10.12.1987
Sameinað þing: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1758 í B-deild Alþingistíðinda. (1292)
169. mál, atvinnuleyfi erlendra leiðsögumanna
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég skal reyna að svara þeim spurningum sem til mín hefur verið beint í þessu máli. Það er alveg ljóst af þeirri fsp. sem hér er fram borin að Félag leiðsögumanna hefur ekki verið ánægt með framkvæmdina í þessu máli og það var einmitt ástæðan til þess að ég kallaði til fundar með forustumönnum leiðsögumanna til að reyna að finna lausn á þessu máli. Það er alveg ljóst að það er samgrn. eða Ferðamálaráðs að beita ákvæðum reglugerðar nr. 175/1983, en það er forsenda þess að hægt sé að beita ákvæðum um atvinnuréttindi útlendinga gagnvart erlendum ferðaskrifstofum eða lögaðilum. Á þeim fundi sem haldinn var með fulltrúum frá leiðsögumönnum var þetta einmitt áréttað af félmrn. Á því var sameiginlegur skilningur að það sem fyrst og fremst á skorti til að koma þessum málum í viðunandi horf væri að framkvæmd yrðu ákvæði reglugerðar um eftirlit með skipulegum hópferðum erlendra aðila til Íslands í atvinnuskyni, en sú reglugerð snýr að samgrn.
Hv. fyrirspyrjandi hefur lagt fram aðra fsp. til hæstv, samgrh., sem mér skilst að verði ekki svarað í dag, en að fengnum þeim svörum mundi ég telja að það skýrði verulega malið fyrir hv. fyrirspyrjanda. Á þessum fundi, sem hafður var með leiðsögumönnum, kom einmitt fram að erlendar ferðaskrifstofur, sem hlotið hafa starfsleyfi hjá Ferðamálaráði og vilja nota erlenda leiðsögumenn, verða að fá þá samþykkta af Ferðamálaráði eins og ákvæði 1. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 83, sem ég vitnaði til, kveður á um og að því uppfylltu sækja um atvinnuleyfi fyrir erlenda leiðsögumenn. Þessi sameiginlega túlkun var skýrð fyrir samgrn., sem er á sama máli, og er mér kunnugt um að hæstv. samgrh. ritaði Félagi leiðsögumanna þar sem fram kemur eftirfarandi, með leyfi forseta:
„Að höfðu samráði við ferðamálastjóra vill ráðuneytið hér með staðfesta að það ásamt Ferðamálaráði mun eftir því sem unnt er framfylgja þeim ákvæðum reglugerðarinnar sem snerta störf erlendra leiðsögumanna hér á landi og undir þessa aðila heyra.“
Það er alveg ljóst, og um það eru aðilar, sem um þetta mál hafa fjallað, sammála, að sé þessum ákvæðum reglugerðarinnar fylgt, sem ég vitnaði til, mundi þetta mál sjálfkrafa leysast vegna þess að ef væri sótt um þessi tilskildu leyfi fyrir ferðaskrifstofurnar þyrfti vitaskuld að sækja einnig um atvinnuleyfi fyrir leiðsögumennina.
Ég vænti þess að þetta hafi svarað þeirri fsp. sem til mín var beint í þessu efni.