10.12.1987
Neðri deild: 21. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1880 í B-deild Alþingistíðinda. (1377)

110. mál, lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra

Forseti (Jón Kristjánsson):

Með tilliti til orða hv. 3. þm. Reykv., að fjmrn. fari með þessi mál nú og hér hafi orðið breyting á, fellst ég á þau rök að vísa málinu til fjh.- og viðskn., enda kom fram hjá flm. áðan að þeir leggja það í vald forseta að úrskurða um þetta efni. Ég ber því upp tillögu um að vísa frv. til fjh.- og viðskn. deildarinnar.