09.12.1987
Efri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1683 í B-deild Alþingistíðinda. (1210)

54. mál, útflutningsleyfi

Guðmundur H. Garðarsson:

Herra forseti. Það er ekki rétt að teygja tímann of mikið í umræðu um þetta mál sem hér er til meðferðar vegna þess að það eru önnur mál sem þurfa að fá afgreiðslu í deildinni. En þó verður maður að standa upp og mótmæla hér rangfærslum og öfgum sem taka engu tali. Ég vil aðeins segja við hv. þm. Júlíus Sólnes, 7. þm. Reykn., að það fer aldrei vel á því að afneita uppruna sínum. Það kann aldrei góðri lukku að stýra og endar yfirleitt með skelfingu. (JúlS: Ég var einn þeirra sem ...) Því miður hefur hv. þm. fallið fyrir því að reyna að afneita pólitískum uppruna sínum og Sjálfstfl., en það gengur allerfiðlega og mér finnst það einhvern veginn ekki klæða hv. þm. Júlíus Sólnes að reyna að gera það því það er aldrei að vita hvar sú vegferð endar sem Borgarafl. hóf sl. vor. Við skulum því talavarlega um það hvernig Sjálfstfl. kann að vera. Auðvitað er hann ekki hafinn yfir gagnrýni. En ég held að það væri nú betra að tala varlega í þeim efnum. Sem betur fer er Sjálfstfl. enn þá og verður vonandi um alla framtíð góður flokkur. Við trúum því flestöll a.m.k. Ég sé það að hv. þm. neitar því ekki alveg, ég sé það á augnatilliti hans. Að því stefnum við öll í framtíðinni að gera hann enn þá betri. En í sambandi við það mál sem hér er til umræðu er eitt sem ég held að verði að leiðrétta, a.m.k. fyrir þingsöguna, það er þessi villukenning um það að menn fái ekki að flytja út á Íslandi. Því miður var hv. þm. Júlíus Sólnes ekki hér inni í dag þegar ég tók til máls. Það var staðfest af hæstv. viðskrh. að það sem ég sagði þá væri rétt. En það munu vera um 300–400 aðilar sem flytja út sjávarvörur og aðrar vörur á Íslandi í dag, þannig að það er ekki hægt að segja að það ríki ekki ákveðið frelsi í þeim efnum. Hins vegar eru í þessum efnum eins og mörgum öðrum ákveðnar takmarkanir. Þær takmarkanir hafa orðið til vegna þess að menn hafa álitið að verja þyrfti meiri hagsmuni fyrir minni í sambandi við útflutning á sjávarafurðum sem og ýmsum öðrum vörum.

Ég fyrir mitt leyti er fylgjandi því að frelsi sé sem mest á sem flestum sviðum. Það fer ekkert á milli mála. En maður verður að vera raunsær á ákveðnum sviðum. Og þar sem hv. þm. Júlíus Sólnes vitnar mikið til útlanda vil ég endurtaka það sem ég sagði í dag að hjá stórþjóðum tíðkast það að einmitt matvara, vandmeðfarin matvara, er yfirleitt í sölumeðferð stórra og fárra fyrirtækja. Ég nefndi sérstaklega Noreg. Í Noregi eru það aðeins tvö fyrirtæki sem flytja út 90% af öllum frystum sjávarafurðum sem Norðmenn framleiða. Annað fyrirtækið heitir Frionor og hitt heitir Nordic Group. Þetta fyrirkomulag hefur reynst þeim vei. Í Færeyjum er eitt fyrirtæki sem flytur út allar frystar sjávarafurðir það er Föroyja Fiskasölan. Það fyrirtæki hefur litið þannig til Íslendinga að það óskaði eftir því árið 1970 að Íslendingar önnuðust sölumeðferð á frystum sjávarafurðum fyrir þá í Bandaríkjunum og gera enn. Færeyingar telja hagsmunum sínum mjög vel borgið með þessu fyrirkomulagi. En áður voru það bandarískir umboðssalar sem seldu fisk fyrir Færeyinga. Þeir leituðu ekki til Dana í sambandi við sölu á frystum sjávarafurðum. Ástæðan mun m.a. hafa verið sú að allt sölukerfi Dana á frystum sjávarafurðum er, samanborið við það sem Íslendingar og Norðmenn hafa haft á þessu sviði, mjög lélegt. Danir eru ekki leiðandi aðili í markaðssetningu á frystum sjávarafurðum. Þetta er staðreynd sem er hægt að staðfesta hvenær sem er. Hins vegar eru í Danmörku ákveðin góð fyrirtæki sem frysta sjávarafurðir og annast sölu sinna afurða sjálf. Og þá leggja þau sérstaka áherslu á það að selja í Evrópu. En þar eru öðruvísi markaðsaðstæður en í Bandaríkjunum.

