09.12.1987
Neðri deild: 20. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1696 í B-deild Alþingistíðinda. (1225)
188. mál, brunavarnir og brunamál
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Hér er á ferðinni eitt lítið mál sem við fyrstu sýn virðist næsta einfalt og sjálfsagt og ekkert nema gott um það að segja að menn vilji tryggja betur rekstur Brunamálastofnunarinnar. Hér er engu að síður á ferðinni skattstofn með vissum hætti og sennilega er sjálfur skattstofninn einn sá stærsti í landinu, 620 milljarðar kr. Þó að skattaprósentan, sem hér er lögð til, sé að sönnu mjög lág, óvenjulega lág, er það samt svo að í henni felst væntanlega nokkur skattahækkun. Þó að mönnum þyki kannski sparðatíningur að nefna það hér, þar sem um svo litla upphæð er að ræða, eins og brot af rekstrarkostnaði Brunamálastofnunar sem er ekki ýkja stórt dæmi, getur ræðumaður varla stillt sig um að gera það í tengslum við ýmislegt annað sem er að gerast á hinu háa Alþingi þessa dagana. Það er svo merkilegt með það, virðulegur forseti, að það skuli ævinlega koma í hlut hæstv. ráðherra Alþfl. að tala fyrir slíkum málum.
Ég spyr hæstv. ráðherra hvort ekki hafi komið til greina, hvort ekki hafi verið rætt að greiða einfaldlega upp þá skuld sem safnast hefur upp hjá Brunamálastofnun á undanförnum árum, taka hana á ríkið til þess að iðgjöld samkvæmt hinu nýja innheimtukerfi, nú eða út af fyrir sig hinu gamla, hefðu þegar getað verið í samræmi við eiginlegan rekstrarkostnað eða fjárþörf stofnunarinnar. Hér er lagt til að lögfesta tiltekna prósentu sem á að skila stofnuninni einhverjum tekjum umfram rekstrarkostnað eða fjárþörf á næstu árum til að greiða upp þá skuld sem par hefur safnast fyrir, ef ég hef skilið málið rétt. Ég vil því sérstaklega spyrja hæstv. ráðherra hvort það hafi ekki komið til tals að fara þessa leið sem mér hefði fundist eðlilegri vegna þess að þá hefðu menn væntanlega getað gert sér vonir um að sú skattprósenta, sem hér er lögfest, entist betur og yrði til lengri framtíðar í sæmilegu samræmi við þörf Brunamálastofnunar.
En ég vil líka spyrja hæstv. ráðherra, úr því að málið er tekið upp á annað borð, ofurlítið um brunavarnir og þá ekki síst í tengslum við það að félagsskapur slökkviliðsmanna, Landssamband slökkviliðsmanna, hefur staðið fyrir eldvarnaátaki sem er lofsvert og þakkarvert en af miklum vanefnum þar sem sá félagsskapur hefur ekki miklu til að dreifa öðru en félagsgjöldum og einhverjum stuðningsframlögum. Þær vanefndir hafa leitt til þess að Landssamband slökkviliðsmanna hefur valið nokkuð sérkennilega leið í sínu eldvarnaátaki. Hún er sú að auglýsa eingöngu í einu dagblaðinu. Hafa af þessu spunnist nokkrar vangaveltur og umræður. Lesendur og áskrifendur annarra dagblaða, þeir sem ekki eru þeirrar náðar aðnjótandi að kaupa þetta tiltekna dagblað en fylgjast kannski með öðrum fjölmiðlum, hafa spurt hvers þeir eigi að gjalda. Eiga t.d. lesendur Þjóðviljans, sem er ekki þetta blað, bara að brenna inni eða má sem sagt einu gilda hvað um þá verður ef lesendur þessa tiltekna dagblaðs, sem varð fyrir valinu, verða hólpnir, ef þeir verða fræddir? Ég er ekki að ásaka Landssamband slökkviliðsmanna eða forystumenn þess sem, eins og ég tek fram, eru af vanefnum að reyna að sinna þarna mjög þörfu málefni og vegna fjárskorts hafa sjálfsagt talið sig neydda til að velja þessa umdeilanlegu leið. Það er því eðlilegt að spyrja hæstv. ráðherra almennt um fjárveitingar til brunavarnamála og nærtækt að spyrja hvort ekki væri ástæða til að tryggja Landssambandi slökkviliðsmanna, ef það á að sjá um áróður og fræðslu að einhverju leyti á þessu sviði, sem ég tel út af fyrir sig að mörgu leyti æskilegt þar sem eru þeir menn sem einna best til þekkja, og styðja við bakið á þeim með einhverjum fjárframlögum þannig að þeir geti sinnt sínum áróðri og sinni fræðslu með þeim hætti að það standi öllum landsmönnum til boða að verða aðnjótandi þeirrar fræðslu en ekki bara lesendum Morgunblaðsins.