09.12.1987
Neðri deild: 20. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1694 í B-deild Alþingistíðinda. (1222)

190. mál, almannatryggingar

Frsm. heilbr.- og trn. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Það er jafnmikill einhugur í heilbr. og trn. um þetta mál og það sem ég mælti fyrir rétt áðan. Þetta litla frv., sem heilbr.- og trn. flytur, er í raun og veru efnisatriði úr frv. sem var flutt sem 6. mál þingsins á þskj. 6, en í því frv, fólst m.a. atriði sem er í sjálfu sér lítið kostnaðaratriði en mikið réttlætismál að okkar dómi, en það fjallar um það að ásamt sjúkradagpeningum geti einstætt foreldri, sem er heimavinnandi, haldið mæðralaunum. Nú gildir sú regla að móðir eða foreldri, sem mæðralaun hefur eða tilsvarandi bætur, heldur þeim bótum þegar réttur stofnast til sjúkradagpeninga. Svo einkennilegt sem það er gildir þetta einungis um útivinnandi fólk en ekki þá sem eru einstæðir foreldrar og vinna alfarið á heimilinu. Vissulega eru þeir einstaklingar miklu færri en úr því að við teljum að nauðsynlegt sé að þeir aðilar sem vinna utan heimilis haldi mæðralaunum þegar svona stendur á, þá gildir það ekki síður um þá sem vinna alfarið inni á heimilinu. Þess vegna leggjum við til að þetta atriði verði lögtekið og teljum að þetta sé nánast leiðrétting á gildandi lögum eða samræming á þeim reglum sem gilda um þessa hópa.

Ég geri ekki tillögu, herra forseti, um að frv. verði vísað til nefndar því að það er flutt af nefnd, en leyfi mér hins vegar að leggja til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. Geri ég mér vonir um að það fái greiða afgreiðslu í hv. deild þannig að Ed. geti líka fjallað um það og það orðið sem fyrst að lögum.