10.12.1987
Neðri deild: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1943 í B-deild Alþingistíðinda. (1433)

194. mál, verkaskipting ríkis og sveitarfélaga

Forsætisráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja mjög þessa umræðu sem hefur verið um margt gagnleg og málefnaleg. Það er eðlilegt að menn hafi svolítið mismunandi sjónarmið um hvaða verkefni eðlilegt er að færa frá ríki til sveitarfélaga. Þar geta almenn pólitísk viðhorf skipt mönnum í ólíka hópa og ég ætla ekki að fara í langar umræður um þau efni eða rökstuðning af pólitískum toga fyrir verkefnaflutningi. Ég tel að þau sjónarmið hafi þegar komið fram hér og reyndar megi ráða af ræðum þeirra hv. þm. sem hér hafa tekið til máls að almennur stuðningur er fyrir því að flytja verkefni í auknum mæli til sveitarfélaga þar sem um er að ræða verkefni sem líklegt er að sveitarfélög fari, ef þannig má að orði komast, nærfærnari höndum um en stjórnvöld sem fjarri eru þeim hagsmunum sem um er að tefla. Á hinn bóginn er svo eðlilegt að í umræðum um mál sem þetta komi fram nokkrar áhyggjur um hvort með nægjanlega tryggum hætti sé staðið að tilflutningi fjármuna þannig að sveitarfélögin standi ekki verr að vígi og að sá tilflutningur komi ekki ójafnt niður með tilliti til stærðar sveitarfélaganna.

Ég ætla af þessum sökum að vitna í stuttan kafla í nál. sem liggur til grundvallar þeim tillögum sem hér eru fram komnar, en þar segir, með leyfi forseta:

„Þetta er tekið fram hér vegna þess að það er algjör forsenda fyrir tillögum þessarar nefndar að jafnhliða tilflutningi þeirra verkefna sem þær gera ráð fyrir fái sveitarfélögin auknar tekjur og eða útgjöld þeirra verði minni þannig að staða þeirra í heild verði ekki lakari en nú er. Einnig að jafna aðstöðu sveitarfélaganna með tilliti til tekjumöguleika og verkefna sem þau sinna. Eðlilegt er að ríkisvaldið bæti sveitarfélögunum upp þennan mun og sú jöfnun gangi lengra en núverandi fyrirkomulag felur í sér.“

Sá áfangi í framkvæmd tillagna nefndarinnar sem þetta frv. gerir ráð fyrir miðar að því að ná því markmiði sem nefndin setur hér og ríkisstjórnin hefur einsett sér það með þessu frv. og þeim lagaákvæðum sem hér eru um tilflutning á fjármagni að þessu markmiði verði náð. Ég tek að því leyti undir þau sjónarmið sem m.a. komu fram hjá hv. 4. þm. Norðurl, e. og hv. 7. þm. þess sama kjördæmis, en tek undir og ítreka að það er markmið frv. að þessari stefnumörkun sé náð.

Það var að því spurt hvort stefnt væri að afgreiðslu þessa frv. fyrir jólaleyfi þm. og svo er, enda tengist þessi verkefnaflutningur líka því fjárlagafrv. sem nú er til lokameðferðar á hinu háa Alþingi. En um leið tek ég undir þau ummæli hv. formanns félmn. að æskilegt væri að nefndir þingdeildanna gætu haft sem best samráð um umfjöllun málsins á milli umræðna.

Það var að því spurt hvernig fara ætti með skuldir landshafna. Þá minni ég á að í hafnalögum er gert ráð fyrir að viðræður fari fram milli samgrn. og þeirra sveitarfélaga sem hlut eiga að landshöfnum og að heimilt verði að ríkissjóður yfirtaki framkvæmdaskuldir þessara hafna.

Þá var enn fremur spurt að því hvert yrði hlutfall sérdeildarinnar í Jöfnunarsjóði. Í upphafi er gert ráð fyrir að hér verði um ákveðna upphæð að ræða, en í framhaldi málsins, ef þessum verkaskiptingaráformum verður fram haldið, verður að ákveða þessari deild tiltekið hlutfall af Jöfnunarsjóði.

Varðandi úthlutunina er gert ráð fyrir því að kveða á um með hvaða hætti hún fer fram í reglugerð að höfðu samráði við sveitarfélögin.

Þá var jafnframt spurt um skólaakstur og hvaða áhrif frv. hefði á kostnaðargreiðslur við skólaakstur. Því er til að svara að þetta frv. hefur ekki nein áhrif á kostnaðargreiðslur varðandi skólaaksturinn. Frv. breytir ekki þeim reglum sem nú gilda þar um. Sama svar á reyndar við þá spurningu sem fram var borin um kostnaðarhlutdeild í íþróttamannvirkjum sem tengjast skólabyggingum. Þetta frv. gerir ekki ráð fyrir breytingum á þeim reglum sem nú gilda þar um.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til á þessu stigi að víkja að fleiri atriðum, en geri ráð fyrir að frv. fái vandlega skoðun í nefnd, en hv. þingnefnd greiði jafnframt fyrir skjótum framgangi málsins hér.