10.12.1987
Sameinað þing: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1717 í B-deild Alþingistíðinda. (1242)
Vinnubrögð við undirbúning fjárlaga
Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Það var aðeins út af orðum hv. 11. þm. Reykn. sem ég vildi taka fram að það hefur verið lögð á það áhersla af hálfu sjútvn. að ýmsar upplýsingar bærust til nefndanna og þar með talin frumdrög að reglugerð. Það hefur verið unnið að þessum málum í ráðuneytinu og það var verið að vinna að þessari upplýsingaöflun langt fram eftir kvöldi í gærkvöld. Ég átti fund með hagsmunaaðilum, sem koma mjög að þessu máli, eldsnemma í morgun og þeir fengu að sjá þessi frumdrög að reglugerð á sama morgni og hv. þingnefnd. Ég vænti þess að menn telji eðlilegt að í því tímahraki sem nú er, því miður, reyni allir að haga störfum sínum þannig að sem mestur árangur geti orðið af því. Það er það sem okkur gekk til í ráðuneytinu. Ég vænti þess að það þyki ekki óeðlilegt að þessir aðilar fái frumdrög að þessari reglugerð um leið og hún er tilbúin þótt það hafi verið um eins og hálfs tíma millibil á milli funda.