Ef við lítum til Evrópu um það hvernig sjávarafurðir eru seldar, þá þarf ekki að fara lengra en til Englands til þess að gera sér grein fyrir því að á Bretlandseyjum, þessum markaði sem skilar Íslendingum mest og best í sambandi við sölu á ísuðum fiski og ferskum, eru tvö til þrjú fyrirtæki sem eru það sem kallað er markaðsráðandi í sambandi við sölu á frystum sjávarafurðum. Þetta eru bresk fyrirtæki: Birdseye, Unilever er sterkt fyrirtæki á bak við fjölda annarra breskra fyrirtækja. Þessi fyrirtæki ráða mjög miklu. Þegar Íslendingar ætluðu á sínum tíma að ryðja sér braut á breska markaðnum með svipuðum hætti og í Bandaríkjunum, þá voru það Unilever og Birdseye sem brutu niður og eyðilögðu þá viðleitni. Því miður. Ef það hefði tekist fyrir 1970 hefðu Íslendingar staðið mun betur að vígi í landhelgisstríðinu í sambandi við markaðs- og sölumál á Bretlandseyjum. Við töpuðum þar niður einum áratug vegna þess að við höfðum ekki þá sterku aðstöðu sem við höfðum í Bandaríkjunum, að þar vorum við sjálfir með okkar eigin fyrirtæki.

Það sem forsvarsmenn þessa fyrirkomulags gagnvart Bandaríkjunum eru að tala um sérstaklega er að Íslendingar fengu forskot í Bandaríkjunum umfram margar aðrar þjóðir af því að þeir fóru rétt að í markaðssetningu á þessum afurðum. Og það er rangt og það er ómaklegt að halda því fram að ekki hafi vel verið á málum haldið og að Íslendingar hafi ekki haft forustu í þessum efnum og verið á undan sínum tíma. Þeir voru langt á undan sínum tíma í þessum efnum og eru jafnvel enn. En því miður er dollarinn svo veikur að hann hefur dregið úr áhuga manna til að framleiða fyrir þann markað sem skyldi. Íslendingar eru leiðandi afl og hafa mikil áhrif á verð á frystum afurðum, þ.e. þeim tegundum sem við erum að reyna að selja í Bandaríkjunum. Það er þetta atriði sem skiptir höfuðmáli. Það er það að við í sameinuðu átaki en þó með ákveðnu aðhaldi, sem hefur verið vegna þess að þarna hafa þrjú fyrirtæki einkum selt, sem er Coldwater sem SH á, Icelandic Seafood sem Sambandið á og Ocean Harvester. Vegna þess hvað þessi fyrirtæki hafa verið fá og að vissu marki samtaka, miðað við þær aðstæður og hvað löggjöf um hringamyndun leyfir í Bandaríkjunum, þá hafa þau getað ráðið miklu um verðlag á frystum flökum og frystum fiskblokkum. Það er sú hætta að þessi aðstaða breytist til hins verra sem menn sjá hugsanlega fram undan — ég segi hugsanlega því ég vona það svo sannarlega að innri styrkur þessara fyrirtækja, sérstaklega tveggja fyrst nefndra, sé það mikill að þau haldi velli. Það er fyrst og fremst þetta sem um er að ræða þegar verið er að tala um að það eigi ekki að hleypa allt of mörgum í það að flytja út frystan fisk til Bandaríkjanna — það er sú hætta sem getur blasað við að þessi samstaða riðlist með þar af leiðandi afleiðingum þegar mikið fiskframboð er, að hver undirbjóði annan. Þá verða afleiðingarnar þær að Íslendingar sem þjóð fá minna fyrir sínar afurðir en ella. Þetta er kjarni málsins.

