10.12.1987
Efri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1807 í B-deild Alþingistíðinda. (1338)
196. mál, söluskattur
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég vil byrja á því að mótmæla þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið þegar þessi mál voru lögð fram og þegar hafa verið gagnrýnd. Það er nefnilega að mjög lauslega athuguðu máli sem við ræðum þessi veigamiklu frv. hér í deildinni í kvöld og það er alveg rétt sem kom fram í máli hv. 7. þm. Reykv. að fyrir marga stjórnarþingmenn eru þessi frv. jafnný og ókunn og fyrir okkur stjórnarandstæðinga. Sem dæmi um vinnubrögðin langar mig til þess að segja ykkur frá því að ég vissi ekki af fundi í Ed. hér í gær vegna þess að við kvennalistakonur sátum á þingflokksfundi og höfðum ekki fengið tilkynningu um að það yrði framhaldsfundur í Ed. Því sá ég þessi þrjú frv. ekki fyrr en á fundi Sþ. í morgun en þar var ég upptekin í umræðum þangað til langt fram yfir hádegi. Og það sér hver maður, sem rennir grun í hversu veigamiklar breytingar hér er um að ræða, hversu fáránlegt það er í raun að ætla sér að ræða þær af einhverju málefnalegu innsæi með svo stuttum fyrirvara. Þetta finnst mér vera fráleit vinnubrögð. Ég mun þó ræða stuttlega ýmislegt það sem mér hefur tekist að kanna, og þá sérstaklega í þessu umrædda frv. en ekki tala almennt um skattamál né heldur um hin tvö sem verða rædd hér á eftir.
Það er þá fyrst að í athugasemdum um frv. á bls. 6 stendur, með leyfi forseta:
„Á sínum tíma uppfyllti söluskatturinn að mörgu leyti ágætlega þær kröfur sem gerðar eru til neysluskatta almennt. Skattstofninn var stór, undanþágur fáar, skatthlutfallið lágt og framkvæmdin einföld og ódýr. Öll þessi atriði eru forsendur nauðsynlegs öryggis í framkvæmd skattheimtu af þessu tagi.“
Það er sem sé talin þarna meginforsenda í framkvæmd skattheimtu af þessu tagi að skatthlutfallið sé lágt. Þessi forsenda er ekki fyrir hendi í umræddu frv. um söluskatt. Skatthlutfallið er hátt. Það er 25%. Og það er enn verra að þessi háa skattprósenta skuli leggjast á jafnnauðsynlegar vörur og matvæli.
Kvennalistinn hefur alveg frá því í stjórnarmyndunarviðræðunum í vor lýst því yfir að við erum mjög mótfallnar því að skattheimta sé lögð á nauðsynjavörur eins og matvæli og sendum reyndar frá okkur ályktun strax í ágúst þegar þessi ríkisstjórn tilkynnti 10% hækkun á matvælum, ef ég má vitna með leyfi forseta:
„Kvennalistinn skorar á hina nýju ríkisstjórn að láta af áformum um 10% söluskatt á matvæli. Þegar hefur framkvæmd þessarar skattheimtu verið frestað til næstu mánaðamóta og vill Kvennalistinn benda nýjum valdhöfum á að nota þann tíma til að íhuga vandlega kosti og galla skattlagningar á matvæli.
Það þarf ekki að fjölyrða um áhrif skattlagningar á matvæli fyrir heimili landsins, en hitt vefst fyrir mörgum hvernig þessi nýja skattlagning samræmist eftirfarandi markmiðum nýrrar ríkisstjórnar:
Í fyrsta lagi: Lækkun verðbólgu.
Í öðru lagi: Tekjuöflun ríkisins verði gerð einfaldari og réttlátari og skilvirkari, eins og stendur í starfsáætlun ríkisstjórnarinnar.
