09.12.1987
Efri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1654 í B-deild Alþingistíðinda. (1191)

Fjarvera ráðherra

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Það liggur fyrir á þessum fundi frv. frá þm. Borgarafl., ef ég man rétt, sem mun vera 4. mál á dagskrá þessa fundar. Það er ljóst að 1. flm. þess frv., hv. þm. Júlíus Sólnes, er staddur á fundinum og er tilbúinn að mæla fyrir málinu. Í stað þess að taka það mál fyrir, eins og eðlilegt hefði verið, hefur hæstv. forseti kosið að bíða eftir því að hæstv. viðskrh. birtist til að gegna skyldustörfum sínum við þessa hv. deild. — Ég held að það sé óhjákvæmilegt, úr því að hæstv. viðskrh. lætur svo lítið að koma hingað í deildina, að láta þess getið að það er illa séð af flestum deildarmönnum hygg ég, hv. þm. í þessari deild, að hér sé haldið uppi fundum sem eingöngu fara í bið eftir þessum hæstv. ráðherrum þar sem hátignirnar úr Alþfl. virðast eiga erfiðara með að læra á klukku en aðrir hæstv. ráðherrar.

Hér er lögð á það áhersla af ríkisstjórninni að það verði unnið mjög geyst í málum næstu daga, dagfari, náttfari, það verði unnið í nefndum daginn út og daginn inn, afgreidd mál á hraða sem er í rauninni engan veginn sæmandi þessari virðulegu stofnun. Þess vegna hefði maður haldið að það væri lágmarksósk af hálfu þm. að þeir hæstv. ráðherrar sem eru um leið að reka á eftir þinginu og störfum þess sjái til þess að menn þurfi ekki að hanga hér verklausir nagandi blýantana langtímum saman eftir því að ráðherrunum þóknist að láta sjá sig í þessari hv. deild eða hvor deildin sem það er, enda sé ég reyndar ekki, herra forseti, sem er reyndar annað mál og ég kem að á eftir undir umræðum um dagskrárliðinn, ef ráðherrann kemst einhvern tíma í stólinn fyrir umræðum um þingsköp sem geta eðlilega orðið langar, að það sé nein ástæða til að flýta þessu máli hæstv. ríkisstjórnar umfram það mál t.d. sem er á dagskránni og hv. þm. Borgarafl. flytja. Ég sé engin rök fyrir því. Þannig er alla vega mjög undarlega að verki staðið af þessum hæstv. ráðherrum. Það verður séð til þess að þeir verði minntir á það í þessari deild, ef þörf krefur, að það er nauðsynlegt fyrir ráðherra bæði að kunna á klukku og almanak.