20.10.1987
Sameinað þing: 5. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
30. mál, náms- og kennslugögn
Fyrirspyrjandi (Pétur Bjarnason):
Herra forseti. Í maí 1982 hófst rekstur á kennslugagnamiðstöð í Reykjavík á vegum Námsgagnastofnunar. Hlutverk þeirrar miðstöðvar hefur verið að annast kynningar- og upplýsingaþjónustu fyrir kennara. Á grundvelli þessa starfs, sem hefur gefið mjög góða raun, var samþykkt á Alþingi vorið 1985 að láta kanna hvernig mætti koma hliðstæðri þjónustu við á landsbyggðinni.
Hv. 6. þm. Reykv. lagði fram fsp. á Alþingi í febrúar sl. um framkvæmd þáltill. og kom fram í svari ráðherra að þótt ekki hefðu borist svör frá öllum umsagnaraðilum mundi fljótlega verða tekin ákvörðun um aðgerðir.
Með frumkvæði Námsgagnastofnunar í árslok 1985 að dreifa fræðslumyndböndum á allar fræðsluskrifstofur utan Reykjavíkur til útlána þaðan var stigið stórt skref til jöfnunar og í raun hefur þetta framtak ásamt aukningu verkefna og ýmissa gagna á fræðsluskrifstofunum lagt grunninn að kennslumiðstöðvum þar. Mikið vantar þó á að þær geti risið undir nafni og ber því nauðsyn til að fljótlega verði tekin ákvörðun um hvort og með hvaða hætti starfsemi þessari verði komið á til hagsbóta fyrir nemendur á landsbyggðinni.
Í lögum nr. 63 um grunnskóla segir í 72. gr. að við hvern skóla skuli vera safn bóka og námsgagna og að þeim skuli vera þannig búið að því er varðar húsnæði, bókakost, önnur námsgögn og starfslið að þau geti gegnt því hlutverki að vera eitt af meginhjálpartækjum í skólastarfinu.
Það er flestum ljóst að þótt ná megi þessum markmiðum í stærri skólum er þess varla von að það verði hægt í hinum smærri. Þótt ekki sé verið að draga úr nauðsyn þess að búa hvern skóla sem best er afar nauðsynlegt að koma á sameiginlegum miðstöðvum fyrir smærri skólana sem auk þess þjóna hinum stærri til aukinnar fjölbreytni í kennslugögnum og verkefnagerð. Með hliðsjón af framansögðu leyfi ég mér að spyrja hæstv. menntmrh. á þskj. 30, með leyfi hæstv. forseta:
„1. Hvað líður könnun á því hvernig hagkvæmast verði að veita skólum aðgang að námsgögnum, kennslutækjum og hjálpargögnum þannig að tryggt verði að allir nemendur, hvar sem þeir búa á landinu, geti hagnýtt sér fjölbreytt kennslugögn í námi, sbr. þál. frá 13. júní 1985?
2. Eru fyrirhugaðar sérstakar fjárveitingar til þessara mála á næstunni?
3. Hyggst menntmrh. beita sér fyrir því að kennslugagnamiðstöðvar verði formlega settar á stofn í fræðsluumdæmum?"