viðeigandi að bera fram við afgreiðslu fjárlaga, en samt vil ég nefna hana nú því að ég tel að hún ætti í raun og veru að koma frá hv. forseta við afgreiðslu fjárlaga og ég vil stinga hugmyndinni að honum nú og nefna hana við þingdeildina. Ég tel að í þeim endurbótum sem gerðar eru á Alþingishúsinu og ýmiss konar vélakosti þess sé alveg nauðsynlegt að efna til lítils tölvuskjás til að hafa á borði hæstv. forseta þannig að hann þurfi ekki að kalla fyrst í mann og biðja mann að fara fram og telja saman hversu margir eru í húsinu úr þessum og þessum hópum þm. vegna atkvæðagreiðslna. Ég held að þetta væri augljóst hagræði og mundi satt að segja stuðla að því að svipur á störfum hér batnaði dálítið.