14.12.1987
Sameinað þing: 32. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (1490)
1. mál, fjárlög 1988
Frsm. minni hl. fjvn. (Margrét Frímannsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka nefndarmönnum í fjvn. samstarfið í nefndinni, einnig starfsfólki Hagsýslunnar, Ríkisendurskoðun og starfsfólki Þórshamars. En síðast en ekki síst vil ég þakka starfsmanni fjvn., Ásdísi Sigurjónsdóttur, fyrir mjög gott samstarf.
Starf fjvn. er mikið og strangt og þá sérstaklega hjá meiri hluta nefndarinnar sem ég tel að hafi skilað góðu starfi, sérstaklega ef tekið er mið af þeim starfsaðstæðum sem hæstv. ríkisstjórn bauð nefndinni, en ég mun koma betur að því seinna í ræðu minni.
En þó svo að samstarf nefndarinnar hafi verið með ágætum eru vissulega skiptar skoðanir nefndarmanna á frv. ríkisstjórnarinnar til fjárlaga fyrir árið 1988. Brtt. meiri hl. fjvn. bera, það þó með sér að ekki hafa þeir nefndarmenn verið mjög ánægðir með þær tölur sem birtust upphaflega í frv. og vissulega hafa þeir lagt til breytingar sem við minnihlutamenn nefndarinnar teljum allar vera spor í rétta átt.
Um þá stefnu sem frv. birtir er vissulega ágreiningur sem m.a. birtist í framlögðum brtt. stjórnarandstöðuflokkanna og í nál. minni hl. fjvn. á þskj. 260 sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Öllum er ljós sú staðreynd að frá árinu 1984 höfum við búið við eitthvert mesta góðæri sem þekkst hefur. Það er líka staðreynd að þrátt fyrir hagstæðar ytri aðstæður í þjóðarbúskapnum, aukinn afla, hækkun afurðaverðs á erlendum mörkuðum, lækkun olíuverðs, mikla aukningu landsframleiðslu og hærri þjóðartekjur á mann en áður hafa þekkst blasir við að á þessum árum hefur ríkissjóður verið rekinn með gífurlegum halla. T.d. var halli ríkissjóðs árið 1986 1876 millj. kr. og allt bendir til að á árinu 1987 verði ríkissjóði skilað með rúmlega 2000 millj. kr. halla (upphæðir á verðlagi hvors árs).
Halli ríkissjóðs þessi ár er ekki til kominn vegna þess að svo vel hafi verið gert við almenning í landinu á tímum góðæris því að auknar skattaálögur og niðurskurður samfélagslegrar þjónustu einkenna tímabilið og afgreiðslu fjárlaga ár hvert. Fyrir óráðsíunni stóðu þáverandi stjórnarflokkar, Framsfl. og Sjálfstfl., sem eftir kosningar sl. vor fengu svo Alþfl. til liðs við sig sem nú fer með fjármál ríkisins. Þrátt fyrir aðild Alþfl. að ríkisstjórninni hefur ekki orðið grundvallarstefnubreyting við framlagningu fjárlagafrv. önnur en sú að nú á að reka ríkissjóð í jafnvægi sem vissulega er jákvætt og stjórnarandstöðuflokkarnir hljóta að styðja.
Hitt er svo alveg ljóst að til að ná jafnvægi í ríkisfjármálum á að afla tekna með auknum sköttum á almenning, en eins og áður sleppa þeir sem góðærisins nutu að mestu leyti. Þrátt fyrir þessa auknu skattálagningu á almenning er enn um að ræða niðurskurð til félagslegra framkvæmda. Þannig á t.d. ekki króna að fara úr ríkissjóði í Vegasjóð á næsta ári og felld eru niður bein ríkisframlög til dagvistarstofnana og til tónlistarfræðslu barna.
Nú við 2. umr. fjárlaga hefur ríkisstjórnin birt landsmönnum skattastefnu sína. Frá því að ríkisstjórnin tók við lítur dæmið þannig út:
1. Þegar ríkisstjórnin var mynduð var ákveðið að leggja á nýja skatta sem nema um 3700 millj. kr. á verðlagi fjárlagafrv.
