14.12.1987
Sameinað þing: 32. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2070 í B-deild Alþingistíðinda. (1493)
1. mál, fjárlög 1988
Alexander Stefánsson:
Virðulegi forseti. Við 1. umr. fjárlagafrv. 4. nóv. sl. lagði ég áherslu á ýmsa þýðingarmestu þætti frv. og gerði grein fyrir þeirri skoðun minni að það væri óvenjumikið og erfitt og vandasamt verk að ná saman fjárlögum og lánsfjárlögum fyrir árið 1988 miðað við það markmið sem hæstv. ríkisstjórn hafði sett sér um hallalaus fjárlög og niðurskurð á erlendum lántökum. Ég taldi því að reyna mundi á forustu þeirra flokka sem standa að þessari ríkisstjórn og einstaka ráðherra og raunar Alþingi í heild ef þetta markmið fjárlaga ætti að nást. Mér er ljóst að þjóðin krefst þess að skynsamlega verði á þessum málum haldið. Fjárlög íslenska ríkisins hafa jafnan afgerandi áhrif á framvindu þjóðmála.
Fjvn. hefur að venju lagt mikla vinnu í meðferð fjárlagafrv., bæði hvað varðar viðtöl við fjölda aðila, fulltrúa sveitarfélaga, stofnana og samtaka svo og einstaklinga, og það hefur komið fram í framsögu hv. formanns fjvn. að yfir 1000 erindi hafa borist nefndinni, en sami aðili flutt oft mörg erindi í viðtölum eða bréfum. Eins og oftast áður hefur fjvn. ekki möguleika á að sinna nema hluta þessa erindafjölda og oftast aðeins lítinn hluta af þeim fjármunum sem beðið er um hverju sinni. Öll þessi viðtöl og afgreiðsla mála og erinda taka mikinn tíma fjvn. Ég vil í þessu sambandi leggja áherslu á nauðsyn breytinga á starfsháttum fjvn., eins og hv. formaður nefndarinnar skýrði í framsöguræðu sinni í dag, og vísast til nál. meiri hl. nefndarinnar sem öll nefndin styður að því er þetta varðar.
Fjvn. þarf að hafa umboð Alþingis til að starfa allt árið við undirbúning mála fyrir fjárlagagerð og ekki hvað síst að fylgja eftir og hafa eftirlit með framkvæmd fjárlaga í mörgum mikilvægum málaflokkum. Að sjálfsögðu ber að fagna því að Ríkisendurskoðun er nú flutt undir Alþingi og við í fjvn. höfum þegar fengið að kynnast því hvaða gildi það hefur við meðferð mála að hafa aðgang að þekkingu slíkra manna sem þar starfa og því hlutverki sem Ríkisendurskoðun hefur almennt. Þetta gefur vissulega forsmekkinn að því sem fram undan er í þessum málum ef rétt er á málum haldið.
Eins og öllum er ljóst er eftir að fjalla um tekjuáætlun fjárlaga og eins og venja er til fer sú lokaathugun fram við umfjöllun milli 2. og 3. umr. í fjvn. Eins og hér hefur komið fram, bæði í ræðu hv. formanns nefndarinnar og einnig í ræðu hv. þm. Pálma Jónssonar, er nokkur óvissa um tekjuáætlun fjárlaga nú og þarf engan að undra og kemur margt þar til greina. Ég þarf ekki að endurtaka það sem hér hefur komið fram í því sambandi. Við vitum það sem störfum í fjvn. og raunar þjóðin öll að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði fyrir næsta ár eru ekki í sjónmáli. Við vitum einnig að viðskiptakjör hafa versnað síðustu mánuði. Öllum er kunnugt um gengislækkun bandaríkjadals í kjölfar verðhrunsins á hlutabréfamörkuðum heimsins. Álverðið hefur lækkað og óvissa ríkir um verð á sjávarafurðum okkar á erlendum mörkuðum sem er að sjálfsögðu alvarlegt mál fyrir land sem byggir alla sína afkomu á þessari útflutningsgrein. Jafnframt er ljóst að framleiðsla sjávarafurða verður talsvert minni á næsta ári miðað við þær spár sem fram undan eru. Við þetta bætist einnig að halli á viðskiptum við útlönd mun verða meiri á arinu en reiknað var með vegna gífurlegs innflutnings á síðari hluta þessa árs eins og allir hv. alþm. og raunar þjóðin öll hafa tekið eftir og tekið þátt í e.t.v.