Varðandi fyrra atriðið er vitað að hækkun framfærslukostnaðar hefur áhrif á rauðu strikin og er því verðbólguhvetjandi. Varðandi síðara atriðið má spyrja um réttlæti þess að hækka verð á þeirri vöru sem enginn getur verið án. Smávægileg hækkun elli- og örorkulífeyris og barnabóta til örfárra bætir engan veginn upp þá hækkun brýnustu nauðsynja og aukna verðbólgu sem af þessari aðgerð leiðir. Einfaldari verður innheimtan varla ef þrefalt kerfi verður í gangi í einni og sömu verslun, 25%, 10% og 0% söluskattur. Ef ríkisstjórnin heldur fast við áform sín mun hráefnið í grjónagrautinn hækka.
Hvað skal þá til ráða? Hvaða mataruppskrift ætlar ný ríkisstjórn að ráðleggja húsmæðrum landsins?" Enn eru þessar röksemdir sem hér koma fram í raun gildar vegna þess sem getið var einmitt í máli síðasta ræðumanns. Það er afskaplega líklegt að þetta verði verðbólguhvetjandi þegar kemur að kjarasamningum. Svo veigamiklar hækkanir á útgjöldum heimilanna hljóta að leiða til aukinna krafna um hækkað kaup. Það er enginn vafi á því. Það þarf enginn að fjölyrða um réttlætið sem fólgið er í því að leggja slíkan skatt á matvæli sem er stór útgjaldaliður fyrir láglaunafólk og miklu meiri útgjaldahluti en hjá þeim sem hærri tekjurnar hafa.
Síðan tek ég undir þá spurningu sem þegar er komin fram: Hvernig stendur á því að þegar þessar miklu skattabreytingar eru kynntar kemur engin nánari útfærsla á því hvernig barnabætur verða greiddar og t.d. elli- og örorkulífeyrir? Hvernig á að mæta þeim bótum sem nefndar hafa verið? Hvernig á að mæta þörfum fyrir bætur sem lofað hefur verið og nefndar hafa verið þegar þessi aukna byrði er lögð á þá sem minnstar tekjurnar hafa? Ég tek undir þessa spurningu og bið um málefnaleg svör.
Síðan er talað um að þessi skattheimta eigi síðar að leiða til virðisaukaskatts. Á síðasta þingi þegar lagt var fram frv. um virðisaukaskatt, þá lýsti Kvennalistinn sig andvígan slíku frv. í þeirri mynd sem það þá var, ekki síst vegna þess að við vorum á móti því að virðisaukaskattur legðist á lífsnauðsynjar eins og matvæli eins og þar var lagt til, þannig að þar gildir sama röksemdin. Og ég man ekki betur en hæstv. fjmrh. hafi líka verið á móti virðisaukaskatti þá. Hann taldi upp einar fjórar ástæður og ein þeirra — ég vona að hæstv. ráðherra heyri mál mitt, annars á hann erfitt með að svara mér á eftir — og ef ég man rétt þá var ein síðasta ástæðan, fjórða ástæðan til þess að hann var á móti þessu frv., sú að neyslustýringin, sú neyslustýring sem niðurgreiðsla á landbúnaðarafurðum er, var honum ekki að skapi eða, með leyfi forseta, eins og hann sagði þá í umræðu: Vegna þess að með hliðarráðstöfunum er verið að verja fé til neyslustýringar til þess að hafa beinlínis áhrif á neysluval og þar af leiðandi innkaup og markaðsstöðu fyrirtækja.
Svo mörg voru þau orð og þá átti hæstv. ráðherra einmitt við niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum. En hvað gerir hann nú, ráðherrann? Gerir hann það góða sem hann vill? Ég held ekki því að það er ekki bara sú staðreynd að söluskatturinn skuli lagður á matvörur sem kemur láglaunafólkinu sérstaklega illa, heldur vil ég einnig gera hér að umræðuefni þá neyslustýringu sem því fylgir.
Fyrst af öllu langar mig að minnast hér nokkuð á manneldismál, og reyndar minntist ráðherra á þetta í máli sínu áðan, en mig langar að gera það enn ítarlegar vegna þess að ég tel að þetta sé í raun afskaplega mikilvægt þegar til lengdar lætur. Það er nefnilega mjög erfitt að byrja á því að skapa góðar venjur, bæði með einstaklingum og ekki síst með þjóðum.
