10.12.1987
Neðri deild: 21. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1876 í B-deild Alþingistíðinda. (1372)

110. mál, lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Það er ekki annað hægt en að fagna þeim einhug sem ríkir meðal hv. þm. um það að bæta réttindi heimavinnandi fólks. Þó að menn séu e.t.v. ekki allir á einu máli um það hvort það sé gert með nákvæmlega þeim hætti sem frv. stingur upp á þá er það svo að menn eru greinilega opnir fyrir ýmiss konar breytingum á frv. sem ná mættu þó sama tilgangi.

Ég vil sérstaklega draga það fram að eftir því sem ég veit best er von á meiri háttar lífeyrissjóðafrv. frá hæstv. ríkisstjórn nú í vetur og ég hygg að það sé alveg nauðsynlegt að samræma þær hugmyndir sem menn hafa um lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks því frv. vegna þess að það er hugsanleg sú aðstaða að aðild að lífeyrissjóði heimavinnandi fólks gæti gefið jafnvel minni rétt en maki ætti í sumum tilfellum vegna aðildar að lífeyrissjóði útivinnandi maka. Það eru ýmis tilvik sem þarf að skoða vandlega í því sambandi, þannig að réttur þess sem í lífeyrissjóðnum er sé örugglega eins góður og hann getur verið og batni fremur í öllum tilvikum en að nokkur hætta sé á því að hann versni við einstakar aðstæður sem upp geta komið. Þetta er eitt atriði.

Ég tek líka undir þau atriði sem hv. þáv. 3. þm. Reykv., staðgengill minn, Sólveig Pétursdóttir, benti á í þessu sambandi að athuga þyrfti.

Ég minnist þess að þetta var töluvert rætt bæði um og eftir meðferð mála um þessi efni á þingi í fyrra og hæstv. þáv. fjmrh., núv. forsrh., sem var yfirmaður þess ráðuneytis þar sem stóra lífeyrissjóðafrv. er undirbúið, hafði hug á því að fá hugmyndir um þessi efni tekin þar inn. Enn fremur veit ég að þetta er efni sem fjölskyldumálanefnd ríkisstjórnarinnar er mjög hugleikið. En því miður er málið ekki alveg einfalt og það er ekki víst að það sé skynsamlegt að ganga frá þessu máli alveg einangruðu. Ég hygg að það sé skynsamlegast til þess að ná fram tilganginum að samræma það reglum um aðra lífeyrissjóði.

Að því er varðar hag heimavinnandi fólks almennt og þau atriði sem fram hafa komið hér á þingi í sambandi við ýmis lagafrv. þar sem menn hafa haft það að leiðarljósi að bæta og tryggja hag heimavinnandi fólks minni ég sérstaklega einmitt á meðferð skattalaga sem hv. síðasti ræðumaður, 10. þm. Reykn., minntist á hér áðan. Ég er sammála henni um að það er afar erfitt að finna flöt á því hvernig ætti að koma fram almennum launagreiðslum til heimavinnandi fólks. Slíkt hlýtur ævinlega að varða mjög fyrirkomulagsatriði í rekstri hvers heimilis, en annar þáttur þessa máls sem hefur afar svipuð áhrif er tiltölulega einfaldur en hefur hins vegar verið keyrður í kaf hvað eftir annað af þeim sem hafa verið annarrar skoðunar og það er einfaldlega sú hugmynd að viðurkenna báða aðila, báða þá sem reka saman heimili, jafnréttháa að því leyti til að það sé litið svo á að það sé mál hverra hjóna eða sambúenda hvort þeirra aflar teknanna, samanlögðum tekjunum sé skipt til helminga og skattur reiknaður af hvorum helmingi um sig. Þetta atriði hefur öðru hvoru komið upp og þá virðast menn einhvern veginn hafa ruglað saman annars vegar því hagræði og réttarbót sem þetta hefur í för með sér fyrir heimavinnandi aðilann og svo hins vegar því sem e.t.v. varðar stolt með vissum hætti, eftir því sem rökin eru sett fram, að það sé mannréttindamál að mega vera sjálfstæður skattþegn. Annað heyrist mér nú stundum núna en að það sé eitthvert sérstakt mannréttindamál að mega borga skattana. Menn vilja auðvitað borga sem minnsta skatta og það er kannski löngu liðin sú tíð að menn segðu að enga peninga inntu þeir af hendi með eins mikilli gleði eins og þá sem gengju til almannaheilla. Það var reyndar þáv. borgarstjóri í Reykjavík sem sagði þessi frægu orð fyrir löngu síðan og átti við útsvarið.

En hvað um það. Ég hygg að þau mannréttindi sem felast í því að bæta kjör hins heimavinnandi fólks gangi framar þeim réttindum sem felast í því að leyfa þeim að borga sérstaka skatta. Þess vegna skora ég nú á þm. Kvennalistans að styðja þær hugmyndir sem verða til þess að létta einmitt og bæta í gegnum skattkerfið kjör þeirra sem heima vinna. Það er sú leið sem er framkvæmanleg en ekki hin sem þm. nefndi og ég er henni sammála um að ekki er framkvæmanleg eða menn hafa a.m.k. ekki fundið framkvæmanlega leið enn þá til þess að hið opinbera ákveði allsherjar launagreiðslur inn á hvert heimili. Með því að skipta skatttekjum til helminga, hvort hjónanna sem aflar teknanna, það kemur ekki málinu við, er hið opinbera auðvitað ekki að meta í eitt skipti fyrir öll hvað á að telja að tekjuöflunin sé mikil, heldur er það bara rétt eins og annars staðar í þjóðfélaginu. Og auðvitað er það svo að tekjur hvers og eins ganga til hins sameiginlega heimilis. Ég tel að einmitt þetta atriði sé mikið jafnréttisatriði, að það sé viðurkennt að vinnuframlag beggja hjóna sé þeirra á meðal jafnmikils virði. Það myndum við viðurkenna með þessu.

Herra forseti. Ég geri mér grein fyrir að þetta er ekki umræða um skattalög, en með því að umræðan leiddist aðeins inn á þær brautir að fjalla um það hvernig best væri tryggt jafnrétti hjóna í fjárhagslegu tilliti, eða þeirra sem reka sameiginlegt heimili, tel ég að þetta skipti máli í því sambandi. Að öðru leyti tel ég aðalatriðið þetta að því er varðar þetta mál sem hér liggur fyrir og vissulega er um hið merkasta viðfangsefni. Það væri æskilegast fyrir framgang þess og tilgang að það kæmi með samræmdum hætti inn í hið stóra lífeyrissjóðafrv. sem ég veit ekki betur en að væntanlegt sé á nýju ári.