10.12.1987
Sameinað þing: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1743 í B-deild Alþingistíðinda. (1273)

145. mál, ólöglegur innflutningur myndbanda

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Sem svar við spurningu hv. 5. þm. Reykv. hlýt ég að segja á þessu stigi máls að það svar verður að bíða þar til fullnaðarniðurstaða er fengin úr rannsóknum þeirra mála sem hér er um að ræða og ákvörðun hefur verið tekin um ákærur í þeim.