10.12.1987
Sameinað þing: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1770 í B-deild Alþingistíðinda. (1310)
177. mál, fjármögnun lána vegna sauðfjárafurða
Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):
Herra forseti. Hv. 11. þm. Reykn. beinir til mín fsp. um fjármögnun lána vegna sauðfjárafurða.
Í lögum nr. 46/1985, um framleiðslu, verðlagningu og sölu búvara, er kveðið á um að frumgreiðsla fyrir afurðir skuli koma eigi síðar en 15. okt. til þeirra er slátra fyrir þann dag og ekki síðar en tíu dögum eftir að slátrun fer fram aftur síðar. Í lögunum er ekki tekið fram hversu há þessi frumgreiðsla eigi að vera þannig að það er ákvörðunaratriði hvers sláturleyfishafa og vænti ég þess að þeir hafi þá greitt út nú í samræmi við það sem þeir hafa treyst sér til. Ég hygg að það sé ekki nákvæmlega sama hjá öllum aðilum, en það hefur landbrn. enga skrá yfir.
Spurt er hvernig fjármögnun til greiðslu á afurðaverðinu skiptist. Það er þannig að afurðalán viðskiptabankanna eru rúmlega 70% af heildsöluverði. Það er sambærilegt og í sumum tilvikum hærra, í öðrum tilvikum lægra en var áður, meðan Seðlabankinn sá um hluta af þessum greiðslum afurðalánanna. Síðan er gert ráð fyrir að um það bil 20% komi með staðgreiðsluláni og þannig fáist viðunandi fjármögnun fyrir sláturleyfishafana til þessara greiðslna, en staðgreiðslulánin komu þarna til viðbótar þeirri fjármögnun sem sláturleyfishafar höfðu áður og upphæðir, sem þar er um að ræða, hafa áður komið fram í svari við annarri fsp.
Sláturkostnaður er reiknaður af fimm manna nefnd og hann er ákveðinn sá sami fyrir alla sláturleyfishafa, en hins vegar er fyrir þá sem annast útflutning tekin 2% hækkun vegna aukakostnaðar við þá sérvinnslu sem er á kjöti til þess.
Það er gert ráð fyrir að sömu ráðstafanir verði gerðar og tvö síðustu ár til að sláturleyfishafar hafi sambærilegt fjármagn á þessu ári. En sláturleyfishafar hafa ekki enn þá fengið afurðalánin fyrir þetta ar að fullu vegna þess að, eins og ég sagði, ekki liggur enn þá fyrir nákvæmlega hvaða innlegg þarna verður um að ræða. Síðan er nú þessa daga verið að gera upp útflutning á framleiðslu sl. árs og þá um leið greiðslu afurðalánanna fyrir þann útflutning sem ógreiddur var og það verður þá jafnað.
Greiðslutryggingar bankanna vegna afurðalánanna eru í kjötbirgðunum. Þeir hafa 1. veðrétt í kjötbirgðunum. En síðan er það að sjálfsögðu samningsatriði milli hvers banka og einstakra sláturleyfishafa hvort samið er um einhverjar frekari tryggingar þeirra á milli.