Í skýrslu heilbr.- og trmrh. um íslenska heilbrigðisáætlun, sem var lögð fram á síðasta þingi, eru tiltekin ákveðin manneldismarkmið. Þar er m.a. sagt, og ég vitna, með leyfi forseta:
„Næringarástand þjóðarinnar er talið gott, en það þarf að sjá um að allir fái nægan mat og að í honum séu rétt hlutföll frá næringarfræðilegu sjónarmiði. Leggja skal áherslu á framleiðslu og framboð hollrar, innlendrar fæðu. Það á að ýta með ýmsu móti undir neyslu kornmetis, fisks, kjöts sem er magurt, kartaflna og grænmetis.“ Og ég vona að hæstv. ráðherra sé að hlusta. „Stuðla skal að neyslu mjólkurvara með lágu fituinnihaldi með fræðslu og verðstýringu. Neysla matar sem hefur mikið af sykri og neysla sætinda svo og saltaðs matar á að minnka með upplýsingastarfsemi og verðstýringu.“
Þetta var ágæt stefna og er enn og hæstv. núv. ríkisstjórn var með á nótunum og hafði kynnt sér þetta þegar hún samdi og birti stefnuyfirlýsingu sína og starfsáætlun því að þar segir einmitt í kaflanum um heilbrigðismál á bls. 24:
„Samræmdar verði aðgerðir stjórnvalda til að framfylgja neyslu- og manneldisstefnu með heilbrigði landsmanna að leiðarljósi.“
Þetta var það sem hún ætlaði að gera. Síðan tiltekur hún nú að landbúnaðarvörur sérstaklega séu mikilvægasti neysluhluti almennings en hún tekur hvorki tillit til þeirra manneldissjónarmiða sem hafa komið fram í manneldismarkmiðum heilbrigðisáætlunarinnar né heldur til þeirra markmiða sem Manneldisfélag Íslands hefur sett sér. Mig langar að vitna í greinina sem hæstv. ráðherra minntist á sjálfur áðan. Það er grein í Morgunblaðinu frá 9. des. eftir Jón Gíslason, sem er næringarfræðingur og formaður Manneldisfélags Íslands. Hann segir, með leyfi forseta:
„Þegar samkomulag ríkisstjórnarinnar er athugað nánar kemur hins vegar í ljós að manneldismarkmið sem taka mið af því að efla heilbrigði þjóðarinnar hafa ekki verið höfð til hliðsjónar við mótun þess“ — þ.e. frv. Hann segir enn fremur:
„Manneldisráð Íslands, sem lögum samkvæmt skal vera heilbrigðisyfirvöldum til ráðuneytis um manneldismál, lauk á sl. ári við gerð manneldismarkmiða fyrir Íslendinga. Markmiðin eru sett fram í þeim tilgangi að efla heilbrigði þjóðarinnar með leiðbeiningum um fæðuval og eru byggð á þeim rannsóknum og þeirri þekkingu sem fyrir liggur um tengsl mataræðis og heilsu.“
Hann segir síðan frá því að þetta hafi verið kynnt hjá fyrrv. ríkisstjórn og hlotið góðar undirtektir. Síðan telur hann upp nákvæmlega þær fæðutegundir sem ég minntist á og fleiri sem allar hljóta þau örlög í þessu frv. að þær munu hækka.
Hann segir enn fremur: „Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt aðild að áætlun 33 Evrópuþjóða um forvarnarefni sem nefnt er Heilbrigði allra árið 2000. En Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur unnið að undirbúningi þess verkefnis á síðustu árum. Eitt af meginmarkmiðum áætlunarinnar er að vinna að öflugum forvörnum þannig að koma megi í veg fyrir sjúkdóma. Mataræði getur haft áhrif á heilsufar á fleiri vegu og tengsl mataræðis og heilsu er því einn þeirra þátta sem heilbrigðisyfirvöld verða að leggja áherslu á ef markmið áætlunarinnar eiga að nást. Einn veigamesti þáttur forvarna vegna langvinnra sjúkdóma, svo sem hjarta- og æðasjúkdóma, krabbameins, sykursýki og tannsjúkdóma, er fræðsla um rétt fæðuval.“
Og enn segir hann: „Manneldisfélag Íslands stóð fyrir ráðstefnu, manneldisstefnu á Íslandi 31. okt. og 1. nóv. sl. og þá ráðstefnu sótti ég einmitt. Þegar unnið var að undirbúningi þessarar ráðstefnu sendi félagið fjmrn. bréf þar sem óskað var eftir því að fulltrúi ráðuneytisins flytti erindi á ráðstefnunni um verðlagningu matvæla með tilliti til manneldismarkmiða. Ráðuneytið gat ekki orðið við þessari ósk og bar því við að nú væri unnið að veigamiklum breytingum á þessu sviði. Þegar samkomulag ríkisstjórnarinnar liggur nú á borðinu er ekki úr vegi að álykta sem svo að ráðuneytið hefði getað dregið ákveðinn lærdóm af því að taka þátt í ráðstefnunni og fylgjast með því sem þar fór fram. Ráðstefnu þessa sóttu u.þ.b. 100 manns og einnig má geta þess að þingflokkum var boðið að senda fulltrúa á hana.