Til viðbótar þessu og sem afleiðing hefur afkoma útflutningsfyrirtækjanna almennt versnað þar sem innlendur kostnaður hefur hækkað meira en verð útflutningsafurða í íslenskum krónum. Alvarlegust er staða frystiiðnaðarins í þessari mynd svo og ullariðnaðarins eins og allir vita.
Við þessar aðstæður er erfitt að meta verðlagsforsendur og tekjuáætlun, ekki síst meðan verið er að setja ný lög um allt skattakerfið, róttækar breytingar sem hafa víðtæk áhrif sem ekki eru öll orðin ljós. Hér á ég að sjálfsögðu við breytingar á óbeinum sköttum af innflutningi, gjöldum af innlendri framleiðslu og söluskatti.
Miðað við umræður og fullyrðingar bæði í fortíð og nútíð verður að álykta að þessar róttæku skattkerfisbreytingar hljóti að verða skilvirkari og færa ríkissjóði hærri tekjur. Hins vegar er ekki óeðlilegt að margir séu með efasemdir um hvort þessar breytingar auki réttlæti í skattheimtu hér á landi. Ekki hvað síst á þetta við um söluskattinn sem á að vera undanfari breytingar yfir í virðisaukaskatt.
Að sjálfsögðu mætti halda langa ræðu um bæði kosti þessa og galla sem verður ekki gert hér, en það mun tíminn leiða í ljós. En augljóst er að gjörbreyta og herða verður skattaeftirlitið, bæði hvað varðar beina og óbeina skattheimtu í landinu. Að fenginni reynslu er þessa krafist og það verður að gera miklar kröfur til hæstv. fjmrh., ekki síst með tilliti til þess að hann sem fyrrv. stjórnarandstæðingur fullyrti fyrir alþjóð og hélt uppi miklum umræðum á hv. Alþingi um að þarna væru fjármunir svo milljörðum skipti í meðferð á óvandaðan hátt sem ekki kæmu til skila inn í skattkerfið sem tekjur ríkissjóðs. Þess vegna munum við styðja hann heils hugar í því að gera róttækar breytingar sem skila þessu fjármagni inn í sameiginlegan sjóð landsmanna.
Hæstv. landbrh. og þingflokkur Framsfl. gerðu fyrirvara við fjárlagafrv. varðandi landbúnaðarmálin sem byggðist á þeirri kröfu að staðið verði við samninga við bændur og landbúnaðinn í heild, sem fyrrv. ríkisstjórn staðfesti, sem er grundvallaratriði og raunar undirstaða búháttabreytinga í landbúnaði á næstu árum. Við í meiri hl. fjvn. teljum að þetta hafi tekist að nokkru leyti nú með þeim lagfæringum og breytingum sem hér liggja fyrir í brtt. á þskj. 244 og ekki síður í þeim ákveðnu yfirlýsingum sem ráðamenn þjóðarinnar hafa gefið um hvernig þeir ætla sér að framkvæma þessa hluti. Það ber vissulega að fagna því starfi sem sérstök nefnd þm. skilaði til lausnar þessu máli þó ég geti tekið undir með hv. 2. þm. Norðurl. v. að æskilegt er að slíkar aðgerðir til að koma fram raunhæfum aðgerðum, sem raunverulega er löngu búið að afgreiða, geti gerst á eðlilegan máta.
Ég vil af þessu tilefni nota tækifærið og benda á að meiri hl. fjvn. gerði vissar þýðingarmiklar breytingar í sambandi við þetta samkomulag þó að það raskaði ekki heildarfjárhæðum, en það var til skýringar. M.a. koma framlög til búnaðarsambanda inn að nýju í gegnum þessar brtt. og viðbótarframlagi til RALA, til aukinna rannsókna, verður skipt af fjvn. í samráði við viðkomandi ráðuneyti.
