10.12.1987
Neðri deild: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1915 í B-deild Alþingistíðinda. (1424)
194. mál, verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Hæstv. forsrh. hefur gert ítarlega grein fyrir því frv. sem hér er til umræðu og ég ætla ekki miklu þar við að bæta. Mál þetta á sér mjög langan aðdraganda. Um áratuga skeið hefur staðið yfir mikil umræða um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Sveitarstjórnarmenn hafa rætt þessi mál á ótal fundum og gert um þau ályktanir og tillögur. Stjórnmálaflokkarnir hafa einnig fjallað um þetta efni. Yfirleitt hefur öll þessi umræða beinst að því að færa aukin völd og verkefni til sveitarfélaganna. Af nógu er að taka varðandi nefndarálit og tillögur um þetta efni, en ég ætla aðeins að geta hér um tvennt, álit nefndar sem þáv. félmrh., Svavar Gestsson, skipaði 1982 og ályktun stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 1985.
Á árinu 1982 skipaði þáv. félmrh., Svavar Gestsson, nefnd til þess að vinna að fyrirhuguðum samningum um verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga.
Í nefndinni voru Egill Skúli Ingibergsson verkfræðingur, Gunnar Rafn Sigurbjörnsson fulltrúi, Jón Ormur Halldórsson, aðstoðarmaður forsrh., Jón Sveinsson bæjarfulltrúi, Jón G. Tómasson, formaður Sambands ísl. sveitarfélaga, Logi Kristjánsson bæjarstjóri, Ölvir Karlsson oddviti og Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri. Vegna ráðherraskipta lauk þessi nefnd ekki störfum, en meðal þeirra mála sem hún skilaði áliti um var bygging dagvistarheimila fyrir börn, bygging félagsheimila og íþróttamannvirkja. Nefndin lagði til að öll þessi verkefni væru á vegum sveitarfélaga og kostuð af þeim, en þessi verkefni eru einmitt uppistaðan í þeim verkefnaflutningi sem þetta frv. gerir ráð fyrir.
Í febr. 1985 skrifaði þáv. félmrh., Alexander Stefánsson, stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga bréf og óskaði eftir afstöðu og tillögum varðandi breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Stjórn sambandsins svaraði þessu bréfi í apríl á sama ári. Tillögur hennar á þessum tíma eru í algjöru samræmi við það sem lagt er til í þessu frv.
Á þessum tíma sátu í stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga Björn Friðfinnsson framkvæmdastjóri, Helgi Bergs bæjarstjóri, Jónas Ólafsson sveitarstjóri, Árni Emilsson hreppsnefndarmaður, Þórður Skúlason sveitarstjóri, Olvir Karlsson oddviti og Haraldur Sigurðsson bæjarfulltrúi.
Eftir að ég tók við starfi félmrh. hef ég setið allmarga fundi sveitarstjórnarmanna þar sem verkaskipting ríkis og sveitarfélaga hefur verið til umræðu. Á þessum fundum hafa sveitarstjórnarmenn fagnað því að nú eigi að taka fyrsta skrefið í þessu máli og láta ekki lengur sitja við orðin tóm.
Ég tel rétt að nefna hér aðeins þá breytingu á jöfnunarsjóðskafla tekjustofnalaganna sem frv. gerir ráð fyrir. Þessi breyting er að vísu fyrst og fremst tengd þeim áfanga í verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sem stefnt er að um næstu áramót. Sérdeildinni sem koma á upp við Jöfnunarsjóð er þó ættað að vera fastur liður í starfsemi sjóðsins til frambúðar. Þetta held ég að sé ákaflega mikilvægt skref í þá átt að sjóðurinn styrki meira en verið hefur minni og vanmegnugri sveitarfélög og verði þannig í raun meiri jöfnunarsjóður en verið hefur.
Jafnhliða því sem undanfarið hefur verið unnið að því að móta framkvæmdina varðandi þennan fyrsta áfanga í breytingum á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga hefur verið hugað að þeim næsta. Ég hef skipað nefnd með fulltrúum Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi ráðuneyta til að undirbúa framkvæmd næsta skrefs í flutningi verkefna milli ríkis og sveitarfélaga og til að fjalla um uppgjör og eignatilfærslu sem því tengjast.
Herra forseti. Ég vona að frv. það sem hér er til umræðu eigi greiða leið á Alþingi og okkur takist í þessari lotu að færa aukin völd og verkefni til sveitarfélaganna. Það er í fullu samræmi við áratuga umræðu sveitarstjórnarmanna og yfirlýsingar stjórnmálamanna í þessu efni.