10.12.1987
Efri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (1319)
195. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Við styðjum það að lagður verði skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Við teljum hins vegar, með tilliti til þess hvað fyrirtæki eiga bersýnilega að sleppa vel samkvæmt skattastefnu Alþfl., eðlilegt að þessi skattstofn verði nýttur betur og munum flytja brtt. um hækkun á þessum skatti á skrifstofu- og verslunarhúsnæði.