09.12.1987
Efri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1681 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)
54. mál, útflutningsleyfi
Júlíus Sólnes:
Herra forseti. Hér í hv. deild hafa verið mjög fróðlegar og skemmtilegar umræður um það málefni sem mér er hugleiknast í sambandi við þessa lagasmíð, þetta frv. sem hér er fyrir deildinni um að flytja utanríkisviðskiptin úr höndum viðskrh. yfir til hæstv. utanrrh., en það er um það hvort eigi að binda utanríkisverslunina áfram á þann klafa sem hún hefur verið fram til þessa eða hvort utanríkisverslunin eigi að vera frjáls.
Ég tel að þetta eigi ekkert skylt við frjálshyggjuna í Sjálfstfl. eða hvort jafnaðarmannaflokkurinn er kominn allra flokka lengst til hægri af íslenskum stjórnmálaflokkum eins og sumir telja og hafa reyndar góð og gild rök fyrir miðað við atburði síðustu vikna. Ég held að þetta sé eins og við höfum lagt mikla áherslu á, borgaraflokksmenn, skilja menn nútímann? Hafa menn skynjað hvílík gífurleg bylting hefur orðið á allri tækniþróun og þekkingu manna? Hér tala hv. þm. eins og þeir séu að tala um utanríkisverslun og viðskipti Íslendinga fyrir 50 árum.
Ég er alveg sammála því, að á sínum tíma, þegar Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna var sett á laggirnar, og það ber að þakka kannski fyrst og fremst einum okkar mesta stjórnmálaskörungi, Ólafi heitnum Thors, var um þjóðþrifamál að ræða. Það er vissulega rétt að áður en sölusamtökin voru stofnuð hafði málum verið hagað með þeim hætti að hér voru fyrirtæki að bjóða vörurnar niður hvert fyrir öðru og það náðist ekki sá árangur sem menn hefðu viljað. En hvernig var ástandið þá? Þjóðin var nánast að skríða út úr moldarkofunum. Menn kunnu engin tungumál og fæstir höfðu nokkurn tíma komið til útlanda. Það er því verið að bera ástandið í dag saman við ástandið eins og það var fyrir 50–60 árum.
Í kosningabaráttunni í vor heimsótti ég m.a. fiskverkanda og útgerðarmann í Njarðvíkum. Hann sat þar fyrir framan Macintosh-tölvu með tengibúnaði við símakerfið og var í beinu sambandi við fiskkaupendur í New York, Bremerhaven og London. Aðeins þetta litla dæmi til samanburðar við ástandið eins og það var fyrir 60 árum segir í raun og veru alla söguna. Þessi fiskverkandi, sem ég var að taka hér sem dæmi, sem situr fyrir framan sína tölvu og hefur beint tölvusamband við væntanlega fiskkaupendur erlendis, þarf ekki lengur á þessum sölusamtökum að halda. Hann kann tungumál. Hann hefur komið til útlanda og hann veit hvernig þessi viðskipti fara fram. Þetta vissu menn hreinlega ekki fyrir 60 árum. Þá var nauðsynlegt að hafa útflutningsverslunina háða leyfum og hafa hana undir þeirri stjórn sem hún hefur verið fram til dagsins í dag. En það er einmitt einkenni gömlu flokkanna að skilja ekki hina breyttu tíma, skilja ekki nútímatæknina sem hefur haldið innreið sína á Íslandi.
Við skulum taka annað dæmi. Fyrir fáeinum árum var ég staddur í Berlín og átti þar langar og skemmtilegar viðræður við ræðismann Íslendinga. Hann kvartaði yfir því að hann hefði um árabil reynt að fá keypt íslenskt kindakjöt, þ.e. að koma því um kring að íslenskt kindakjöt yrði til sölu í einni stærstu vöruverslun Berlínar sem hefur verið fræg um allt Þýskaland fyrir það um áratuga skeið að hafa til sölu matvörur frá öllum heimshlutum. Þetta er stofnun sem er mjög þekkt um allt Þýskaland. Þangað kemur fólk alls staðar að úr Þýskalandi til þess að versla í þessari búð og fá tækifæri til að kaupa allskonar tegundir matvara sem þangað eru komnar alls staðar að úr heiminum. Hann talaði hins vegar fyrir daufum eyrum vegná þess að hann var ekki að biðja um 200, 300, 400, 500 tonn í einu. Öðruvísi viljum við ekki selja kjöt. Sá aðili sem hefur einkaleyfi á að selja lambakjöt til útlanda nennir ekki að sinna minna en fleiri hundruð tonnum í einu. Hann hefur engan áhuga á útflutningi sem ekki nemur fleiri hundruð tonnum í einu. Ef nú hins vegar hinir fjölmörgu aðilar sem eru í innflutningi fengju að spreyta sig á því að selja eitthvað af þessu lambakjöti samhliða því sem þeir eru að gera samninga við sína umboðsaðila erlendis.
Það er eitt dæmi enn sem mig langar til að taka: Einn virtur innflytjandi hér í bæ beindi þeirri spurningu til umboðsmanns síns erlendis, sem í reyndinni var stór verksmiðja í Þýskalandi og rak þar mötuneyti fyrir um 30 þús. manns, væruð þið ekki tilbúnir til að kaupa eitthvert lambakjöt af Íslendingum og hafa í mötuneyti ykkar? Jú, svo sannarlega, við höfum ekkert á móti því. Við skulum kaupa af þér kannski 10–15 tonn af lambakjöti, ef þú getur gefið okkur verðtilboð þar að lútandi. En auðvitað fær innflytjandinn ekki leyfi til þess. Hann er háður þessari lagasetningu sem við búum við, eins og lögin eru orðuð, að það beri helst að banna allan útflutning. Þannig má eiginlega lesa lögin. Það er hægt að veita leyfi með ákveðnum skilyrðum, en eins og lögin eru orðuð virðist það heyra undir undantekningu að yfirleitt skuli vera veitt nokkur útflutningsleyfi.
Ég held að ekki þurfi að færa frekari rök fyrir máli mínu. Það væri þó fróðlegt að rifja eftirfarandi upp. Það var vitnað til þess áðan í frammíkalli að ég væri fyrrv. sjálfstæðismaður. Ég er ekkert að draga dul á það. Ég hef setið fjölmarga landsfundi Sjálfstfl. og þar hefur yfirleitt alltaf náðst samstaða um það í nefndum, sem hafa fjallað um þau mál, að útflutningsverslunin skuli vera frjáls. En einhvern veginn hefur þetta aldrei komist til skila til þm. Sjálfstfl., né ráðherra flokksins, þó allir óbreyttir liðsmenn Sjálfstfl. séu sammála um þetta atriði.