Tilfærsla verkefna til sveitarfélaga er stórmál eins og margoft hefur komið fram í umræðu á hv. Alþingi eftir að ljóst var að þetta mál bæri á góma. Fyrstu skrefin eru þegar ákveðin með fjárlagafrv. og frv. er þetta varðar er nú til meðferðar í félmn. Nd. og verður að afgreiða sem lög fyrir jól. Ég hef áður sagt að þessi verkefnatilflutningur og fjárhagslegur frágangur í því sambandi verður að vera sannfærandi og vel frá öllum hnútum gengið. Á því veltur framhald þessara mála. Sveitarstjórnarmenn og landsmenn almennt verða að geta treyst þessum aðgerðum.
Nokkrar efasemdir hafa komið fram, einkum í sambandi við Íþróttasjóð og tilflutning tónlistarfræðslu. Sjálfsagt er að skoða vel þessi atriði. Íþróttasjóður starfi áfram til styrktar mannvirkjagerð íþróttahreyfingar í landinu. Það telja margir sjálfsagt og ég er einn af þeim. Sjálfsagt má fresta gildistöku breytinga um tónlistarfræðsluna t.d. til 1. sept. 1989. Ég get upplýst það að ég mun leggja það til við afgreiðslu málsins í nefnd að svo verði gert. Þannig mundi vinnast nægur tími til að átta sig á því hvort hér er stefnt rétt að í ákvörðun um verkefnatilflutning hvað þetta varðar. En ég vil leggja sérstaklega áherslu á það, vegna þess að mér hefur fundist gæta talsverðs misskilnings hjá mörgum, að það eru sveitarfélögin í landinu sem reka tónlistarskólana í dag og hafa gert lengi. Þessu er nauðsynlegt að menn átti sig á alveg eins og með dagvistarstofnanir. Það eru sveitarfélögin sem reka þessar stofnanir. Það er aðeins um að ræða ríkisstyrk sem sveitarfélögin fá til að greiða hluta af kennslulaunum í sambandi við tónlistarskóla og ákveðinn hluta af stofnkostnaði í sambandi við dagvistarstofnanir.
Að mínu mati er þýðingarmest í meðferð verkaskiptamála milli ríkis og sveitarfélaga að lögin um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga tryggi öryggi í þessum málum, öryggi um raunverulega jöfnun aðstöðumunar í landinu, þau byggðarlög sem standa höllum fæti af ýmsum ytri aðstæðum hafi vissu fyrir því að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, eftir að hann hefur verið endurskoðaður, sé megnugur að rétta þeirra hlut. Tekjustofnar ríkis og sveitarfélaga verða að tryggja jafnræði á milli þessara stjórnkerfa landsins. Samráð ríkis og sveitarfélaga á að geta tryggt þetta ef stjórnvöld hafa réttan skilning á mikilvægi þessa fyrir þjóðina í heild hvort sem menn búa í strjálbýli eða þéttbýli. Ég bendi á í þessu sambandi að nágrannar okkar eða frændur okkar, Finnar, hafa góða og mikla reynslu af því samráði sem þar var lögfest milli ríkis og sveitarfélaga að því er varðar verkefnatilflutning og skiptingu verkefna. Af því verðum við að læra. Fjárlagafrv. á að taka mið af þessum viðhorfum. Frv. sem hér er til afgreiðslu tekur fyrstu skref í rétta átt ef fylgt verður eftir verkefnatilflutningi til sveitarfélaga með fjárhagslegum aðgerðum eins og boðað er og uppgjör fari fram á skuldastöðu ríkissjóðs við sveitarfélögin í sameiginlegum framkvæmdum liðinna ára.
Ég tel að nokkuð vel hafi tekist til í veigamiklum framkvæmdaliðum í meðferð fjvn. Á þskj. 244 kemur fram í hverju þessi aukning aðallega felst. En það er vissulega áhyggjuefni og ég tek undir með hv. 2. þm. Norðurl. v. að framlög til atvinnuveganna eru of naumt skömmtuð í meðferð fjárlaga nú. Ég nefni hafnamálin sem hækka úr 250 millj. í tæpar 400 millj. Stór hluti af þessari fjárhæð fer til skuldajöfnunar við sveitarfélögin, en það rýrir ekki raungildi hækkunar framlaga. Ég nefni skólamálin. Hækkun til grunnskóla frá frv., sem gerði ráð fyrir 200 millj. kr. til grunnskóla, er 135 millj. eða í 335 millj. Þetta er raunhækkun sem er mikilvæg, enda þótt þessi málaflokkur sé enn langt á eftir þörf framkvæmda til að mæta kröfum tímans að því er varðar kennslurými.