2. Þegar fjárlagafrv, var lagt fram var bætt við um 2000 millj. kr. á verðlagi fjárlagafrv.
3. Nú þegar gengið er frá fjárlagafrv. til 2. umr. er enn bætt um betur. Að sögn fjmrh. er þar samtals um að ræða 2050 millj. kr.
Að auki telur fjmrh. að veltubreytingar færi ríkissjóði um 600 millj. kr. og loks telur hann að betri innheimta söluskatts skili um 400 millj. kr.
Samtals er því um að ræða 8750 millj. kr. tekjuaukningu ríkissjóðs á næsta ári samkvæmt tölum fjmrh. sjálfs.
Þetta segir þó ekki alla söguna því að skattastefna ríkisstjórnarinnar eykur mismunun í þjóðfélaginu. Lágtekjufólk ber þyngri byrðar en áður vegna matarskattsins, en alls nemur söluskattur á matvælum um 5750 millj. kr. Jafnframt verður skattabyrði hátekjumanna hlutfallslega minni en áður vegna þess að efstu skattþrep eru afnumin samfara staðgreiðslukerfi skatta.
Hlutfall skatttekna ríkissjóðs af vergri landsframleiðslu verður hærra en verið hefur á síðustu áratugum. Þannig efna ríkisstjórnarflokkarnir fyrirheit sín um lækkun skatta. Á sama tíma blasir það við að fyrirtækjunum, stóreignamönnum og hátekjufólki er hlíft.
Myndin af stjórnarstefnunni sem blasir við þjóðinni nú eftir áramótin og birtist í fjárlagagerðinni er þessi:
Matarskattar verða 5750 millj. kr. — maturinn dýrari en nokkru sinni fyrr. Skattbyrði tekjuskatts sem hlutfall af launum greiðsluárs hækkar um 25%. Fasteignagjöld munu hækka um mörg hundruð milljónir kr. þar sem fasteignamat hækkaði 50 milljarða umfram verðlagshækkanir frá árinu 1986 til ársins 1987. Þeir sem notið hafa vaxtaafsláttar — tugir þúsunda skattgreiðenda — fá ekki vaxtaafslátt fyrr en á síðari hluta næsta árs. Útsvör hækka að raungildi milli áranna 1987 til 1988 samkvæmt upplýsingum fjmrh. um 7–9%. Félagsleg þjónusta er dregin saman eða felldur út hlutur ríkisins í framlögum, t.d. til dagvistarmála og tónlistarskóla. Útlit er fyrir að viðskiptahallinn á þessu ári verði tvisvar sinnum meiri en spáð hafði verið fyrir fáeinum vikum. Búast má við að viðskiptahallinn verði tvisvar sinnum hærri en ráð var fyrir gert á næsta ári að óbreyttu. Reikna má með að kaupmáttur launa fari aftur minnkandi og ráðstöfunartekjur heimilanna munu dragast saman á næsta ári samfara aukinni skattlagningu. Vextir eru hærri hér en nokkurs staðar annars staðar í þeim löndum sem við viljum helst miða okkur við í lífskjörum. Fastgengisstefna ríkisstjórnarinnar veikist með hverjum deginum, ekki aðeins vegna lækkunar dollarans heldur líka vegna beinna aðgerða ríkisstjórnarinnar í formi skattahækkana og vaxtahækkana. Auk þess eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar verðbólguhvetjandi. Þannig er efnahagskerfið allt í uppnámi nú við gerð fjárlaga fyrir árið 1988.
Auk þess er ljóst að stjórnarflokkarnir eiga erfitt með að koma sér saman um ákvarðanir sem dragast oft vikum saman, jafnvel um einföldustu mál. Stjfrv. stranda í þinginu hvað eftir annað vegna ósamkomulags stjórnarflokkanna, milli flokka og eins innan flokka. Allt verður þetta til þess að við komandi áramót ræður óvissan ríkjum hvarvetna: á heimilunum, hjá útflutningsatvinnuvegunum, í stjórnmálalífinu og hjá þjóðinni í heild. Niðurstaða óvissunnar mun síðan óhjákvæmilega birtast á vinnumarkaðnum.
