10.12.1987
Sameinað þing: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1746 í B-deild Alþingistíðinda. (1276)

162. mál, fangelsisvist geðsjúkra

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Það er hörmulegt að vandi þessa ógæfusama fólks, sem við ræðum hér í dag í tilefni af fsp. hv. 13. þm. Reykv., skuli hafa eins og hafnað milli stóla í Stjórnarráðinu.

Hér er um tvö vandamál að ræða. Annars vegar er um að ræða fólk sem er ósakhæft sökum geðveiki og verður því ekki dæmt til fangavistar þótt það hafi framið alvarleg afbrot í venjulegum skilningi. Í almennum hegningarlögum segir að þegar svo standi á megi ákveða í dómi ráðstafanir til að varna því að háski verði af viðkomandi einstaklingi. Meðal ráðstafana sem nefndar eru er vistun á viðeigandi hæli. Þar sem slíkt hæli hefur skort hefur þrautaráðið verið að koma geðveiku fólki, sem framið hefur alvarleg afbrot, til vistar á fangelsisstofnunum ríkisins. Þetta er annað vandamálið. Hitt er svo þegar um er að ræða fólk sem talið hefur verið sakhæft og hefur hlotið fangelsisdóma en þjáist af geðveiki í fangavistinni og þarf á meðferð að halda þess vegna.

Um árabil hafa forsvarsmenn dómsmála talið að þeir einstaklingar sem ekki eru taldir sakhæfir eigi að vistast á geðsjúkrahúsum og hafa mörg erindi gengið á milli ráðuneyta um þetta mál. Ég get upplýst að nú munu vera þrír einstaklingar sem þannig er ástatt um og eru vistaðir í fangelsum. Forsvarsmenn heilbrigðismála hafa hins vegar ekki viljað taka við þessu fólki og þar við hefur setið.

Í núgildandi lögum um fangelsi og vinnuhæli er gert ráð fyrir nýbyggingu undir ríkisfangelsi eins og kom fram í máli hæstv. heilbrrh. Í henni á að vera geðveilladeild og deild fyrir öryggisgæslu. Ég tel alls ekki ljóst að þessar deildir hafi átt að taka við fólki sem er ósakhæft sökum geðveiki og hafi því ekki verið dæmt til fangavistar. Hér er um að ræða deildir til meðferðar á geðveilu fólki sem dæmt hefur verið til fangavistar og til öryggisgæslu hættulegra fanga. Hér er um annað mál að ræða en það sem fsp. lýtur að. Annars er nú reyndar öryggisgæsluhugtakið nokkuð á reiki og óljóst við hvaða réttarheimildir öryggisgæslan styðst.

Hvað sem þessu líður þá hefur einfaldlega ekki verið veitt fé til þess að ljúka byggingu ríkisfangelsisins og meðan beðið er eftir frekari fjárveitingum hafa fangelsisþarfirnar breyst og byggingaráætlunin líka.

Með leyfi hæstv. forseta langar mig að ljúka mínu máli með því að nefna að í frv. til nýrra fangelsislaga, sem lagt var fram á síðasta þingi og ég hyggst leggja fram á næstunni í nokkuð breyttri mynd, er ekki gert ráð fyrir vistun í fangelsum fyrir geðsjúka, ósakhæfa menn og þeim er þar með ekki ætlað rúm í fangelsunum. Varðandi þá fanga sem eiga við geðræn vandamál að stríða í fangavistinni hlýtur hins vegar að þurfa að gera ráð fyrir vistun á sjúkrahúsum eða öðrum slíkum stofnunum sem mundi þá teljast til þeirra afplánunartíma.

Ég þarf ekki að ítreka það sem kom fram í máli hæstv. heilbrrh. að hér er um vanda að ræða sem samfélaginu ber skylda til að leysa á mannúðlegan hátt. Við þurfum auðvitað að koma á fót vistun fyrir geðveikt fólk sem reynst hefur hættulegt umhverfi sínu. Það mál eigum við að leysa með sérstökum hætti og ég fulltreysti því að ná um það góðu samkomulagi við hæstv. heilbrrh. og að hv. Alþingi ætli til þess fé.