Að gefnu tilefni kemur hér fram ályktun sem samþykkt var samhljóða á áðurnefndri ráðstefnu: „Þátttakendur á ráðstefnu Manneldisfélags Íslands fagna því sem fram hefur komið um fyrirhugaða vinnu að frv. um forvarnarstofnun ríkisins og skipan nefndar sem falið verður að móta opinbera manneldisstefnu hér á landi. Leggja verður áherslu á að þessum verkefnum verði lokið eins fljótt og auðið er þannig að stefnumótun og fræðslu varðandi tengsl mataræðis og heilsu verði á markvissan hátt komið á framfæri við almenning og þá aðila sem vinna við framleiðslu og sölu matvæla, kennslu og hollustuvernd.
Við mótun manneldisstefnu er nauðsynlegt að taka mið af öllum þáttum sem hafa áhrif á neysluvenjur fólks. Því er lagt til að manneldisstefna verði mótuð í samvinnu þeirra ráðuneyta sem fara með hollustumál, framleiðslumál, svo sem sjávarútveg, landbúnað og annan matvælaiðnað, fræðslu- og kennslumál, viðskipti og verðlagsmál.
Manneldisstefna og manneldismarkmið byggja á þekkingu og þar með stöðugum rannsóknum. Stjórnvöld verða því við mótun manneldisstefnu að tryggja að sköpuð verði aðstaða til rannsókna á neysluvenjum, efnainnihaldi matvæla og tengslum mataræðis og heilsu.“"
Þar hef ég lokið tilvitnun í þessa grein. Ég hef valið að veita henni svo mikinn tíma vegna þess að ég álít að þetta sé mjög mikilvægt. Það kom einmitt fram í máli hæstv. ráðherra áðan að vegna þess að það þurfti að einfalda var ekki ráðrúm til þess að byrja manneldisstefnuna góðu. Að vísu höfðu þeir tekið ofboð lítið tillit til þess með því að setja 14% vörugjald á sætindi. En nettóútkoman er sú að gosdrykkir t.d. hækka ekki í verði og sætindi í raun og veru standa í stað. Það er afskaplega lítil hreyfing á þeim vörum sem hefði þurft að verðleggja í samræmi við þessa heilbrigðisstefnu. Ef þetta er ævinlega viðhorfið þegar á að stíga fyrsta skrefið á þeirri löngu göngu að setja heilbrigðisstefnu á fót hérlendis, þá verður það aldrei gert vegna þess að það verður aldrei ráðrúm til þess. Og ég vil bæta við þriðju spurningunni til hæstv. ráðherra: Hvers vegna, einmitt þegar verið var að móta þessa stefnu, eins og segir í svari frá fjmrn., hvers vegna í ósköpunum gat ekki einn af öllum þessum mörgu mönnum sem vinna í ráðuneytinu gefið sér tíma til að fara á þessa manneldisráðstefnu til þess að heyra hvað þar var sagt í stað þess að sniðganga ráðstefnuna, sniðganga öll markmið hennar, sniðganga í raun markmið þessarar heilbrigðisáætlunar?