Það er því ljóst að ráðstöfunartekjur heimilanna munu skerðast verulega á næsta ári, einkum á fyrri hluta ársins vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar á sama tíma og ljóst er að samdráttur í þjóðartekjum kemur niður á launafólki ef ekki verður gripið til sérstakra aðgerða til þess að tryggja kjör fólks.
Minni hl. nefndarinnar er samþykkur því markmiði ríkisstjórnarinnar að reka ríkissjóð hallalausan. Minni hl. vill hins vegar aðrar leiðir að markmiðinu bæði hvað varðar öflun tekna og forgangsröð gjaldaliða. Minni hl. vill líka með þessu nál. vekja athygli á ótryggum verðlagsforsendum frv. til fjárlaga fyrir árið 1988.“
Og það, virðulegi forseti, er reyndar meginmálið. Við 1. umr. um frv. vakti stjórnarandstaðan athygli á ótryggum verðlagsforsendum þess. Á þeim tíma sem liðinn er frá framlagningu frv. hefur ekkert breyst í þeim efnum til batnaðar, þvert á móti.
Þó enn ríki veruleg óvissa um ýmsar mikilvægar forsendur þjóðhagsspár fyrir árið 1988 hefur Þjóðhagsstofnun látið fjvn. í té upplýsingar um helstu breytingar sem orðið hafa á efnahagshorfum fyrir árið 1988 frá því að fjárlagafrv. var lagt fram á hv. Alþingi í októbermánuði sl. Vissulega eru allar þessar upplýsingar með fyrirvörum. Þjóðhagsstofnun vinnur að endurskoðun þjóðhagsspár fyrir næsta ár og ekki liggja enn fyrir endanlegar tölur um áhrif ýmissa þeirra frumvarpsbálka sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á síðustu dögum á tekjuhlið fjárlagafrv.
Það liggja þó fyrir ýmsar þær upplýsingar sem sýna að verulega hefur sigið á ógæfuhliðina hvað varðar það að forsendur fjárlagafrv. standist.
Viðskiptakjör hafa versnað verulega og eru nú mun lakari en reiknað var með í október. Ástæðurnar eru gengislækkun bandaríkjadollars í kjölfar verðhruns á hlutabréfamörkuðum. Álverð reiknað í dollurum hefur lækkað. Óvissa ríkir um verð á sjávarafurðum. Horfur um hagvöxt og þar með aukningu almennrar eftirspurnar í iðnríkjum á næsta ári eru lakari en reiknað var með. Í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1988 var gert ráð fyrir að viðskiptakjör í heild yrðu óbreytt milli áranna 1987 og 1988, en nú má reikna með að þau verði lakari á næsta ári en þau eru nú.
Nú er einnig fyrirsjáanlegt að halli á viðskiptum við útlönd á þessu ári verður miklu meiri en gert var ráð fyrir í október. Þá var reiknað með að viðskipahalli á þessu ári yrði um 2,4 milljarðar kr. sem svarar til rúmlega 1 % af landsframleiðslu. Nú er hins vegar útlit fyrir að þessi tala hafi tvöfaldast og að öllu óbreyttu má því spá að viðskiptahalli næsta árs, sem reiknað var með að yrði um 4,5 milljarðar kr. eða um 2% af landsframleiðslu, verði mun hærri tala.
Að mati Þjóðhagsstofnunar hefur afkoma útflutningsfyrirtækja almennt versnað að undanförnu þar sem innlendur kostnaður hefur hækkað meira en verð útflutningsafurða í íslenskum krónum. Lækkun bandaríkjadollars hafði slæm áhrif og vaxtastefna hæstv. ríkisstjórnar hefur ekki orðið til þess að laga afkomu útflutningsfyrirtækjanna því eins og menn vita eru vextir hærri hér en nokkurs staðar í þeim löndum sem við miðum okkur svo gjarnan við.
