14.12.1987
Sameinað þing: 32. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2123 í B-deild Alþingistíðinda. (1505)

1. mál, fjárlög 1988

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Fjárlagafrv. er að þessu sinni býsna margþætt eins og endranær, en ef eitthvað ætti að tína út úr sem sérstaklega væri talið einkenna frv. fer ekki milli mála að það eru skattahækkanirnar, sem þar er að finna, líklega einhverjar mestu skattahækkanir sem hér hafa dunið yfir um áratuga skeið. Þessar skattahækkanir eru þeim mun rosalegri þar sem um er að ræða matarskatta að miklum meiri hluta sem lenda fyrst og fremst af miklum þunga á herðum lágtekjufólks í landinu. Í það minnsta er víst að það er einmitt lágtekjufólkið sem mest mun finna fyrir þeim skatti þótt allir verði að sjálfsögðu að gjalda hann.

En það er annað, sem væri kannski líka ástæða til að nefna sem einkenni á frv., og það er að í því eru ýmis sameiginleg verkefni ríkis og sveitarfélaga sett út á gaddinn og mikil áhætta tekin um hvað um þau verður. Hér er um að ræða tónlistarfræðsluna, byggingu dagvistarheimila, byggingu félagsheimila og byggingu byggðasafna. Það á að vísu að heita svo, eins og menn þekkja, að sveitarfélögin fái tekjur á móti til að jafna þann tekjumissi sem þau verða fyrir þegar ríkið hættir að styðja þessi verkefni með auknum framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, en ekki þarf að segja neinum hér inni þau tíðindi, sem allir þekkja, að einmitt þessi sami jöfnunarsjóður hefur verið skertur á alla enda og kanta og því ekki á neitt að treysta að tekjur komi þar á móti. Jöfnunarsjóður var í tíð seinustu stjórnar skertur mjög verulega án þess að sveitarfélögin væru spurð álits eða fengið samþykki þeirra til þess og ljóst er að nú þegar verið er að stórauka tekjur ríkissjóðs af söluskatti er ekki ætlunin að sveitarfélögin fái í sinn hlut þá tekjuaukningu sem þeim bæri að öllu eðlilegu þegar einn af tekjustofnum þeirra er aukinn og breikkaður.

Það er einfaldlega till. okkar alþýðubandalagsmanna að þessi áform um flutning verkefna yfir á sveitarfélög, sem ég hef nú nefnt, verði lögð á hilluna. Í tillögum okkar á þskj. 275 er að finna brtt. sem ganga í þessa átt. Við leggjum það til að til tónlistarfræðslu verði varið 160 millj. kr. í staðinn fyrir 105 millj. eins og frv. gerir ráð fyrir. Það er til að óbreytt ástand haldist á þessu sviði. Við leggjum til að samþykkt verði 100 millj. kr. framlag til dagvistarheimila. Og við leggjum til að samþykkt verði 30 millj. kr. framlag til Félagsheimilasjóðs og tæplega 10 millj. kr. framlag til byggða- og minjasafna. Við leggjum sem sagt til að þessi verkefni verði áfram á ábyrgð ríkissjóðs, minnum á að uppbygging dagvistarheimila tók mjög mikinn fjörkipp hér um árið þegar ríkið tók að sér að kosta byggingu þessara heimila. Þá varð gerbreyting á þessu sviði í einu vetfangi má segja. Það er auðvelt að rekja þá sögu með vísun til línurita. Og með nákvæmlega sömu rökum og þetta var gert á sínum tíma, að láta ríkið styðja byggingu dagvistarheimila, má færa líkur að því að nú þegar þessi framlög eru afnumin komi mikill afturkippur í þessa uppbyggingu alla. Ég held að þetta þurfi ekki neinna frekari útskýringa við. Það þarf ekkert annað en heilbrigða skynsemi til að átta sig á því að þegar ríkið kippir að sér höndunum mun verða afturkippur á þessu sviði.

