10.12.1987
Neðri deild: 21. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1875 í B-deild Alþingistíðinda. (1370)
110. mál, lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra
Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Aðeins örstutt. Ég vil byrja á því að lýsa stuðningi mínum við þá meginhugsun sem kemur fram í frv. en vil þó spyrja flm. þriggja spurninga.
Í fyrsta lagi: Hafa þær gert sér grein fyrir hvaða kostnað þetta hefur í för með sér fyrir þjóðfélagið út frá þeim grundvelli eða þeim rökum sem þær leggja fram í sambandi við 9. flokk kjarasamninga Verkamannasambands Íslands sem þá var í gildi? Hvað kostar þetta?
Í öðru lagi er eingöngu talað um húsmæður. Ég vil bara fá það staðfest hvort þetta eigi ekki líka við um karlmenn á þessum tímum jafnréttis?
Í þriðja lagi, sem er kannski hvað viðkvæmast í þessu þjóðfélagi, vildi ég gjarnan heyra skoðun Kvennalistans á því hvað snertir Samtökin 78 sem svo eru kölluð, hommar og lesbíur. Metið þið þann aðilann, sem er heima og sér um heimilið í því tilfelli, til húsmóðurstarfs og á hann þá ekki fullan rétt á þessum lífeyrisgreiðslum eins og aðrir?