Verst kemur þetta niður á fiskvinnslunni, sérstaklega frystingunni sem nú er samkvæmt upplýsingum Þjóðhagsstofnunar rekin með verulegu tapi, botnfiskvinnslan í heild með tapi sem nemur 3–5% af tekjum, þar af áætlað tap í frystingu 7–9% af tekjum.
Þessar upplýsingar komu þó ekki í veg fyrir þau áform hæstv. fjmrh. að leggja launaskatt á fiskvinnsluna. Útflutningsatvinnuvegir landsmanna hafa fengið að kenna illilega á stefnu ríkisstjórnarinnar og búa við það að raungengi hefur hækkað um 12–13% á þessu ári og þeir búa einnig við hærra vaxtastig en annars staðar þekkist. Samt er gert ráð fyrir að innheimta af þeim um 400 millj. kr. í formi nýs launaskatts á næsta ári.
Ofan á þessa slæmu stöðu fiskvinnslunnar bætist svo að stefnt er að mun meiri samdrætti í þorskafla milli ára en spáð var. Staða þessa undirstöðuatvinnuvegar þjóðarinnar er því í dag afar ótrygg og ekkert hefur komið fram sem bendir til betri afkomu næsta ár. Því má svo bæta við að hver 20 þús. tonn í þorskafla jafngilda rúmlega 1 milljarði kr. í útflutningsverðmæti eða sem svarar til um 2% af vöruútflutningi og um 1% samdrætti í þjóðartekjum.
Þessar spár Þjóðhagsstofnunar, sem vissulega eru gerðar með ákveðnum fyrirvara, eru ljótar. Þetta er ekki sú framtíð sem við viljum sjá. Við verðum t.d. samfara samdrætti í þorskafla að huga betur að fullvinnslu þessara afurða.
Ríkisstjórninni ber að stuðla að enn frekari framgangi undirstöðuatvinnuvega landsins, sjávarútvegs og landbúnaðar, en það gerir hún ekki. Þar ætlar hún samkvæmt frv. til fjárlaga að bregðast. Misgengi milli atvinnuveganna er ekkert náttúrulögmal. Það er afleiðing stjórnarstefnu.
Mikil óvissa ríkir um verðlagshorfur næsta árs og þar með um verðlagsforsendur fjárlagafrv. Reyndar er það einkennilegt hve verðlagsforsendur frv. hafa lítið verið til umræðu. Þær forsendur gera t.d. ráð fyrir rúmlega 7% kauphækkunum á árinu 1988 og um 10% hækkun framfærslukostnaðar. Það hefur verið bent á að ólíklegt er að verkafólk taki slíkri kauplækkun. Auk þessa hefur síðan fjárlagafrv. var lagt fram gerst tvennt sem gerir það enn ólíklegra. Annað er það að verðbólga hefur vaxið hratt á síðustu vikum og allt bendir til að þar verði framhald á. Hitt er að skattheimtuáform ríkissjóðs blasa nú við almenningi í landinu.
Matarskatturinn leggst að fullu á láglaunafólkið í landinu sem ekki á þá undankomuleið að borða varaliti og drekka rakspíra og ilmvötn sem lækka í verði. Þessi matarskattur á að gefa ríkissjóði í tekjur 5750 millj. kr. Maturinn verður dýrari en nokkru sinni fyrr. Ríkisstjórnin ákveður ekki matseðil heimilanna. Enda þótt mjólk, kjöt, skyr og gosdrykkir hafi hlotið náð fyrir augum hæstv. ríkisstjórnar og hækki ekki mun fólk áfram vilja borða fisk, brauð, egg og nýja ávexti sem hækka verulega.