Nákvæmlega sama gildir um tónlistarfræðsluna. Það er auðvelt að rekja hvernig mikil uppsveifla varð í tónlistarfræðslu á Íslandi þegar ríkið kom til skjalanna með lögbundnum fjárstuðningi. Það er enginn vafi á því að við erum að stíga skref aftur á bak mörg ár aftur í tímann með því að fella niður þessi framlög af hálfu ríkisins. Og hvers vegna á tónlistarfræðsla að vera undir önnur lögmál seld en hver önnur fræðslustarfsemi í landinu? Það hef ég aldrei getað skilið.

Niðurfelling framlaga til Félagsheimilasjóðs mun áreiðanlega skapa mikið misrétti meðal sveitarfélaga í landinu. Sum þeirra hafa byggt upp glæsileg félagsheimili, oft í samvinnu, önnur hafa ekki ráðist í þetta átak. Það segir sig sjálft að þeir sem hafa fengið mikið fé frá ríkinu í þessum tilgangi eru auðvitað allt öðruvísi og betur settir en hinir sem ekki hafa enn hafist handa að treysta sína félagsaðstöðu.

Í þessu sambandi er rétt að minna á að með því að fella niður framlögin til Félagsheimilasjóðs er verið að eyðileggja mjög merkilegan lítinn sjóð sem heitir Menningarsjóður félagsheimila og fékk 10% framlaga í Félagsheimilasjóð. Þessi menningarsjóður studdi ýmiss konar menningarstarfsemi sem fram fór í félagsheimilunum á þann hátt að veittir voru ferðastyrkir fólki sem kannski var búsett í höfuðborginni eða annars staðar og fór í ferðalög um landið til að hafa uppi menningarstarfsemi í félagsheimilunum og fékk þá til þess fjárstuðning úr menntmrn. Þetta er fellt algjörlega niður nú þegar ekkert framlag fæst lengur úr Félagsheimilasjóði og það kemur enginn annar sjóður þarna í staðinn. Menn skulu ekki ímynda sér að þarna sé um að ræða eitthvert sjálfgefið verkefni sveitarfélaga sem þau muni sinna hvert fyrir sig eða mörg í sameiningu. Þarna verður ósköp einfaldlega um að ræða að menningarstarfsemi víðs vegar um land skerðist og möguleikar menntmrn. til að örva og efla menningarstarfsemi víðs vegar kringum land skerðast ef ekkert annað fé kemur í staðinn.

Ég verð að viðurkenna að ég er satt að segja undrandi á því að hæstv. menntmrh. skuli ekki enn hafa séð til þess að eitthvað kæmi þarna í staðinn. (Menntmrh.: Það er í lögunum. Það er gert ráð fyrir því að menningarsjóður fái 10% af skemmtanaskatti og haldi áfram starfi.) Nú, kannski er þarna um misskilning að ræða hjá mér og þá er það vel. Ég hafði ekki áttað mig á því að þessi starfsemi héldi áfram og skal þá taka aftur það sem ég hef sagt. Ef séð er til þess að þessi starfsemi haldi áfram þá er það mjög vel. Ég hafði satt að segja ekki tekið eftir því að svo væri. En hitt stendur eftir að framlögin til Félagsheimilasjóðs skerðast og það er mjög illt.

Mér finnst þessar tillögur um tilflutning verkefna yfir á sveitarfélögin bera vott um að þessi mál hafi ekki verið hugsuð í botn. Og þó að það reyndist rangt hjá mér sem ég nú nefndi um kannski minnsta málið af þessu, þ.e. um menningarsjóðinn, stendur hitt eftir að þarna er verið að rífa niður starfsemi sem hafði verið byggð upp og hafði skilað miklum og góðum árangri. Öll var þessi starfsemi á ábyrgð menntmrn. og ég tel mjög miður ef nú verður haldið í þveröfuga átt frá því sem verið hefur.

