14.12.1987
Sameinað þing: 32. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2089 í B-deild Alþingistíðinda. (1498)

1. mál, fjárlög 1988

Forseti (Guðrún Helgadóttir):

Forseti getur mjög vel fallist á þessa athugasemd hv. þm. og var í raun að hugsa hvort ekki væri ástæða til að kanna hvort einhverjir ráðherrar ríkisstjórnarinnar væru í húsinu og það skal nú gert.

Meðan beðið er eftir að ráðherrar gangi í salinn skal það upplýst að það er áætlað að halda hér áfram fundi til kl. sjö, en þá verður gefið þinghlé, og klukkan níu mun fundur hefjast aftur. En það er nú verið að athuga hverjir ráðherrar eru í húsinu.