09.12.1987
Efri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1654 í B-deild Alþingistíðinda. (1190)
Fjarvera ráðherra
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Ég tek undir ábendingar hv. þm. sem hér hafa bent á þann hátt sem ráðherrar eru að skapa í þingstörfum, þ.e. að deildin sitji og bíði eftir ráðherrum eða ráðherra sem jafnvel er í húsinu. Hvaða störf eru það sem hæstv. ráðherra telur brýnni en þau að sinna deildarstörfum? Er hann kannski að spjalla við fréttamenn eða sinna þeirri þjónustu? Það virðist þó sem sá hæstv. raðherra hafi fengið alveg sæmilegt rúm í fréttamiðlum hingað til þannig að það sé óþarfi fyrir hann að bæta þar við ef svo skyldi vera.
Ég held að það sé ástæða til að benda einnig á það, fyrst deildin hefur tíma til að spjalla um þingsköp meðan beðið er eftir ráðherra, að það er einnig alveg sérstakt hvernig mál eru lögð fyrir deild og fyrir þingið. Sum mál sem þarf að afgreiða fyrir þinghlé eru ekki komin til umfjöllunar á hv. Alþingi enn þó að nú sé rétt um vika eftir af þingstarfinu.
Ég veit ekki hvort er rétt að aðstoða forseta við að halda starfi deildarinnar í gangi með því að ræða um þingsköp meðan við bíðum eftir ráðherra. Það er kannski eðlilegast að deildin sitji og bíði og horfi í gaupnir sér á meðan ráðherra er að sinna einhverjum öðrum störfum í húsinu eins og upplýst var af forseta að mundi vera.