Jafnvel þó teknar séu trúanlegar tölur hæstv. fjmrh. um að söluskatts- og tollaleikfimi ríkisstjórnarinnar gangi upp á núlli að meðaltali er ótvírætt að greiðslubyrði heimilanna eykst. Því til sönnunar má benda á niðurstöður útreikninga Alþfl., þá með talinn hæstv. fjmrh., en Alþfl. var fyrir réttu ári, eins og fram kemur í nál. fulltrúa Alþfl. í minni hl. fjvn. á þessari skoðun, með leyfi forseta: „Allt of há söluskattsálagning vegur þungt í neysluútgjöldum heimilanna“.
Þetta, virðulegi forseti, var skoðun hæstv. fjmrh. fyrir réttu ári. Þá ætlaði hann líka að fækka undanþágum frá söluskatti og lækka um leið söluskattsprósentuna sem honum fannst allt of há. En það var þá.
Það var líka þá sem Alþfl. taldi að fella ætti niður ýmsa smáskatta sem þeir töldu að þáverandi hæstv. fjmrh. héldi dauðahaldi í. Um þessa, að þeirra mati, úreltu smáskatta nefndu alþýðuflokksmenn dæmi: miðagjald, flugvallarskattur, skoðunargjald ökutækja, gjald á eyðublöðum heillaskeyta, skipaskoðunargjald og fleiri voru dæmin.
Hvað hefur svo orðið um þessa skatta? Hæstv. fjmrh. hefur hækkað þá flesta verulega og heldur engu minna dauðahaldi í smáskattana en fyrirrennarar hans gerðu.
Það er margt annað í þessu nál. Alþfl. frá því fyrir ári sem vert er að hafa í huga og skoða í samhengi við framlagningu frv. til fjárlaga og ýmissa skattafrumvarpa sem hv. Alþingi hefur til meðferðar nú. Þessi skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar eiga að gefa í ríkiskassann um 8750 millj. kr. Skattastefna sem eykur mismunun í þjóðfélaginu. Lágtekjufólk ber þyngri byrðar en áður vegna matarskattar. Jafnframt verður skattbyrði hátekjumanna hlutfallslega minni en áður vegna þess að efstu skattþrep eru afnumin samfara staðgreiðslukerfi skatta.
Hvar eru nú tillögur Alþfl. um skatta á stóreignamenn? Hvar er tillitið til þeirra sem minnstar tekjurnar hafa?
Það er ljóst að ráðstafanir ríkisstjórnarinnar bitna meira og minna á láglaunafólki landsins og á undirstöðuatvinnuvegum okkar. Verið er að stefna að því að svigrúm við gerð kjarasamninga verði ekki meira en svo að sú hækkun launa sem boðuð er í fjárlagafrv. standist. Það gerist hins vegar ekki. Ef skoðað er hversu miklar hækkanir þyrftu að koma á lægstu laun á næstu 12 mánuðum til þess að kaupmáttur launa haldist frá því sem hann er nú og við búum okkur til dæmi með það eitt fyrir augum að halda kaupmætti óbreyttum, ég ítreka, óbreyttum, á milli ára erum við strax komin óraveg frá forsendum fjárlaga.
Við skulum skoða dæmið um almenna kauphækkun miðað við að tryggja kaupmátt lágmarkslauna í kjarasamningum, launa sem nú eru tæplega 30 þús. kr. á mánuði. Gerum ráð fyrir óbreyttri stefnu í verðlagsmálum og því að gengi erlendra gjaldmiðla fylgi kostnaðarbreytingum útflutnings- og samkeppnisgreina. Ef svona er reiknað þyrfti að sögn Ásmundar Stefánssonar forseta ASI að hækka kaupið um 8–9% um næstu áramót og síðan á þriggja mánaða fresti um rúmlega 7%. Í lok næsta árs, þ.e. í desember 1988, yrðu lágmarkslaun um 40 þús. kr. þá ígildi 30 þús. kr. kaups í dag. Launin þyrftu því að hækka á næsta ári um rúmlega 30% til þess eins að standa í stað hvað verðgildi varðar.
Þetta sýnir okkur betur en nokkuð annað hversu ótryggar forsendur frv. til fjárlaga fyrir árið 1988 eru og segir okkur jafnframt að sú mynd, sem við í stjórnarandstöðunni höfum dregið upp í nál. og í ræðum, er enn dekkri fyrir heimili landsins þegar staðan í kjara- og launamálum er tekin inn.