Það sem þetta þýðir í raun og veru, og ég ver tíma mínum í að tala um, er að eins og með mörg önnur góð mál hér á þinginu eru þau ekkert annað en pappírinn sem þau eru prentuð á. Þau eru ekki meira virði í raun og veru þegar til kastanna kemur. Það er afskaplega sorglegt, sérstaklega vegna þess að nú er um að ræða fólk sem er yngra, fólk sem hefur haft tök á að fylgjast með nýjum viðhorfum, fólk sem ætti að vita betur sem situr í ríkisstjórn. Og það er reglulega hryggilegt til þess að vita að það skuli ekki telja sig hafa ráðrúm til að taka tillit til svo mikilvægra mála.
Varðandi virðisaukaskattinn, sem ég minntist á áðan og ég lýsti því að við hefðum verið mótfallnar honum, langar mig að taka dæmi í þetta sinn frá Noregi. Hv. 7. þm. Reykn. tók dæmi frá Danmörku þegar virðisaukaskatturinn var settur á þar. Í Noregi hefur virðisaukaskattskerfið ekki skilað þeim árangri sem af því var vænst, hvorki til einföldunar, réttlætis eða skilvirkni. Árið 1972 ætluðu Norðmenn í Efnahagsbandalagið og til þess að undirbúa inngöngu sína þangað löguðu þeir skattakerfi sitt í þá átt að taka upp virðisaukaskatt. Síðan felldi þjóðin í atkvæðagreiðslu tillöguna um inngöngu í Efnahagsbandalagið þannig að Noregur sat uppi með virðisaukaskattkerfi. Reynsla þeirra er sú að menn hafa orðið að setja mismunandi skattþrep á vörur í virðisaukakerfinu. Þeim hefur ekki reynst það jafneinfalt og skilvirkt og þeir vonuðu. Aðilum í því kerfi sem annast innheimtu fjölgar næstum því þrefalt og það kallar á eftirlitsaðila. Rökin um það að menn eigi að hafa eftirlit hver með öðrum falla um sjálf sig vegna þess að það hefur ekki síður sýnt sig að menn bindast samtökum í raun til þess að forðast þetta eftirlit.
Í sambandi við þessi mismunandi skattþrep í virðisaukakerfinu vil ég benda hæstv. ráðherra á að hvergi í nágrannalöndum okkar hafa menn treyst sér eða látið sér detta í hug að skattleggja matvöru á þennan hátt. Það finnast mismunandi þrep í virðisaukaskattkerfi sem ná til matvæla eða þá þar sem söluskattur ríkir eru þau lægri eða jafnvel ekki skattur á matvælum. Meira að segja í Englandi hjá ríkisstjórn Margrétar Thatcher hefur tekist að halda matvælum tiltölulega ódýrum miðað við margt annað í þjóðfélaginu.
Og í sambandi við þessa stefnu í söluskattinum, bæði hvað varðar heilsufar og líka hvað varðar afkomu fjölskyldna í landinu og ekki síst láglaunafjölskyldna, þá langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra fjórðu spurningarinnar: Hvað með fjölskyldustefnu þessarar ríkisstjórnar? Hafði hæstv. fjmrh. eða ráðuneytið eða ríkisstjórnin sem slík samband við þann vinnuhóp sem sérstaklega var skipaður til þess að sinna málefnum fjölskyldunnar þegar ráðherra ákvað að setja á slíka skatta sem ganga svo nálægt velferð fjölskyldnanna? Var haft sérstakt samráð við þennan hóp? Ég vil spyrja að því. Og hefur hæstv. ráðherra í fimmta lagi hugleitt hver áhrif það hamstur hefur á þensluna í þjóðfélaginu, það hamstur sem nú á sér stað í þjóðfélaginu vegna þess að ákveðnar vörutegundir eiga að hækka eða þau auknu kaup sem verða þegar ákveðnar vörutegundir lækka?
