10.12.1987
Efri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1862 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)

198. mál, tollalög

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Þar sem ég á ekki sæti í fjh.- og viðskn., sem fær þetta frv. ásamt þeim tveimur öðrum frv. sem hér hafa verið aðalumræðuefni í kvöld, get ég ekki staðist þá freistingu að segja hér nokkur orð þó reyndar sé orðið langt liðið kvölds eða komið fram á nótt. En ég skal reyna að stytta mál mitt eftir bestu getu.

Það hafa verið athyglisverðar umræður hér í kvöld um þessi frv., um þessa svokölluðu skattastefnu núv. ríkisstjórnar. Hér hafa margir farið á kostum og margt jafnvel skemmtilegt verið sagt. Einnig hafa þm. stjórnarandstöðunnar gagnrýnt harðlega vinnubrögð ríkisstjórnarinnar og þá ekki síst fyrir hversu seint mál koma fram, stór og umfangsmikil frv. eins og frv. sem nú er til umræðu, tollskráin. Það er vissulega hægt að taka undir þessa gagnrýni og það eru ekki síður þm. stjórnarliðsins sem eru óánægðir með hversu stuttur tími hefur gefist til að kynna sér þessi mál, eins og reyndar hæstv. ráðherrar hafa hér látið orð falla um og jafnvel beðist afsökunar á.

En eins og ég sagði: Það er áliðið kvölds og komið að seinasta dagskrármálinu og þar finnst mér vera ofurlítið ljós í myrkrinu. Nú er verið að ræða frv. sem fjallar um að fella niður eða lækka tolla á nauðsynjavörum, einnig til heimilanna. Það var athyglisverður málflutningur hv. 7. þm. Reykn. áðan þegar hann var að þylja upp vörugjaldslistann. Hann hafði mörg orð um að það væri ekkert gert í því að lækka eða fella niður vörugjöld á vörum sem tilheyrðu heimilunum. Í næstu andrá kom hann inn á byggingarefni, allt mögulegt sem tilheyrir byggingarefnum, og ef byggingarefni tilheyra ekki heimilunum, þá veit ég ekki hvað. Svo endaði hann með því að hann kom að búsáhöldum og borðbúnaði o.s.frv. og þá kom í ljós að margt af þessu er sem betur fer í þeim flokki þar sem verið var að lækka eða fella niður vörugjöld. (Gripið fram í). Já, ég vil taka undir það með hv. 7. þm. Reykn. að þetta er meginmálið þó að það hafi mátt skilja á hans málflutningi að hann væri aðeins að líta á þessi mál út frá eigin sjónarhorni. Hann fagnaði því alltaf ef það var lækkað vörugjald á einhverju sem hann ætlaði að fara að kaupa sér eða mundi kannski kaupa sér seinna. En auðvitað hlýtur það að hafa verið græskulaust gaman þegar hann minntist á að hann ætlaði að kaupa sér veiðistöng í sumar og þess vegna væri hann mjög ánægður með að vörugjald væri lækkað á veiðistöngum.

En það kom líka fram hjá honum fyrr í kvöld að „aumingja fólkið í þessu landi“, eins og hann orðaði það, ætti mjög bágt og almenningur hefði ekki efni á því að borða. En svo kom fram í ræðunni hér áðan að fólkið streymdi úr landi og það kæmi til baka með fullar hendur af alls konar varningi, heimilistækjum, ryksugum og guð má vita hverju. Og guði sé lof fyrir að það er ekki eins slæmt og mætti halda ástandið í þessu landi. Sem betur fer er það svo að fyrir þá sem eru verr settir eru gerðar ráðstafanir, bæði af þessari ríkisstjórn og þeim sem á undan hafa setið, til þess að bæta hag hinna verst settu. Og það er ekki bara Borgarafl. sem ber hag þeirra fyrir brjósti. Það gerum við öll, hver og einn einasti þm. á hv. Alþingi Íslendinga, og höfum alltaf gert.

En tollskráin sem hér liggur fyrir gefur mér tilefni til að rifja það upp frá árinu 1983, þegar þáv. ríkisstjórn tók við völdum, að gerðar voru ýmsar ráðstafanir til að bæta hag heimilanna og hinna lægst launuðu með svipuðum aðgerðum og verið er að tala um nú, með hækkun barnabóta, hækkun tryggingabóta og einn liðurinn var lækkun tolla á nauðsynjavörum heimilanna. Þetta var ein af fyrstu ráðstöfununum. Það var þáv. hæstv. fjmrh. sem mælti fyrir brbl. á hv. Alþingi, Albert Guðmundsson. Tollalækkanir á þeim tíma leiddu til þess að vöruverð lækkaði um 20–22% á nauðsynjavörum heimilanna. Vel að merkja voru þessar vörur samkvæmt tollskrá þá yfirleitt í 80% tollflokki, sem verið var að lækka niður í 40%, svo okkur hefur miðað nokkuð á leið. Þáv. hæstv. fjmrh. setti á laggirnar nefnd til að endurskoða tollskrána og því hefur verið haldið áfram og við erum nú að uppskera árangurinn af því verki.