Í öðru lagi má á það benda varðandi sveitarfélögin að framlög til grunnskóla, hafna og sjúkrahúsa hafa verið mjög lítil og vesældarleg á undanförnum árum og það hafa myndast býsna langir biðlistar hjá sveitarfélögum vegna verkefna af þessu tagi. Ég þekki það t.d. úr mínu sveitarfélagi hve þörfin á framkvæmdum við hafnir er orðin mikil og hve lítið hefur verið hægt að gera undanfarin ár og þó ég vissulega fagni því að fjárveiting til hafna aukist nú á ný er mér alveg ljóst að það er engan veginn nægilegt sem nú fæst til hafnanna og ástandið heldur áfram að vera mjög erfitt víða. Ég nefni sem dæmi að til stóð í mínu kjördæmi að gera miklar dýpkunarframkvæmdir bæði á Siglufirði og á Skagaströnd, en það verður bersýnilega ekki hægt að ráðast í þessar framkvæmdir nema að litlu leyti og þá er ljóst t.d. á Siglufirði að kostnaður á hvern rúmmetra, sem grafinn verður, verður verulega miklu hærri en ef hægt hefði verið að taka hæfilegan áfanga eins og til stóð. Það stóð til að taka þrisvar sinnum stærri áfanga en fjárlagafrv. gerir núna ráð fyrir. Það er alveg ljóst að verðlag á hvern rúmmetra í dýpkun verður líklega um tvöfalt hærra en verið hefði ef hægt hefði verið að ráðast í þessa framkvæmd með eðlilegum hætti.

Það er líka ljóst að mjög mörg skólamannvirki fá ekki nema brot af þeim fjárveitingum sem þau hefðu þurft að fá. Ég t.d. þekki það úr mínu kjördæmi þar sem víða er verið að byggja upp íþróttamannvirki, íþróttahús og sundlaugar að þar tomma menn ekki áfram með framkvæmdir nema örlítið á hverju ári og framkvæmdirnar verða bæði dýrari en þurft hefði að vera ef hægt hefði verið að ráðast í þetta með eðlilegum hætti og auk þess eru framkvæmdirnar mjög lengi að ná verklokum.

Við þessa afgreiðslu er t.d. ljóst að margir sveitahreppar verða að bíða með að byggja skólahúsnæði fyrir yngstu nemendurna, en mjög víða í sveitum landsins er húsnæði til skólahalds fyrir yngstu nemendurna mjög lélegt og alls ófullnægjandi miðað við það sem gengur og gerist í þéttbýli í dag. En menn segja: Það verður að velja og hafna og það er ekki hægt að gera allt í einu og þar af leiðandi dregst það ár frá ári að hægt sé að ráðast í þessar framkvæmdir.

Við höfum, alþýðubandalagsmenn, gert till. um það á þskj. 275 að framlög til hafnamannvirkja hækki upp í 480 millj., þ.e. 80 millj. kr. meira en fjvn. gerir ráð fyrir. Einnig gerum við ráð fyrir því að fjárveitingar til sjúkrahúsa og læknisbústaða hækki verulega eða í 290 millj. og fjárveitingar til byggingar grunnskóla og íbúða fyrir skólastjóra hækki í 385 millj.

Ég vil síðan nefna fjárveitingar sem við gerum hér tillögur um og varða skólafólk. Við teljum að algjörlega sé óhjákvæmilegt að Lánasjóður ísl. námsmanna fái 200 millj. kr. hærri fjárveitingu en frv. gerir ráð fyrir. Eins og kunnugt er fylgdu lán lánasjóðsins ekki verðbreytingum hér um árið og því fór það svo að lánin hættu að nema umframfjárþörf nemenda, eins og hafði þó tekist að ná á sínum tíma, og lánin sigu niður. Á þessu hefur engin breyting orðið þó framlagið til lánasjóðsins hafi verulega hækkað. Skýringin á þessu er sú að vextir í þjóðfélaginu hafa mjög hækkað og því hefur fjárhagur sjóðsins orðið erfiðari með hverju árinu sem liðið hefur þannig að það stóraukna framlag sem nú er í fjárlagafrv. til lánasjóðsins dugar rétt til þess að mæta aukinni fjárþörf sjóðsins vegna vaxtahækkana. Þess vegna gerum við tillögu um það hér að framlag til sjóðsins hækki um 200 millj. kr. Auðvitað er þetta mál fyrst og fremst spurningin um hvort á að ríkja hér á Íslandi jafnrétti til náms og mér er kunnugt um að mjög víða er erfið staða hjá skólanemendum, stúdentum og öðrum sem fá lán úr lánasjóðnum.

