10.12.1987
Efri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1802 í B-deild Alþingistíðinda. (1337)
196. mál, söluskattur
Júlíus Sólnes:
Herra forseti. Það þarf dálítinn kjark til að fara hér í ræðustól eftir þessa dómadagsræðu. Var fróðlegt að heyra þá lýsingu sem hv. 7. þm. Reykv. gaf af þessum þremur tekjustofnafrv. hæstv. fjmrh. sem hann er núna að demba yfir þingið og þjóðina.
Ég tel að það sé hreinlega skylda stjórnarandstöðunnar að reyna að koma í veg fyrir að þessar breytingar nái fram að ganga. Hér er um að ræða svo hrikalega skattheimtu á almenning að orð fá varla lýst. Þessu er ágætlega lýst í DV í dag; með leyfi hæstv. forseta, þar sem þeir fréttamenn DV hafa reiknað út að skattaálögur eru að jafnaði 420 millj. kr. á hverri viku frá því að ríkisstjórnin kom til valda 8. júlí í sumar. Þegar maður les þessa frétt þá hugsar maður sem svo: Það hlýtur að vera fyrsta skylda okkar í stjórnarandstöðunni að reyna að koma þessari ríkisstjórn frá. Því að ef svo heldur sem horfir þá heldur hún áfram að bæta sköttum og álögum á almenning sem nemur 420 millj. kr. að jafnaði á viku hverri. Það verður björgulegt eftir því sem líður á kjörtímabilið ef svona heldur áfram.
Ég ætla að reyna að fara málefnalega í gegnum þessi þrjú frv. sem hér eru til umræðu í kvöld og reyna að halda mig við hvert frv. fyrir sig eins og við óskuðum eftir að hæstv. fjmrh. gerði þó að hann hafi reyndar talað mjög vítt og breitt og afar ruglingslega. Hann þvældi þessu öllu saman í einn hrærigraut og var oft erfitt að henda reiður á því hvað hann var að tala um. En ég ætla að reyna að halda mig við söluskattsfrv. í þessari ræðu þó svo að ég kunni að grípa til einhverra dæma sem ég tek úr hinum frv. tveimur.
Eitt af því sem mér finnst hjákátlegast að lesa í grg. með söluskattsfrv. er að þar er talað um að það muni verða til þess að verðbólga lækki. Mér er spurn: Hvernig getur verðbólga lækkað þegar lagður er 25% matarskattur á allar helstu matvörur almennings? Hvernig má það öðruvísi verða en að verkalýðshreyfingin muni koma með mjög harðar kaupkröfur í kjölfarið á slíkum álögum? Auðvitað hefur það áhrif á verðbólguna þannig að hún fer á stað. Hún fer upp á við aftur. Hæstv. fjmrh. hefur að vísu lýst því mjög fjálglega hvernig eigi að koma til móts við almenning í landinu með því að greiða niður örfáar af þeim matvörum sem almenningur notar daglega, þ.e. mjólk, kjöt og skyr, svo eitthvað sé nefnt, og reyndar blessað lambakjötið okkar. En þegar það er rifjað upp hefur oftlega komið fram í seinni tíð að almenningur í landinu hefur ekkert lengur efni á að borða lambakjötið, hvort sem á það er lagður 25% söluskattur eða ekki. Það skiptir raunverulega ekki lengur máli hvort það er niðurgreitt eða hvort þessi söluskattur kemur á lambakjötið því það eru allir hættir að borða það. Það kom fram hjá einni háttsettri embættismannafrú hér í einhverju blaðinu í sumar að hún væri löngu hætt að kaupa lambakjöt í matinn á sínu heimili. Hún hefði hreinlega ekki efni á því. Þess vegna hygg ég að launafólk hér í þessu landi skipti það afarlitlu máli hvort lambakjöt verði greitt niður þannig að söluskattsáhrifin komi ekki fram þar því það hefur enginn efni á því að borða það ágæta kjöt lengur.