Það vill svo til að ég var annar þeirra þm. í mínum þingflokki sem höfðu mikinn áhuga á tollalækkunum og tók þátt í því starfi, sem hv. 8. þm. Reykv. skýrði frá fyrr í kvöld, þ.e. að fara yfir tollskrá þegar þær ráðstafanir ríkisstjórnarinnar voru gerðar, sem ég gat um hér, í upphafi kjörtímabils hennar. Þetta finnst mér nauðsynlegt að rifja upp við þetta tækifæri.

En nú höfum við í höndunum þennan mikla lagabálk og er ekki að undra þó bókin sé þykk því hér er verið að fjalla um alla tollskrána. Það hefur farið fyrir mér eins og fleiri hv. þm. hér að ég hef ekki getað skoðað þessa skrá nógu ítarlega. En það eru þó nokkur atriði sem mig langar til að vekja athygli á eða spyrja hæstv. fjmrh. um og ég vil hafa þann fyrirvara á vegna þess hve lítill tími hefur gefist að e.t.v. er það af misskilningi sem spurt er eða gerðar athugasemdir.

Mig langar til að nefna almennt talað þau atriði í tollskránni sem varða innflutning á vörum sem varða öryggi í umferð, bifreiðavarahlutum, sem ég veit að lækka, og hlífðarhjálmum. Ef ég skil rétt er t.d. talað um hlífðarhjálma í 65. kafla, að þeir séu í 15% tolli. Nú er það staðreynd, sem flestir vita, a.m.k. þeir sem áhuga hafa á slysavörnum, að höfuðslys þeirra sem aka bifhjólum eða reiðhjólum eru mjög slæm. Þess vegna skiptir það miklu máli að slík öryggistæki séu á lágu verði. Ég hefði því talið að það væri engin goðgá að slíkir öryggishjálmar, ef þetta eru þeir sem ég er að tala um og falla undir tollflokk 65.06, væru settir niður í 0-flokk. Þetta er ábending.

Þá vil ég spyrja um hvers vegna hjólbarðakeðjur eru í 30% flokki, hlífðarkeðjur ýmiss konar sem eru einu atriðin á bls. 237 eða undir tollflokki 73.15 og eru í 30% en allt annað er í núlli. Kannski er þetta út af einhverjum verndarvörum eða slíku. Ef svo er kemur væntanlega skýring á því. Ef það er ekki hefði ég talið að þetta væri eitt af þessum öryggisatriðum sem ætti að vera í 0-flokki og getur ekki verið stór útgjaldaliður fyrir ríkissjóð.

Þannig langar mig einnig að benda á tollflokk 85.11. Það eru alls konar kveikikerti, ræsihreyflar og þess háttar, sent ég held að tilheyri líka bifreiðavarahlutum, og eru einnig í 30% tolli. Allt sem tilheyrir rafmagns-, ljósa- eða merkjabúnaði, í 85.12, er í 30% tolli. Ef ekki er einhver önnur ástæða hefði ég lagt áherslu á að þetta yrði sett niður helst í 0-tollflokk.

Hér er ég með í huga fyrirbyggjandi aðgerðir til að auðvelda bifreiðaeigendum að hafa þessa hluti í lagi. Þannig er með hljóðdeyfa og útblástursrör, tengsli og hluta þeirra. E.t.v. eru þetta svokallaðar verndarvörur og ástæðan sú að þær eru í 30% flokki, en ef það er ekki ættu þær einnig að fara niður í 0-flokk.

Að lokum langar mig að nefna barnavagna. Ég held að hæstv. fjmrh. hafi talað um að þeir lækkuðu um 48% og það er af hinu góða, en þeir eru samt sem áður enn í 10% tolli, en undir næsta tollflokki fyrir neðan — það eru einungis barnavagnar í 87.15, síðan er 87.16 — eru ýmiss konar tengivagnar, sjálfhlaðandi eða sjálflosandi tengivagnar og festivagnar til landbúnaðarnota í 0-flokki. Mættu ekki barnavagnar vera líka í 0-flokki?

Þá vil ég einnig nefna barnabílstóla. Ég held að hæstv. ráðherra hafi sagt að þeir lækkuðu um 16%. Ég finn þá ekki í skránni. Ég er ekki komin svo langt að ég sé búin að finna þá hérna. Ég veit ekki í hvaða tollflokki þeir eru, en mér fyndist að ef þeir eru ekki í 0-flokki ættu þeir að vera það.

Þetta eru örfá atriði sem mér hefur nú tekist að tína út úr. (SvG: Þeir eru í 87.15, barnavagnar.) Já, barnavagnar, en ég var að tala um barnabílstóla líka. Ég hefði viljað fá þá í 0-flokk ef þeir eru ekki í 0-flokki. Mér sýnist að miðað við að þeir lækki bara um 16% gætu þeir verið í hærri flokki.

Ég skal ekki hafa þessi orð mín öllu meiri, herra forseti. Mér fannst nauðsynlegt að koma þessum athugasemdum mínum að og viðhorfum almennt til þessara mála þó að ég geti tekið undir það, sem ýmsir sem hér töluðu á undan mér hafa sagt, að það hefði verið æskilegt og raunar nauðsynlegt að fá tækifæri til að skoða þessi mal betur, en ég mun stuðla að því að þessi mál komist áfram, þrátt fyrir þær athugasemdir sem ég hef gert og vænti að nefndin taki til athugunar.