Ég nefni líka annað náskylt mál þar sem eru framlögin til jöfnunar námskostnaðar sem einkum eru ætluð framhaldsskólanemum sem stunda nám fjarri heimabyggð sinni. Ég hef flutt frv. um það oftar en einu sinni hér á Alþingi að framlög í þessu skyni verði verulega hækkuð. Ég held að óvíða hafi önnur eins vanræksla átt sér stað eins og einmitt á þessu sviði þar sem nokkurn veginn sama tala hefur verið til ráðstöfunar til jöfnunar námskostnaðar ár frá ári þrátt fyrir alla verðbólgu í þjóðfélaginu. Í núverandi frv. er talan 25 millj. kr., en ég hygg að fyrir 4–5 árum hafi talan verið í kringum 20 millj. Þetta er eitt mesta hneykslið í fjárlagafrv. og hef ég litlu þar við að bæta umfram það sem hv. 6. þm. Vesturl. Danfríður Skarphéðinsdóttir sagði um þetta mál áðan en allt var það hárrétt og ekki annað fyrir mig að gera en að taka undir það sem hún sagði um það. En ég hef hreyft þessu máli í mörg undanfarin ár og flutt um það frv. og vek á því athygli að þetta hneyksli vex með hverju árinu sem líður vegna þess að upphæðin stendur í stað ár frá ári.

Á þskj. 275 flytjum við till. um að jöfnun á námskostnaði verði þrefölduð, þ.e. að upphæðin verði 75 millj. Það er að vísu nokkuð lægri upphæð en hv. þm. Kvennalistans gera tillögu um. Mig minnir að þær séu með till. um 100 millj. Ég er ekki að segja að það sé nein ofrausn í sjálfu sér því að upphæðin hefur staðið í stað mjög lengi, en ég lít þá á þessa till. okkar sem nokkurs konar varatillögu við till. þingmanna Kvennalistans þannig að sé hún felld verða greidd atkvæði um lægri till., þ.e. að upphæðin verði 75 millj. En ég mun hiklaust styðja till. þeirra um að upphæðin verði 100 millj. því ég tel það enga ofrausn.

Ég vil nefna hérna till. okkar um Þjóðleikhúsið. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er þörf á því að endurnýja búnað og byggingu Þjóðleikhússins og kostnaður við það mun nema nokkuð á annað hundrað millj. kr. Það þarf bæði að framkvæma endurbætur á húsinu að innan og að utan. Þak, veggir, áklæði, teppi — allt er þetta mjög illa farið og þjóðinni til skammar. Það eru ætlaðar í fjárlagafrv. 10 millj. í þessu skyni. Það er allt of lág upphæð miðað við þarfirnar. Ég tel að lágmarksupphæð í þessu skyni sé 20 millj. kr.

Ég vek á því athygli að Þjóðleikhúsið í heild og fjárlagaliðir þess þarfnast endurskoðunar. Það hafa nýlega verið gerðir samningar þar við starfslið og ekki hefur verið tekið tillit til þeirra í fjárlagagerðinni. Ég vil eindregið skora á hv. fjvn. að taka málefni Þjóðleikhússins til nánari yfirvegunar milli 2. og 3. umr. Ég hygg að það fari ekkert á milli mála að sú starfsemi er mjög vanrækt, fær t.d. miklu minni hækkun milli ára en önnur leiklistarstarfsemi í landinu. Það er mjög eftirtektarvert.