Ég trúi því og veit að bæði hv. þm. Júlíus Sólnes sem og aðrir hv. þm. í þessari deild vilja og við viljum öll stuðla að því að Íslendingar fái sem mest í aðra hönd þegar um er að ræða útflutning á þeim vörum sem við viljum flytja út og selja í öðrum löndum.

Það er gert lítið með það að stórfyrirtæki þurfi að vera útflytjendur frá Íslandi. Ég minni á annað atriði, og hafði ekki séð athugasemd frá hv. þm. Borgarafl. við því að nú fyrir nokkrum dögum var verið að sameina tvö fyrirtæki, þ.e. ullarverksmiðju SÍS á Akureyri og Álafoss. Það var búið til eitt stórt fyrirtæki í staðinn. Þetta fyrirtæki verður gjörsamlega,með 100% útflutning á allri ull og ullarvörum frá Íslandi á næstu árum. Ég hef ekki séð athugasemd við því að þetta fyrirkomulag skuli vera hjá þessum fyrirtækjum. Enda er ein aðalástæðan fyrir sameiningunni sú, og grundvallaratriði, að í sameinuðu átaki nái þessir aðilar meiri árangri, sérstaklega í samkeppninni úti á hinum stóru mörkuðum. Það þýðir aftur á móti ekki að það fyrirkomulag þurfi að vera gott að það skuli vera einn aðili. Ég tel það mjög óæskilegt. Ég tel það æskilegt að í útflutningi á hvaða vöru sem er frá Íslandi séu hið minnsta tvö til þrjú fyrirtæki. Hið minnsta. Það verður að vera ákveðið aðhald í þessum efnum. Ég er þar hjartanlega sammála hv. þm. Júlíusi Sólnes um það.

Það sem menn verða auðvitað að gera sér grein fyrir þegar verið er að fjalla um það að flytja út vörur, eins og fram hefur komið í ræðum manna hér áður, er hvaða verð við fáum fyrir vörurnar. Hvernig eru skilin á þessum verðum? Fáum við örugglega til baka þau verð sem um er samið? Ráðum við við það ef stórir kaupendur koma með kvartanir og segja að varan sé ekki nægilega góð? Það getur verið mjög dýrt og fyrirhafnarmikið að afsanna það þegar mikið framboð er að varan sé jafngóð og lofað var þegar samningur var gerður. Það er mjög þekkt fyrirbrigði í útflutningi sjávarafurða að þegar mikið berst inn af fiski komi erlendir kaupendur og finni allt að vörunni sem hugsanlegt er og þarf ekki mikið til að þeir vilji fá afslátt frá umsömdu verði. Þetta getur verið gífurlegt vandamál. Við erum ekki að tala um útflutning á nokkur hundruðum eða þúsundum tonna. Við erum að tala um útflutning sem nemur um og yfir 100 000 smálestum. Og þetta er ekki bara útflutningur á frystum fiskflökum, þorskflökum. Þetta er ekki bara ýsa og góðfiskur. Hér er um að ræða mikið framboð af öðrum fisktegundum, ufsa, þorski, ýsu, löngu, keilu, síld, loðnu o.s.frv. sem krefst mikillar samræmingar ef árangur á að nást því vandinn er ekki sá að selja bestu vöruna. Það er alltaf hægt að finna kaupendur sem vilja kaupa bestu vöruna. Vandinn er sá að finna markað fyrir þá vöru sem þarf að búa til markað um. Skapa þörf. Og þar hafa þessi stóru fyrirtæki komið til skjalanna og skilað miklum árangri.