Hvað varðar gjaldahlið frv. eru í dag líka ýmsir óljósir liðir og mörgum endum á eftir að ganga frá. Ekki er þar við störf fjvn. að sakast. Hún hefur á þessu hausti þó mátt vinna við afar skringilegar aðstæður svo að ekki sé meira sagt. Ekki bara að margt sé snúið við afgreiðslu fjárveitinga heldur hafa forsendur allar verið óljósar, tekjuöflunarfrumvörp svo seint á ferðinni að vinnurammi nefndarinnar hefur verið heldur þokukenndur. Það er hins vegar rangt að skammast út í fulltrúa stjórnarinnar. Þeir hafa búið við nánast sama upplýsingaskort og fulltrúar stjórnarandstöðu í fjvn. Þær upplýsingar sem við höfum beðið um liggja bara ekki á lausu hjá hæstv. ríkisstjórn. Ríkisstjórnin hefur það vinnulag að birta fjölmiðlum helst allar upplýsingar um gjörðir sínar og ákvarðanatöku áður en þær eru birtar Alþingi og við það hefur fjvn. mátt búa.
Landbúnaðarmálin voru tekin úr höndum fjvn. og sett í aðra nefnd og framlög til ýmissa annarra liða voru ákveðin af ríkisstjórninni og birt fjölmiðlum áður en þær ákvarðanir sáust á borðum nefndarinnar. Þetta á að sjálfsögðu ekki að gerast og eins og ég sagði áðan dáist ég að því hvað fulltrúar stjórnarflokkanna hafa haldið ró sinni vitandi að það eru þó þeir sem þurfa að verja vitleysuna fyrir hv. Alþingi, svo og fjölmiðlum. Þetta þurfa þeir að gera án þess jafnvel að eiga möguleika á að draga fram rök fyrir máli sínu, einfaldlega vegna þess að þau eru ekki til eða hæstv. ríkisstjórn lúrir á þeim.
Margir gjaldaliðir af þeim sem nú þegar hafa verið lagðar fram brtt. við hafa tekið jákvæðum breytingum í meðförum fjvn., enda hafa brtt. þessar í för með sér hækkun gjaldaliða frv. um rúmlega 1 milljarð. Enn er þó eftir að afgreiða ýmsa stóra útgjaldaliði sem bíða 3. umr. og ljóst er að þar má reikna með að enn þurfi að koma til veruleg aukning útgjalda.
Í till. fjvn. er gert ráð fyrir verulegri hækkun til hafna í landinu. Í frv. var gert ráð fyrir að framlög til hafnamannvirkja væru 250 millj. Lagt er til að þessi liður hækki í 398,5 millj., vissulega spor í rétta átt en þó langt frá áætlaðri fjárþörf hafna landsins og reyndar líka langt frá því sem lagt var til í þáltill. sem lögð var fram hér á síðasta þingi.
Einnig leggur fjvn. til verulega hækkun til byggingar skólamannvirkja sem þó er langt frá fjárþörf þessa liðar. Skuldir ríkissjóðs til bygginga grunnskóla sem nú þegar eru hafnar og skuldbindingar gerðar eru rúmlega milljarður, þannig að það segir sig sjálft að þó framlag ríkis verði hátt á fjórða hundrað milljónir segir það lítið til þessa mikilvæga samfélagslega verkefnis.
Það að hafa nú fengið hér inn á borð til okkar skýrslu sem sýnir fjármálaóráðsíu sem viðgengist hefur við byggingu flugstöðvarinnar gerir það enn sárara hversu litlu fjármagni er hægt að veita til verkefna sem eru mikilvæg allri þjóðinni, verkefni eins og hafnir landsins, bygging skólamannvirkja og sjúkrastofnana. Um framlög til einstakra liða ætla ég ekki að tjá mig mikið. Alþb. hefur þegar lagt fram brtt. við allmarga þeirra liða sem við vildum sjá breytingar á.
