10.12.1987
Efri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1776 í B-deild Alþingistíðinda. (1327)

196. mál, söluskattur

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir þær góðu undirtektir sem hann hefur greint frá varðandi það mál sem hv. 7. þm. Reykn. flutti áðan. Þar er um að ræða að það er einfaldlega farið fram á að þessi mál séu rædd hvert fyrir sig, þ.e. tollar, vörugjald og söluskattur, en ekki öll í bendu. Auðvitað eru þau skyld og ekkert óeðlilegt við það þó að það sé komið inn á öll málin undir svo að segja hverjum dagskrárlið, en óhjákvæmilegt er að það skapist aðstæður til að ræða málin aðgreint vegna þess að hér er um að ræða stór og þýðingarmikil mál, söluskattsmálið, upp á marga milljarða kr., sömuleiðis tollabreytingin og vörugjaldið. Hér er um að ræða stórkostlega íþyngingu á álögum á landsmenn og útilokað í raun og veru að efna hér til umræðu öðruvísi en það sé gert með þeim hætti sem hér var lagt til af hv. 7. þm. Reykn. og ég vænti þess að hæstv. fjmrh. verði við þeim óskum sem fram komu frá hæstv. forseta þessarar deildar um að þannig verði á hlutunum tekið eins og venja er til, enda er náttúrlega engin mynd að láta sér detta í hug einu sinni að ætla sér að taka þetta fyrir svona í hrúgu. Það er alveg yfirgengilegt og sýnir bara að hæstv. núv. ríkisstjórn lítur á Alþingi sem færiband en ekki sem lýðræðislega samkomu.