Því miður verð ég að segja það að ég hef ekki orðið var við það hjá þessum minni útflytjendum ég segi því miður því ég hefði svo sannarlega viljað sjá það — því miður hef ég ekki séð það — og ég vildi óska eftir því að hv. þm. Júlíus Sólnes nefndi mér nokkur dæmi því þegar maður er að leggja til og mæla með að brjótast frá því sem hefur reynst þjóðinni vel, þá þarf maður að geta sannað það með dæmum að annað betra komi í staðinn — því miður hef ég ekki séð þau dæmi, og hef ég þó töluvert mikla reynslu á þessu sviði, ég hef ekki séð dæmi um það að þessir litlu útflytjendur hafi náð betri eða það umtalsvert betri árangri með nýjungum eða í verði sem réttlæti það að rífa það fyrirkomulag upp með rótum sem hefur skilað jafngóðum árangri og raun ber vitni um. Þetta finnst mér höfuðmálið. Ég bið hv. þm. um að koma hér með haldgóð dæmi. Haldgóð dæmi sem sanna að það nemi ekki bara tugum milljóna, heldur hundruðum milljóna Íslendingum í hag, til hins betra að rífa þetta upp með rótum og tala eins og talað er um þessi mál, daginn út og daginn inn. Það er kjarni málsins. Það er ekki nóg að spá fram í tímann og segja að við fáum eitthvað betra. Það þarf að vera hægt að sanna það og sýna það.

Þá kem ég að tryggingunum. Gera hv. þm. sér grein fyrir því þegar verið er að tala um þessi mál að þá erum við að tala um útflutning sem nemur líklega á þessu ári um 18 milljörðum kr.? Það er ekkert lítið mál að eiga viðskipti við kaupendur eða viðskiptavini, sem skapa öruggar og góðar tryggingar. Hvað eru öruggar og góðar tryggingar? Það eru ekki bara peningar. Það er líka trygging um það að hafa örugg og góð viðskipti áfram til frambúðar. Það er trygging um það að þegar varan er komin út, þá sjái viðtakandinn um það að hún sé örugglega geymd, og komist í hendur dreifenda, ekki bara í Englandi, sem er í fjögurra sólarhringa fjarlægð ef maður lítur út frá því sjónarmiði að þetta er flutt aðallega með skipum, heldur að varan komist örugglega í hendur neytenda allt vestur á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna eða til Japans svo lengra sé farið. Það þarf mjög öruggt og tryggt afskipunar- og afgreiðslukerfi. Það þarf mjög örugga og trygga kaupendur erlendis, sem taka á móti 100 til 120 eða 130 þúsund smálestum af frystum sjávarafurðum frá Íslandi og andvirði þeirrar vöru er um 18–20 milljarðar á þessu ári. Það gerist ekki eins og hendi sé veifað. Og það gerist ekki með þeim hætti að einhverjir litlir og ágætir innflytjendur á Íslandi geti tekið að sér þetta hlutverk, bara svona samhliða því sem þeir flytja inn í einkaumboðum ákveðnar tegundir af vörum, t.d. bifreiðar, matvöru og annað.

Nei, við skulum tala um þetta eins og ábyrgir menn og gera okkur grein fyrir því að við erum að hreyfa við ákveðinni grundvallaruppbyggingu sem getur hrunið á mjög skömmum tíma ef ekki er rétt að staðið. Og það sem er kannski verra er að það gæti ekki tekið mörg ár að koma þessu öllu saman yfir í hendurnar á erlendum mönnum vegna þess að það eru engir sem eiga viðskipti á þessu sviði til frambúðar fyrir nokkur hundruð tonn. Sérhver alvöru, stór erlendur kaupandi sem gengur inn í þessi viðskipti gerir það upp á það að hafa trygg viðskipti til frambúðar og ráða yfir viðskiptunum og verðunum. Ég segi við ykkur, ágætu þm., og sérstaklega við hv. þm. Júlíus Sólnes, sem er verkfræðingur: Við skulum láta sérfræðingana hvern fyrir sig fá að njóta sín eitthvað á sínu sérsviði. Mér dettur ekki í hug að deila við Júlíus Sólnes um verkfræðileg og tæknileg atriði. Ég segi við hv. þm. á móti að hann verður að meðtaka það að sérfræði getur orðið til líka í gegnum reynslu, menntun, þekkingu á viðskiptasviðinu, ekki síður en það að öðlast þekkingu á sviði verkfræði og ég tala nú ekki um á sviði lögfræði. Það er nú náttúrlega alveg kapítuli út af fyrir sig.

