09.12.1987
Efri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1655 í B-deild Alþingistíðinda. (1193)
Fjarvera ráðherra
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Ég held að það sé ástæða til að benda á að þær upplýsingar sem hæstv. ráðherra gefur núna voru ekki gefnar úr forsetastól. Við hv. deildarmenn biðum í þeirri vissu að hæstv. ráðherra væri að einhverjum öðrum störfum í þinginu en að sinna störfum í hv. Nd. Ég kvarta undan því, ef ég má orða það þannig, að þm. í hv. deild voru ekki gefnar upplýsingar um að ráðherra væri að störfum í Nd.