Það er rétt að undirstrika að ríkissjóður stendur mjög illa gagnvart stærstu sveitarfélögunum. Þar á ég við Reykjavík og þéttbýlissveitarfélögin í Reykjaneskjördæmi. Úr þessu þarf að sjálfsögðu að bæta, en til þess þarf miklu meira fjármagn. Minni sveitarfélögin úti um land hafa erfiðari greiðslustöðu og þola enn verr bið eftir fjármagni í þessar framkvæmdir og fjárlög undanfarinna ára hafa ávallt tekið tillit til þessa atriðis.
Ég vek athygli á mikilli þörf sem hefur farið vaxandi ár frá ári fyrir byggingu íþróttamannvirkja, ekki síður úti um land. Þetta er mál sem verður að fá meiri forgang en tekist hefur til þessa. Aðstöðuleysi fyrir íþróttaiðkun er eitt af stærri vandamálum sem varðar búsetu í landinu. Svo skrýtið sem það er er þetta staðreynd. Úr þessu verður að bæta á næstu árum ef ekki á að verða þjóðfélagslegt tjón af og enn meiri byggðaröskun. Ég vil sérstaklega undirstrika þetta atriði vegna þess að ég held að yfirleitt hafi menn ekki gert sér almennt grein fyrir þessu. (Gripið fram í: Eigum við þá ekki að bæta úr því í ár?) Því miður höfum við ekki meira fjármagn í ár, eins og hv. þm. sjálfsagt veit eins vel og ég.
Til uppbyggingar heilbrigðiskerfisins vantar meira fjármagn. Ljósi punkturinn í þessum málum eru heilsugæslustöðvarnar sem eru komnar í öll umdæmi landsins og hafa skapað ómetanlegt öryggi fyrir landsbúa. Ég tel hins vegar áhyggjuefni hversu hægt gengur að byggja upp fullnægjandi aðstöðu í ríkisspítölunum í Reykjavík. Aðstaða t.d. á Landspítalanum fullnægir engan veginn kröfum tímans í mörgum greinum. K-byggingin er langt á eftir áætlun. Það má að mínu mati ekki dragast lengur að finna lausn til að ljúka þessum brýnustu framkvæmdum. Þetta er stórmál sem verður að leysa án þess að tengja það almennum lausnum. Ég legg til að þetta verði algert sérverkefni stjórnvalda og fjvn. á næsta ári.
Herra forseti. Að sjálfsögðu væri freistandi að ræða fjölmörg viðfangsefni fjárlagagerðarinnar, en ég geymi mér það. Ég vísa til framsöguræðu formanns nefndarinnar sem gerði ítarlega grein fyrir störfum nefndarinnar fyrr í dag.
Fyrir 3. umr. verða fjölmörg mál til meðferðar í fjvn., að sjálfsögðu tekjuáætlun, allar B-hluta stofnanirnar, 6. gr. mál, landgræðsluáætlun, Þjóðleikhúsið, Áburðarverksmiðjan, sveitarafvæðing, fjárhagsvandi hótela, íþróttahreyfingin svo að eitthvað sé nefnt. Það er von okkar að takist að afgreiða fjárlög fyrir árið 1988 í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar, ný fjárlög verði þannig þjóðinni til hagsbóta.
Ég vil að lokum taka undir það sem hér hefur verið sagt. Ég þakka meðnefndarmönnum mínum og formanni nefndarinnar, starfsmanni nefndarinnar, vararíkisendurskoðanda og starfsfólki Fjárlaga og hagsýslustofnunar og starfsfólki Alþingis, sem nálægt fjárlagagerðinni hefur komið, fyrir gott samstarf við erfitt verkefni á undanförnum mánuðum.