Umframbirgðir af lambakjöti í landinu eru með ólíkindum. Það vita allir. Við erum látin borða gamalt kjöt, orðið tveggja ára segja sumir í verslununum, vegna þess að það hleðst upp af því að það hefur enginn efni á því að borða það. Ég ætlaði reyndar ekki að tala hér mikið um lambakjöt nema hvað ég gæti kannski varpað fram þeirri hugmynd að fleygt yrði svo sem eins og heilum árgangi til þess að við gætum aftur farið að borða nýtt kjöt, næsta ár a.m.k.
Hæstv. fjmrh. talaði í framsöguræðu sinni mikið um söluskattinn sem undanfara virðisaukaskattsins sem fyrirhugað er að leggja á 1. janúar 1989. Með því virðisaukaskattskerfi sem stefnt er að komum við til með að horfa upp á það að u.þ.b. 25 þúsund söluskattsgreiðendur verða í virðisaukaskattskerfinu. Það liggur við að helmingur vinnufærra manna á Íslandi verði sennilega að vera með bakpoka með þessum kössum sem hv. þm. 7. þm. Reykv. lýsti svo skemmtilega í ræðu sinni áðan. Helmingur vinnufærra á landinu verður söluskattsskyldur í virðisaukaskattskerfinu og þarf sennilega að halda á einhverjum svona kassa til þess að skila söluskattinum. Í raun og veru endar þetta með því að helmingur vinnufærra manna er orðinn nokkurs konar skattstofa fyrir fjmrn. til þess að reikna út og leggja á söluskatt, þ.e. virðisaukaskatt, á hina sem sleppa. Þeir eru nú að verða tiltölulega fáir meðal vinnufærra manna, þannig að það verður sem sagt helmingur vinnufærra manna í því að leggja söluskatt á hinn helminginn. Í gamla söluskattskerfinu voru þetta um 1800 söluskattsgreiðendur sem sáu um að greiða yfir 85% af söluskattinum.
Í kosningabaráttunni í vor létum við þm. Borgarafl. athuga með söluskatt í tolli. Þá rifjuðust upp fyrir mér gamlar hugmyndir Alþfl. um að leggja á söluskatt í tolli. Reyndar rifjaðist það einnig upp fyrir okkur að þegar söluskatturinn var lagður á upp úr 1960 voru um það miklar deilur hvort söluskattur skyldi lagður á í tolli eða hvort hann skyldi lagður á í smásölunni. Það endaði með því að söluskattur var lagður á í smásölunni, en það mun hafa stafað af því að heildsalar höfðu sterkari ítök á þeim árum. Þeirra rödd heyrðist betur hjá stjórnvöldum og Alþingi þegar var verið að innleiða söluskattinn hér fyrir tæplega 30 árum.
Söluskattur í tolli er ákaflega einföld innheimta á söluskatti. Hann er innheimtur með tollum. Í raun og veru mætti þá leggja niður allt söluskattskerfið í landinu á einu bretti. Hins vegar er eftir að meðhöndla samkeppnisiðnaðinn í slíku kerfi. Samkvæmt upplýsingum Þjóðhagsstofnunar munu vera um 2500 fyrirtæki í landinu sem teljast til samkeppnisiðnaðar. Samkvæmt þeim samningum sem við höfum gert bæði við Efnahagsbandalagið og Fríverslunarbandalagið ber okkur að láta þessi samkeppnisfyrirtæki greiða söluskatt. En það er afar einfalt að láta þessi fyrirtæki greiða nokkurs konar virðisaukaskatt, þrátt fyrir söluskatt í tolli, þannig að ekki yrði um uppsöfnun á söluskatti að ræða hjá þessum samkeppnisfyrirtækjum. Það var reiknað út af Þjóðhagsstofnun skv. okkar ósk að til þess að ná sömu tekjum og gamla söluskattskerfið gaf af sér hefði söluskattur í tolli þurft að vera um 28%. En þá voru allir aðilar innan lands lausir við söluskattinn ef frá eru talin þessi 2500 fyrrnefndu fyrirtæki í samkeppnisiðnaði. Hugsið ykkur alla þá þjónustuaðila sem hefðu ekki lengur þurft að hugsa um söluskatt, eða alla smásöluna sem hefði ekkert þurft að skipta sér af söluskatti frekar! Ég held að það hefði verið nær að athuga einhverjar slíkar leiðir í staðinn fyrir þetta hrikalega kerfi sem er verið að teyma okkur inn í.