Svo eru það gæðin. Verða gæði á þessum vörum til af sjálfu sér? Ég ætla ekki að ræða meira um það. Ég gerði það í ræðu hér fyrr í dag. En þessir aðilar, sem hafa staðið að útflutningi og framleiðslu á frystum sjávarafurðum í gegnum tíðina, hafa varið hundruðum milljóna í það að tryggja gæðin. Þeir hafa haldið uppi sterku, öruggu og góðu þjónustuneti fyrir yfir hundrað hraðfrystihús, í gegnum SH og sjávarafurðadeild SÍS. Þeir þjóna þessum frystihúsum frá degi til dags með sérstaklega hæfu fólki. Og þar er ekki um að ræða tvo, þrjá, fjóra, fimm menn. Þar er um að ræða tugi starfsmanna. Í þessum hópi eru m.a. gamlir sjómenn, skipstjórar, stýrimenn og aðrir sem hafa áratuga reynslu í meðferð sjávarafla og vita mjög glöggt hvað hér er á ferðinni og vita mjög vel hvað góður fiskur er. Einnig hefur komið til skjalanna á seinni árum vel menntað fólk, úr háskóla, úr tækniskólum o.s.frv. sem hefur reynst mjög vel. Við skulum þess vegna hafa það í huga að forsenda þess að menn nái árangri í útflutningi sjávarafurða er að gæðin séu í lagi, en til þess að gæðin séu í lagi þarf náttúrlega efnið að vera gott sem kemur að landi, þ.e. fiskurinn, og meðferðin öll og umsjón.

Þá er komið að atriði sem menn ræða yfirleitt ekki um hér í ræðum á Alþingi í sambandi við þessi mál — þetta er afskaplega yfirborðsleg og yfirborðskennd umræða hjá mörgum hv. þm., því miður — það er áreiðanleikinn í þessum viðskiptum. Ég legg áherslu á það að ef veita á þetta ótakmarkaða frelsi, sem hæstv. viðskrh. Jón Sigurðsson, sérfræðingur og embættismaður — sem ég held að einn af vinum mínum og þingbróðir, hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson, hafi kallað kerfiskall eða eitthvað svoleiðis, hann hefur mjög góða þekkingu á kerfinu og öllu sem þar er um að ræða. Hann hefur mikla og glögga þekkingu á því hvernig menn búa til skýrslur og hvernig á að leiða menn saman og finna svo ákveðna meðaltölu út úr því sem menn segja. En þannig er það nú bara ekki í sambandi við þennan atvinnuveg sem við erum að tala um hér sem þarf að byggja á útflutningsleyfunum. Áreiðanleiki byggist á samskiptum manna sem hafa áratuga reynslu af því að hafa átt viðskipti með þeim hætti að báðir hafa fengið sitt, kaupandinn góða vöru og við sem seljendur örugga greiðslu, þannig að við höfum getað haldið þeim viðskiptum áfram.

Það er engin trygging fyrir því þegar menn eru komnir með 300—400 — ég held að það séu á annað þúsund heildsalar á Íslandi, ég tala nú ekki um það ef útflutningurinn færi yfir á hendur á annað þúsund — það er engin trygging fyrir því að slíkur fjöldi smáfyrirtækja gæti skapað grundvöll fyrir þann áreiðanleika sem er forsenda góðra viðskipta. Því miður verð ég að hafa mínar efasemdir um það. Held ég samt mikið upp á heildsala því þeir hafa staðið sig mjög vel margir hverjir í sambandi við innflutning. En þar gilda bara önnur lögmál. Í innflutningi keppast menn um að kaupa sem besta vöru á sem lægstu verði, en í útflutningi keppast menn um að selja sem mest á sem hæstu verði. Þar snýst lögmálið við.

Þá er það með birgðahald. Það að skipuleggja birgðahald þannig að góður markaður treysti manni krefst líka skipulagningar. Það er dýrt að vera með miklar birgðir. Það er dýrt að vera með það vöruúrval sem menn verða að hafa til þess að þeir geti þjónað góðum viðskiptamönnum í bráð og lengd. Það er ekki markmið og það er ekki góð stefna að segja: Við skulum hafa nógu marga útflytjendur, þeir geta bara sérhæft sig, því sérhæfingin gæti orðið þannig að hún yrði fyrst og fremst á grundvelli þeirra afurða sem best skila, en á kostnað hinna sem lakast skila.

