20.10.1987
Sameinað þing: 5. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í B-deild Alþingistíðinda. (136)
21. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda fyrirtækja
Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Herra forseti. Hv. 10. þm. Reykn. spyr: „Hvað líður undirbúningi lagafrv. um staðgreiðslu opinberra gjalda fyrirtækja og fjármagnseigenda?" Svarið við því er tvíþætt: Annars vegar hvað varðar undirbúning lagafrumvarpa um efnislegar breytingar á löggjöf um tekjuskattsálagningu fyrirtækja og fjármagnseigenda. Hins vegar um innheimtuform, þ.e. staðgreiðslu.
Fyrst um efnislegar breytingar.
Í samræmi við starfsáætlun ríkisstjórnar er unnið á vegum fjmrn. að margháttaðri endurskoðun á tekjuöflunarkerfi ríkisins. Meginstefna þessarar endurskoðunar er að gera skattakerfið einfaldara og um leið skilvirkara. Einn þáttur þessa starfs er endurskoðun á skattlagningu félaga.
Í ágústmánuði voru skipaðir starfshópar innan fjmrn. til þess að vinna að tæknilegum undirbúningi á skattalögum og sá hópur sem fjallar um skattlagningu fyrirtækja og skattlagningu eignatekna er undir formennsku Indriða H. Þorlákssonar, skrifstofustjóra tekjusviðs ráðuneytisins. Gert er ráð fyrir því að niður verði felldar heimildir til frádráttar vegna tillaga í varasjóð og fjárfestingarsjóð. Afskriftareglur verði endurskoðaðar og jafnframt settar reglur er lúta að því að jafna skattalega meðferð mismunandi aðferða við fjármögnun. Svo sem kunnugt er hafa fjármagns- og kaupleigufyrirtæki boðið þjónustu sína m.a. á þeirri forsendu að kaupleigu fylgdi skattalegt hagræði umfram aðra fjármögnunarkosti.
Þessi endurskoðun skattlagningar á fyrirtæki mun jafnframt leiða til lækkunar skatthlutfalls, en eins og fram kemur í fjárlagafrv. er við það miðað að breytingarnar að því er þetta varðar skili ríkissjóði tekjuauka að fjárhæð 150 millj. kr. á næsta ári, en að því er varðar aðra þætti breytingar á skattalöggjöf og skattlagningu fyrirtækja vísast til grg. í fjárlagafrv. um auknar skattgreiðslur fyrirtækja samkvæmt því.
Um skattlagningu fjármagns- og eignatekna er það að segja að sú endurskoðun tengist óhjákvæmilega endurskoðun á skattlagningu fyrirtækja. Sömu grundvallarsjónarmiða mun gætt við endurskoðun þessara þátta sem annarra. Á þessu sviði er samræming skattalegrar meðferðar ákaflega brýn, enda á sér nú stað veruleg skattaleg mismunun eftir því hverrar tegundar eignatekjur eru. Eignatekjur eiga að sæta sömu skattalegu meðferð óháð eignarformi. Þetta verkefni er eitt með þeim flóknari og vandasamari við þessa endurskoðun skattalaga, en miðað er við að fjármagns- og eignartekjur verði skattlagðar. Um það geta flestir verið sammála. Vandinn er að finna sanngjarna leið sem ekki mismunar eignarformum í skattlagningu og þar með sparnaðarleið sem hvetur en letur ekki til sparnaðar.
Í annan stað er spurningin um innheimtufyrirkomulag, þ.e. hvað líður staðgreiðslufyrirkomulagi að því er varðar greiðslu af tekjusköttum fyrirtækja. Sá er eðlismunur á þessu tvennu að upplýsingar um raunverulegar tekjur fyrirtækja geta eðli málsins samkvæmt ekki legið fyrir fyrr en eftir árið. Þess vegna verður að nálgast þetta með öðrum hætti en staðgreiðslu af launatekjum sem gefnar eru upp frá mánuði til mánaðar. Vandinn er þá í því fólginn að koma sér upp áætlunarkerfi um fyrirframgreiðslu þannig að greiðslur nálgist þær tekjur sem aflað er á skattaári. Því er yfirlýst að við þá endurskoðun sem ég nú hef lýst efnislega er við það miðað að leita leiða til þess að fyrirframgreiðslur verði samkvæmt slíkum áætlunum þó að þær hugmyndir séu enn á vinnslustigi.
Þess skal svo getið að lokum að forstöðumaður þessa starfshóps er nýkominn heim úr sex vikna för um Bandaríkin þar sem hann kynnti sér veigamestu þætti þeirrar róttæku skattaendurskoðunar sem fram hefur farið þar í landi og þess er að vænta nú þegar hann er heim kominn að þetta starf verði til lykta leitt á næstunni, enda frv. að vænta á þessu hausti.