Hver eru raunverulega rökin fyrir því að taka upp virðisaukaskatt á Íslandi? Jú, þetta er haft eftir erlendum fyrirmyndum. Ég sagði það einhvern tímann í blaðagrein að svo virtist sem embættismönnunum hér á Íslandi líði afar illa ef þeir vita af einhverju flóknu skattkerfi í nálægum löndum sem við höfum ekki tekið upp. Þeir beinlínis iða í skinninu eftir því að geta tekið slíkt kerfi upp. Við, í þessu litla landi norður í Dumbshafi þar sem ekki búa nema 250 þúsund hræður, við þurfum endilega að taka upp söluskattskerfi sem tugmilljóna þjóðir nota úti í Evrópu. Ef við skoðum dæmið nánar þá er afar einfalt að sjá hvers vegna stóru iðnaðarlöndin í Evrópu eru með virðisaukaskatt. Um það bil 80% af öllum neysluvörum, sem eru í smásölunni í löndum t.d. í Mið-Evrópu eða í Efnahagsbandalagslöndunum, eru framleidd innan lands. Það er ósköp eðlilegt að nota virðisaukaskatt í þjóðfélagi sem framleiðir yfir 80% af vörum til innlendrar neyslu í landinu sjálfu. Það eru aðeins um 20% af neysluvörum í þessum þjóðfélögum fluttar inn. Svo það er ofur eðlilegt að slík lönd geti ekki tekið söluskatt í tolli. Á Íslandi er þetta akkúrat öfugt. Þar eru um 80% af öllum neysluvörum á markaði innan lands fluttar inn, en aðeins um 20% sem er framleitt í landinu sjálfu, þannig að það er afar óeðlilegt og beinlínis rangt að taka upp sama söluskattskerfi á Íslandi og í hinum stóru iðnaðarlöndum Evrópu.
Fyrir u.þ.b. ári síðan var ég á ferðalagi í Evrópu og kom í tvö smáríki. Annað þeirra var Andorra, litla ríkið uppi í Pýreneafjöllunum, þar sem enginn söluskattur er á vörum í smásölu. Ég spurði einn verslunareiganda þar í verslunargötunni, þar sem tugþúsundir ferðamanna eru að versla og kaupa varning á mjög hagstæðu verði, hvernig stæði á því að þeir hefðu ekki söluskatt. Það setti að honum óstöðvandi hlátur, sem minnti einna helst á ástandið hér í deildinni rétt áðan, og sagði að hann hefði aldrei heyrt neitt vitlausara því að ef lagður yrði söluskattur á vörur í smásölu þá hyrfu allir ferðamennirnir og þjóðfélagið mundi verða af gífurlegum tekjum sem þeir skilja eftir í landinu.
