10.12.1987
Sameinað þing: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1732 í B-deild Alþingistíðinda. (1259)
17. mál, leiðbeinendur og stundakennarar í grunnskólum og framhaldsskólum
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég þakka þær upplýsingar sem hér hafa komið fram og tek undir orð hv. fyrirspyrjanda, Danfríðar Skarphéðinsdóttur, sem hún lét falla hér áðan um þýðingu þess að skólamálin séu í skaplegu horfi á landinu öllu og unnið sé gegn þeirri miklu mismunun sem ríkir m.a. hvað snertir aðstöðuna til náms og ekki síst að því er varðar ráðningu kennara. Eins og fram kom í svari hæstv. ráðherra blasir við allt önnur mynd víða úti um land annars vegar og hins vegar á Reykjavíkursvæðinu.
Ég hafði lagt fyrir hæstv. ráðherra fsp. á þskj. 14 í byrjun þessa þings um svipað efni og hæstv. ráðherra hefur einmitt í dag afhent mér skriflegt svar við fsp. sem væntanlega mun lagt fram á þessum eða næsta fundi sameinaðs þings. Þar koma fram sumpart sömu upplýsingar og hér liggja fyrir, en auk þess fleiri þættir, m.a. um að þurft hefur að fella niður lögboðna kennslu í grunnskólum og framhaldsskólum í vissum tilvikum vegna skorts á kennurum. Þetta geta menn athugað þegar þetta svar kemur fram í Sþ.