20.10.1987
Sameinað þing: 5. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í B-deild Alþingistíðinda. (131)

19. mál, erlend nöfn á íslenskum fyrirtækjum

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Í febrúar 1982 beindi ég fyrirspurn til hæstv. þáv. viðskrh. um hver lög giltu um nafngiftir fyrirtækja vegna sívaxandi notkunar erlendra nafna á íslenskum fyrirtækjum. Hæstv. þáv. ráðherra svaraði því til að hann hefði ekki í hyggju að flytja frv. um ný lög og taldi lög nr. 42 frá 1903 ásamt breytingum á þeim með lögum nr. 24 frá 1959 duga þar sem þar væru skýr ákvæði um að fyrirtæki skuli bera nöfn er samrýmist íslensku málkerfi. Orðrétt sagði hæstv. þáv. ráðherra Tómas Árnason,með leyfi forseta:

„Ég verð þó að lokum að játa að ég efast um að lagasetning af þessu tagi geri mikið gagn ein sér. Mestu máli skiptir að efla alla umræðu um íslenskt mál.“

Vegna þessarar fyrirspurnar mælti svo hv. þáv. þm. Vilmundur Gylfason fyrir tveimur frumvörpum í apríl 1982 sem þáv. formaður hv. allshn. Var þar annars vegar um að ræða breytingu á lögum um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð og hins vegar á lögum nr. 53 frá 1963, um veitingasölu, gististaðahald o.fl. Bæði þessi frumvörp urðu að lögum og eftir breytinguna hljóðar 8. gr. hinna fyrrnefndu laga svo, með leyfi forseta:

„Hver sá sem rekur verslun, handiðnað eða verksmiðjuiðnað skal hlíta ákvæðum þeim, er hér fara á eftir, um nafn það er hann notar við atvinnuna og um undirskrift fyrir hana (firma), enda beri fyrirtækið og atvinnustarfsemi þess nöfn sem samræmist íslensku málkerfi að dómi skrásetjara. Ágreiningi, sem rísa kann út af nafni, má skjóta til nefndar þeirrar sem starfar skv. lögum nr. 35/1953 [þ.e. örnefnanefndar].“

Í febr. 1985 spurði ég enn hæstv. þáv. viðskrh. hvort hann teldi erlend vörumerki í heiti íslenskra fyrirtækja samrýmast gildandi lögum. Þáv. hæstv. ráðherra Matthías Á. Mathiesen svaraði orðrétt, með leyfi forseta:

„Ég sagði í upphafi, herra forseti, að þeirri fsp. sem hér liggur fyrir um nöfn fyrirtækja svaraði ég að sjálfsögðu neitandi.“ Og síðar: „Herra forseti. Ég skal endurtaka það sem ég sagði að ég mun gera mitt til þess að reyna að framfylgja þeim lögum sem um þetta gilda, þ.e. þeim sem hér eru til umræðu.“ Og enn sagði hæstv. þáv. ráðherra: „Ég er sammála fyrirspyrjanda um það að auðvitað ber að gera allt sem hægt er til þess að tryggja það að því sé framfylgt sem þessi lög kveða á um í þessum efnum og það mun ég að sjálfsögðu gera eftir því sem í mínu valdi stendur.“

Herra forseti. Nýlega var svo opnuð mikil verslunarhöll í Kringlunni hér í borg og langflest fyrirtæki í því húsi heita enn erlendum nöfnum. Sömu sögu er að segja um helstu verslunargötu borgarinnar og nú hefur landsbyggðin í æ meira mæli tekið upp þennan sið. Ég hef því, herra forseti, leyft mér á þskj. 19 að spyrja hæstv. viðskrh.:

„1. Telur viðskiptaráðherra það samrýmast lögum um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð, nr. 42 1903, sbr. lög nr. 57/1982, að æ fleiri íslensk fyrirtæki bera erlend heiti?

2. Hefur viðskiptaráðherra gert gangskör að því að farið sé að þeim lögum, telji hann svo ekki vera?

3. Hyggst viðskiptaráðherra sporna við þeirri þróun að íslensk fyrirtæki beri erlend nöfn? Sé svo, til hvaða ráða hyggst ráðherra grípa?"