Annað smáríki í Evrópu, Lúxemborg hefur heldur engan söluskatt. Hefði nú ekki verið nær fyrir sendimenn fjmrn., þegar stór hópur þeirra var sendur í ferðalag til útlanda til að kynna sér söluskattskerfi, virðisaukaskattskerfi nágrannalandanna, að fara til Lúxemborgar og kanna af hverju er ekki söluskattur í Lúxemborg. Í staðinn voru þeir sendir til Danmerkur. Þó svo ég hafi oft sótt hugmyndir til Danmerkur þegar þar hefur verið um góðar hugmyndir að ræða þá er það síðasta landið sem ég mundi fara til til að sækja góðar hugmyndir í sambandi við virðisaukaskatt, söluskatt og skattlagningu yfirleitt. Ég átti sjálfur heima um árabil í Danmörku og þekki vel hvernig þar hagar til um skattheimtu. Ég átti m.a. heima í Danmörku þegar staðgreiðslukerfi skatta var tekið þar upp 1. jan. 1970. Meiri aukning á skattbyrði á launþegum og almenningi hefur aldrei nokkurn tímann orðið í Danmörku, hvorki fyrr né síðar, en þegar staðgreiðslukerfi skatta var þar tekið upp áramótin 1969–1970. Ég er alveg viss um það að eitthvað svipað á eftir að gerast hér á landi þegar við göngum í gegnum þessar kerfisbreytingar hæstv. fjmrh. sem miða allar að því að gera lífið fyrir allan almenning hér á Íslandi óbærilegt.
Ég var að tala um danska virðisaukaskattskerfið, en því var hælt mjög í ræðu hæstv. fjmrh. Hann faldi að það væri mjög einfalt, skilvirkt og með því besta sem þekkist. Þegar Danir tóku upp virðisaukaskattskerfið fóru ótalmargir smáaðilar bæði í iðnaði og verslun beinlínis á hausinn því að þeir þoldu ekki virðisaukaskattinn sem setti á þá miklar byrðar, þ.e. þeir þurftu að eyða miklum tíma í útreikninga og uppgjör til ríkisins, sem þeir höfðu verið blessunarlega lausir við áður. Þá kemur aftur að því sem ég gat um áðan að það verður gaman að lifa í þjóðfélagi þegar helmingur vinnufærra manna eða þar um bil situr við að reikna út virðisaukaskatt til að leggja á hinn helminginn.
Í Danmörku hefur verið komið upp sérstökum verslunum, sem eru afar fróðlegar fyrir þá sem berjast svona ákaft fyrir virðisaukaskattskerfi. Það eru vöruhús sem kallast Metro. Þangað fara allir sem hafa söluskattsnúmer í virðisaukaskattskerfinu og kaupa sér lúxusvörur, neysluvörur, oft söluskattslausar, en á mjög hagstæðu verði vegna þess að þeir hafa söluskattsnúmer. Almenningur stendur þar fyrir utan dyr með sultardropann úr nefinu og horfir á dýrðina fyrir innan en fær ekki aðgang. Það er hinn hluti vinnufærra manna sem hefur ekki söluskattsnúmer. Það er kannski eitthvað þessu líkt sem við viljum fá hér á Íslandi, eins konar „berioskabúðir“ eins og eru notaðar í Rússlandi fyrir þá sem hafa yfir gjaldeyri að ráða. Þar er hægt að versla mjög ódýrt, kaupa ódýrar vörur ef menn hafa vestrænan gjaldeyri milli handanna. Eitthvað svipað gætum við hugsað okkur hér, þ.e. að við tækjum upp svona söluskattsbúðir í líkingu við Metrovöruhúsin í Danmörku þar sem þeir sem hafa virðisaukaskattsnúmer geta gert ódýr innkaup meðan allur almenningur horfir á og fær ekki notið.
Í ræðu hæstv. fjmrh. var fjallað ítarlega um matarskattinn. Bæði í ræðu hæstv. fjmrh., eins og hann orðaði það, og sömuleiðis í athugasemdum með þessu frv. sem hér liggur fyrir hv. deild, er því haldið fram að framfærsluvísitalan mun ekkert breytast við þessar söluskattsbreytingar. Það er talið að vísitölufjölskyldan noti u.þ.b. 20% af útgjöldum sínum til þess að kaupa mat og því muni útgjaldahækkunin aðeins verða 7% eða um 1800 kr. á mánuði eins og svo er sagt. Þetta er mikil blekking vegna þess að lágtekjufólkið notar miklu, miklu meiri hluta tekna sinna til að kaupa mat. Matur á Íslandi er með því dýrasta sem þekkist í öllum heiminum. Ég hef ferðast mjög víða og komið í flesta heimshluta. Ég hef aldrei nokkurs staðar orðið var við eins dýra matvöru og hér á Íslandi. Og nú á að hækka hana um 25% þó svo að það komi niðurgreiðsla á örfáar tegundir landbúnaðarvöru sem framleiddar eru í landinu sjálfu.