Ég vil þó minna þm. á að framlög til byggingar sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og dvalarheimila aldraðra eru langt undir lágmarksþörf og að veruleg úrbót þyrfti að koma til þarna.
Virðulegi forseti. Ég gat þess við 1. umr. fjárlaga að ég væri ósátt við hvernig tekið er á verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Ekkert hefur komið fram á þeim vikum sem liðnar eru frá þeirri umræðu sem gerir mig sátta við framkvæmdina. Ekki eru enn nema óljósar hugmyndir um hvernig staðið verður að uppgjörsmálum við sveitarfélögin. Kannski er það ekki nema von, það eru nefnilega engar heildartölur til um það hver staða ríkissjóðs er gagnvart öllum þeim verkefnum sem sveitarfélögin hafa fengið viðurkennd af ríkinu og þegar hafið framkvæmdir við í trausti þess að fá framlög úr ríkissjóði, alla vega hef ég ekki getað fengið þær upplýsingar og hef þó mikið reynt.
Ég ítreka hér þá skoðun mína að sveitarfélögin vilja gjarnan fá meira sjálfræði í ákvarðanatöku sinni og framkvæmdum og að tillögur nefndar um verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga eru flestar til bóta. En það verður að tryggja þegnum þessa lands jafnrétti og það er ljóst að sveitarfélögin eru misjafnlega í stakk búin að taka við þeim verkefnum sem áformað er að færa yfir til þeirra. Þær lausnir sem bent er á að sveitarfélögin fái á málefnum sínum í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, að sjóðurinn komi til með að bæta þá aukningu útgjalda sem sveitarfélögin verða fyrir við tilfærslu verkefna, er falslausn.
Menn skulu gera sér grein fyrir því að Jöfnunarsjóð sveitarfélaga áttu og eiga sveitarfélögin. Hann hefur hins vegar verið skertur mikið á undanförnum árum, 1985 um 108 millj., 1986 um 209 millj., 1987 um 348 millj. og enn er áætluð skerðing þrátt fyrir tilfærslu verkefna til sveitarfélaga. Skerðing Jöfnunarsjóðs á undanförnum árum hefur haft í för með sér að framkvæmdageta sveitarfélaganna skertist verulega. Sérstaklega bitnaði skerðingin harkalega á minni sveitarfélögunum sem ekki standa undir nauðsynlegum, sjálfsögðum samfélagslegum verkefnum nema framlög ríkis komi til. Þessi sveitarfélög hafa oft þurft að miða framkvæmdahraða sinn við framlög ríkissjóðs og eru því langt á eftir ef tekið er tillit til þeirrar þjónustu sem nú er talið sjálfsagt að hvert sveitarfélag veiti.
Það að setja deild innan Jöfnunarsjóðsins sem sinni þessum sveitarfélögum sérstaklega er ekki sú lausn sem má sætta sig við. Sveitarfélögin eiga að fá Jöfnunarsjóðinn óskertan og aukna tekjustofna sem vissulega geta verið í formi aukinna framlaga ríkis til sveitarfélaga, framlaga sem þau ákveða ráðstöfun á. Og þegar sveitarfélögin þurfa verulega að auka tekjur sínar gagnrýnir hæstv. fjmrh. hækkun útsvara til sveitarfélaga sem áætlað er að nemi um 7–9% á næsta ári, en hækkar svo sjálfur um leið frá því sem áður var tekjuskattinn sem nemur 25% af tekjum.
Ef til vill eru skiptar skoðanir meðal sveitarstjórnarmanna um tillögur að verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, en allir þeir sveitarstjórnarmenn sem ég hef talað við eru sammála um það að um leið og tilfærslan á sér stað eigi að koma uppgjörsmálum á hreint, við annað verði vart unað. Og þegar maður heyrir tölur eins og þær sem komu fram í fréttum sjónvarpsins í gær, að inneign Reykjavíkurborgar einnar hjá ríkinu nemur um 800 millj. kr. og horfir svo á framlög í Jöfnunarsjóð ár hvert, verður ljósara en nokkru sinni fyrr að áður en tilfærsla verkefna milli ríkis og sveitarfélaga á sér stað verður að leysa uppgjörsmálin.