Í því annríki sem ég lifi núna þar sem ég hitti fátt fólk á leið minni heiman frá og í vinnuna, þá hef ég samt þegar heyrt a.m.k. þrjú dæmi um það hve fólk hefur hamstrað vöru. Ég frétti af því að nánast engin spýta af parketi væri lengur til í bænum. Manneskju nokkra vantaði fjórar spýtur af ákveðnu parketi og það hristu allir höfuðið og sögðu: Elskan mín, það er alls staðar búið. Það er búið að kaupa upp allt parket. Það hækkar. Kona sem ég þekki hefur í marga mánuði hugleitt hvort hún ætti að kaupa sér ísskáp. Hún dreif í því fyrir nokkrum vikum, síðan þurfti lagfæringa eða breytinga við og hún hringdi í búðina og búðarstúlkan var grátandi af taugaæsingi. Það var allt rokið úr búðinni. Við hittum í dag mann sem verslar með ákveðna vörutegund sem á að hækka. Hann sagði: Ég leysti út gám í morgun. Hann er tómur. Veldur þetta ekki þenslu í þjóðfélaginu? Og hvað verður síðan með vörurnar sem lækka, þegar fólk fer að kaupa þær? Veldur það ekki líka þenslu í þjóðfélaginu sem ætlunin var þá að reyna að draga úr?
Ég hef miklar áhyggjur af því sem hv. 7. þm. Reykv. var að tala um áðan og það er tilfærslan á ráðstöfunartekjum heimilanna til ríkissjóðs á fyrri hluta næsta árs. Að vísu streymir talsvert af því fé aftur til baka en á síðari hluta ársins, þegar frádráttarliðirnir koma til og þá verður það vandamál ríkissjóðs sem reyndar þarf á því fé að halda einmitt á þeim árstíma. Ég hef miklar áhyggjur af þeirri tilfærslu ráðstöfunartekna sem verður á fyrri hluta ársins og ekki síður af því hve mikið af því fé í raun mun ekki skila sér aftur til fjölskyldnanna, svo ég nefni ekki hið háa fasteignamat sem nýlega hefur dunið yfir og þá skatta sem menn munu þurfa að greiða í samræmi við það.
Í raun má segja að flestum sem hafa lesið þessi frv. blöskri sú jafnaðarmennska sem í þeim birtist og sú einföldun sem þar verður á kostnað velferðar bæði einstaklinga og fjölskyldna. Það er eitt atriði sem ég kemst ekki hjá að minnast á í þessu frv., þó að það væru mörg sem mætti nefna en ég ætla að geyma mér það til seinni umræðu. Það gefst örugglega tækifæri til þegar við höfum fjallað um þetta í nefnd og hefur gefist betri tími til að lesa þetta frv. því að enn hef ég haft of lítinn tíma til þess. Ég var t.d. ekki einu sinni komin að þessari afskaplega spaugilegu setningu sem leysti talsverðan taugatitring úr mönnum með hlátrinum áðan um nuddstofurnar og vélbindingu heys. En hins vegar gat ég ekki komist hjá því að taka eftir 7. lið í 4. gr. á bls. 3, þar sem gefið er leyfi eða heimild til þess að fella niður söluskatt af afruglurum. Og þetta er á sama tíma sem þessi ríkisstjórn ætlar að skerða tekjur af aðflutningsgjöldum til Ríkisútvarpsins, sem stendur í hörðu stríði við samkeppnisaðila um auglýsingar sem fara reyndar þverrandi. Á fundi í fjh.- og viðskn. núna um daginn komu einmitt fulltrúar Ríkisútvarpsins til þess að kynna fjárhagsstöðu þess og það setti verulegan ugg að mönnum úr öllum þingflokkum, stjórnarliðum jafnt sem stjórnarandstöðuþingmönnum þegar þeir sáu fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins. Á sama tíma ætlar hæstv. fjmrh. að fella niður söluskatt af afruglurum fyrir samkeppnisaðila Ríkisútvarpsins. Mig langar einfaldlega til að spyrja: Hvers vegna? Hvers vegna gerir hann það? Stendur honum á sama um Ríkisútvarpið? Hverjar eru ástæðurnar og hverjar eru forsendurnar?
Ég ætla ekki að lengja mál mitt í þetta sinn. Ég hef aðeins tæpt á nokkrum atriðum og tekið sum talsvert ítarlega og algjörlega sleppt öðrum. En ég ætla ekki að verja meiri tíma í þetta mál nú en gefa mér lengri tíma og meira tækifæri þegar það hefur verið gaumgæft í nefnd og ég hef kynnt mér það betur.