Ég hef áhyggjur af þeim ferðamannaiðnaði sem hér hefur vaxið á undanförnum árum og almenningur í landinu bindur miklar vonir við. Ég er ansi hræddur um það að næsta sumar þegar ferðamenn koma hingað til lands muni þeir flýja hljóðandi í burtu þegar þeir sjá verðlagið hér, einkum á veitingahúsum og í verslunum almennt á Íslandi. Það að setjast inn á veitingahús á Íslandi er munaður sem er með því dýrasta sem þekkist nokkurs staðar í heiminum. Þegar kominn verður fullur söluskattur á matvöru mega allir biðja guð að hjálpa sér. Það verða ekki aðrir sem fara út að borða á veitingahúsum en þeir sem geta annaðhvort látið opinbera aðila borga fyrir sig eða þá að fyrirtækin eru reiðubúin að taka það á sig sem risnukostnað.
Það hefði verið gaman að sjá einhverjar hugmyndir í þá átt að reyna að koma til móts við ferðamannaþjónustu landsmanna með því að athuga hvort ekki mætti reyna að taka upp svipað kerfi og í nágrannalöndunum, að ferðamenn geti fengið endurgreiddan söluskatt.
Ég gat um það áðan að ég hefði á ferðum mínum komið til smáríkisins Andorra þar sem mikil verslun fer fram til ferðamanna sem flykkjast þangað til að kaupa sér ódýra vöru. Það er einhver munur að sjá hvernig menn líta á hlutina par. Í staðinn fyrir að reyna að fæla ferðamenn frá Íslandi með því að hafa verðlag svo hátt í landinu að sá ferðamaður sem villist hingað til lands næsta sumar hlýtur að flýja hljóðandi upp í næstu flugvél og forða sér héðan. Það væri gaman að sj á einhvern tímann hugmyndir í þá átt að reyna að lækka vöruverð á Íslandi og gefa ferðamönnum kost á endurgreiðslu á söluskatti eins og þekkist í nágrannalöndunum til þess að styrkja stöðu ferðamannaþjónustu í landinu.
Ég mun hér á eftir þegar við tökum til umræðu vörugjaldsfrv. og tollafrv. ræða ítarlega um þá hluti, en mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra að því, af því að ég sé það á blaði einu sem ég hef tekið með mér í ræðustól, hvort muni vera söluskortur á skriðdrekum því að ég sé að þeir munu lækka úr 45% í 30% toll. Hins vegar munu geimför og skotvagnar fyrir geimför lækka úr 35% í 0%. Það er líklega gert fyrir lágtekjufólkið. Ég geri ráð fyrir því að þar sem skriðdrekar eru ekki lækkaðir nema úr 45% í 30% kunni það að vera af ótta við það að almenningur í landinu muni gera uppreisn gegn matarskattinum. Það er hins vegar ekkert á þessu blaði sem segir hvort þeir verði undanþegnir söluskatti. Má vera. Þeir eru ekki með í þeirri upptalningu sem er hér í söluskattsfrv.
Það eru margir skemmtilegir hlutir sem koma fram í bæði söluskattsfrv., í vörugjaldsfrv. og í tollafrv. og ég er ekki í nokkrum vafa um það að við eigum eftir að skemmta okkur dátt hér í deildinni í kvöld þegar við förum að tína til einstök atriði og einstök dæmi um þá kerfisbreytingu sem er hér á ferðinni.