Ég nefni svo hér till. okkar um starfslaun listamanna. Ég gæti vissulega hugsað mér að gera tillögur um ýmiss konar hækkun á liðnum Listir, en við látum okkur nægja að flytja hér eina till. sem snýr að listamönnunum sjálfum og starfskjörum þeirra. Það er liðurinn Starfslaun listamanna. Við leggjum til að hann tvöfaldist og fari upp í 20 millj. kr. Aftur á móti er það okkar skoðun að úthlutun listamannalauna mætti gjarnan falla niður. Þar er á ferðinni fyrirbrigði sem ekki er við hæfi. Þar eru upphæðir svo lágar að menn hljóta að fyrirverða sig fyrir hönd ríkisins að útdeila svo smáum upphæðum. Staðreyndin er sú að það þykir engum heiður að fá listamannalaun fyrst og fremst vegna þess að upphæðirnar eru svo skelfilega lágar og ómerkilegar. Þær bera ekki vott um að borin sé mikil virðing fyrir því starfi sem verið er að launa. Ég held að rithöfundar og listamenn séu almennt þeirrar skoðunar að rétt sé að breyta tilhögun þessara mála þannig að um stóraukningu á starfslaunum verði að ræða. Þess vegna er þessi till. flutt um að tvöfalda starfslaunin.

Ég vek athygli á lið í fjárlögum sem heitir Kynning á íslenskri list erlendis. Þarna er um að ræða fjárlagalið sem hefur verið að vaxa undanfarin ár og er það vel, en það þarf að gera miklu stærra átak á þessu sviði. Þess vegna gerum við hér tillögu um að til þessa verkefnis verði veittar 10 millj. kr.

Ég ætla ekki að fjölyrða að sinni um þetta verkefni. Ég álít að það þyrfti að koma upp sérstökum sjóði í þessu skyni og skipuleggja þessi mál miklu betur en gert hefur verið, en í þessu samhengi, þ.e. við afgreiðslu fjárlaga, er rétt að láta sér nægja að gera tillögu um að þessi liður sé verulega hækkaður.

Í till. okkar er síðan gert ráð fyrir tekjuöflun til að standa straum af útgjöldum þeim sem við höfum gert hér tillögur um. Þessar tekjutillögur er að finna í 1. og 2. tölul. okkar till. Það er í fyrsta lagi að eignarskattur sé nokkuð hækkaður eða í 2 milljarða úr 1,5 milljörðum og að lagður sé á sérstakur stóreignaskattur upp á hálfan milljarð. Einnig leggjum við til að tekjuskattur á félög sé hækkaður úr 1750 millj. í 2300 millj. Samtals mundu þessar tekjur gefa um 1500 millj. kr. Till. okkar alþýðubandalagsmanna nema ekki svo hárri fjárhæð. Þær munu nema 1200–1300 millj. kr. og það sem afgangs er mundi þá nýtast til að rétta af hallann á ríkissjóði.

Ég nefni svo að lokum, herra forseti, að ég flyt á þskj. 276 sérstaka till. um Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki. Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki hefur verið í uppbyggingu undanfarin ár og þar hefur verið megináhersla lögð á byggingu heimavistar. Til þess verkefnis eru ætlaðar 20 millj. í þessum fjárlögum. Hins vegar er staðreynd að það hefur ekki verið veitt ein einasta króna til að kaupa tæki og búnað til þess skóla í allmörg ár. Það er algjörlega óviðunandi. Ég þekki vel að tæki og búnaður skólans eru í vanrækslu. Þar þarf margt að endurnýja, algjörlega óviðunandi ástand. Því geri ég tillögu um að í þetta verkefni verði varið 800 þús. kr. eins og beðið var um.

Í öðru lagi liggur næst fyrir að hefja byggingu bóknámshúss. Skólinn býr ekki við neitt kennsluhúsnæði sem ætlað er til bóknáms. Hann leigir af kaupfélaginu á staðnum 800 m2. Það húsnæði er á margan hátt mjög óhentugt og auk þess afar erfitt að reka skóla þar sem kennt er á þremur stöðum í bænum. Aðstaða kennara er fyrir neðan allar hellur. Þeir verða að láta sér nægja vinnuaðstöðu í gluggalausu herbergi mjög þröngu og litlu. Það er enginn vafi á að skortur á bóknámshúsi stendur þessum skóla mjög fyrir þrifum. Fyrsta skrefið til að undirbúa bygginguna er að sjálfsögðu að hanna bóknámshúsið. Það hefur verið teiknað en ekki hannað að öðru leyti. Ég legg til að til þessa verkefnis verði varið 3 millj. kr.