Hv. þm. Júlíus Sólnes og hæstv. viðskrh. hafa gert lítið með það sem heitir vöruúrval. Af hálfu hv. þm. og hæstv. ráðherra hefur verið talað eins og þeir sem flytja út frystar sjávarafurðir hafi ekki úr miklu vöruúrvali að moða. Ég verð nú að segja að það er hörmulegt að ráðherra á Íslandi árið 1987, jafnmenntaður og hæstv. viðskrh. er, og einnig jafnmenntaður maður og hv. þm. Júlíus Sólnes er, að þeir skuli standa hér upp á hv. Alþingi og fullyrða það að þessir aðilar hafi ekki staðið sig í sambandi við framboð og vöruúrval. Það þýðir að þeir hafa ekki kynnt sér það mál til hlítar sem hér er til umræðu. Vöruúrval t.d. fyrirtækis eins og Coldwater Seafood Corporation, sem selur fyrir um 230 milljón dollara á ári, er þannig að það eru um 600–700 mismunandi vörutegundir á vörulistum þess fyrirtækis. Ég hygg að þannig sé einnig háttað um fyrirtæki Sambandsins, Iceland Seafood Corporation. Til þess að þróa upp svona fjölbreytt vöruúrval, sem skapar þessa miklu möguleika, þarf stór og sterk fyrirtæki. Bandarískir kaupendur vilja geta gengið að stórum kaupendum sem bjóða upp á svona fjölbreytilegt úrval. Það er grundvallarforsenda þessara viðskipta.

Um það að utanríkisverslun Íslands sé bundin á klafa hef ég svarað og ég vil ítreka það að á lista eða skrá í viðskrn. eru 300–400 útflytjendur á íslenskum vörum.

Að segja það að menn skilji ekki nútímann, ég þykist nú hafa svarað því töluvert og skil þetta sem pólitíska upphrópun. Auðvitað hafa menn skilið nútímann og það veit hv. þm. Júlíus Sólnes vel þannig að ég ætla ekki að fjölyrða um það atriði í ræðu hans.

En ég vil leggja áherslu á það að við tölum um þessi mál á grundvelli þekkingar. Við skulum vara okkur á því að einfalda það um of. Það getur verið hættulegt. Það getur vakið upp væntingar sem því miður geta ekki ræst. Og þá er vont að hafa staðið þannig að málum þegar upp verður staðið að við höfum stefnt í það sem hefur orðið okkur til skaða.

Nú gerir hæstv. ráðherra okkur þann heiður að mæta í salinn. Ég veit það af fyrri reynslu ... (Dómsmrh.: Ég hef verið hér allan tímann.) Þannig að þú hefur heyrt vel ræðuna? (Dómsmrh.: Hvert orð.) Ég þykist vita að þú kannast við sumt af því sem ræðumaður hefur sagt. (Dómsmrh.: Ég hef heyrt það áður. Sumt.) Já sumt af því. En það skaðar ekki að ítreka það. Ég veit að hæstv. ráðherra misvirðir það ekki við ræðumann. (Dómsmrh.: Alls ekki nema síður sé.) Ég veit einnig að þó að hann hafi veitt þessi leyfi um daginn var það hans hugsun að farið yrði varlega í það, a.m.k. á fyrsta stigi, og ég er að vissu leyti ánægður með það. En ég ítreka það enn einu sinni að það er grundvallarafstaða í sambandi við afgreiðslu þessa frv., sem hér er til umræðu, hvort hér eigi að ríkja það fyrirkomulag að menn þurfi að sækja um útflutningsleyfi á vissum sviðum utanríkisverslunar, að ég tel það óhjákvæmilegt og vísa til þess sem ég sagði áðan. Hins vegar vil ég taka undir þau sjónarmið að stóru fyrirtækin, og hver sá sem flytur út og verslar yfirleitt, þurfa á aðhaldi að halda, en það verður að vera gert á grundvelli þekkingar og af fullri skynsemi.