Það eru líka verkefni sem nú er áætlað að færa sem eru svo augljóslega verkefni samfélagsins alls og ber að leysa á þeim grundvelli en ekki með því að færa þau yfir til sveitarfélaga. Þar ber fyrst að nefna tónlistarskóla. Þar hefur ríkið séð um hálfa launagreiðslu kennara og öll þau sveitarfélög sem hafa ályktað um þann lið telja að þarna eigi ríkið áfram að sjá um þennan þátt.
Önnur samfélagsleg verkefni sem ég vil nefna hér og ég tel að eigi að leysa á samfélagslegum grunni eru dagvistarstofnanir, annaðhvort í formi framlaga til uppbyggingar eða í formi framlaga til reksturs. Það reynist oft erfitt litlum sveitarfélögum að koma upp sæmandi aðstöðu til íþróttaiðkana. Þarna er því ekki um neitt jafnrétti að ræða t.d. milli barna á grunnskólaaldri vítt og breitt um landið. Þetta er því brýnt verkefni sem ríkisstjórnin hefur að hluta viðurkennt að ríkið verði enn að koma inn í með tillögu um stofnun sérstaks íþróttasjóðs.
Virðulegi forseti. Í nál. minni hl. fjvn. kemur fram að við lýsum ánægju okkar með það markmið ríkisstjórnarinnar að reka hallalausan ríkissjóð. Hins vegar erum við ekki sammála hæstv. ríkisstjórn um leiðir að markmiðunum, ekki stefnu ríkisstjórnarinnar í skattamálum, að æ ofan í æ er það almenningur í landinu sem látinn er borga óráðsíu stjórnvalda. Við bendum líka á minni gjaldaliði eins og yfirstjórn ráðuneyta sem hækkar verulega, allt upp í um 100% hækkun, nema hjá forsrn. Þar lagði hæstv. fjmrh. til lækkun á framlögum til yfirstjórnar, e.t.v. til þess að sýna hæstv. forsrh. að hann ætli í einhverju að standa við þá gagnrýni sem hann beitti hæstv. forsrh. þegar hann gegndi embætti fjmrh. fyrir réttu ári og hlaut þá mikla gagnrýni núverandi fjmrh. fyrir störf sín.
Minni hl. fjvn. vill einnig minna á þá skýrslu sem birst hefur þingmönnum um fjármálaóráðsíu við byggingu flugstöðvarinnar og alla þá fjármuni sem þangað hafa streymt. Við viljum líka benda á þau samfélagslegu verkefni sem við teljum að eigi að hafa forgang og vísum til tillagna stjórnarandstöðuflokkanna þar um.
Að síðustu má svo enn benda á að þótt bráðabirgðaspá Þjóðhagsstofnunar um efnahagshorfur sé svört er útilokað að hunsa hana og við breyttum efnahagshorfum verður að bregðast strax. Verðlagsforsendur frv. verður að taka til gagngerðrar endurskoðunar. Og við lýsum enn og aftur andstöðu okkar við tekjuöflunarleiðir ríkisstjórnarinnar sem bitna fyrst og fremst á láglaunafólki landsins og minnum á setningar sem eru í niðurlagi nál. Alþfl. við 2. umr. fjárlaga fyrir árið 1987. Þá sögðu alþýðuflokksmenn, með leyfi forseta:
„Pólitík er að vilja. Mismunandi áherslur um forgangsröð verkefna innan ríkisbúskaparins endurspegla ólíka pólitíska afstöðu. Versta aðferðin í stjórnmálabaráttunni er sú að þykjast vera öllum allt en reynast svo öllum jafnilla í raun.“
Mér finnst að þarna megi greina orðalag ákveðins stjórnmálamanns sem þá taldi sig vera baráttuglaðan málsvara þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu.
Ég hef lokið máli mínu.