14.12.1987
Sameinað þing: 32. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2138 í B-deild Alþingistíðinda. (1508)
1. mál, fjárlög 1988
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Við þm. Vesturl. höfum á undanförnum árum hafið undirbúning að fjárlagaumfjöllun með því að ferðast um kjördæmið og heimsækja sveitarstjórnir í kjördæminu og ræða við þær um óskir þeirra og þarfir í sambandi við framlög til sameiginlegra verkefna ríkis og sveitarfélaga.
Það hefur ekki vantað í þessum ferðum og á fundum að fram hafi verið tekið og þá oftast og ákveðnast af 1. þm. kjördæmisins að samstaða þm. kjördæmisins sé mikil og að þeir einbeiti sér sameiginlega og af alefli fyrir framgangi þeirra málefna sem fyrir þingmennina eru lögð til fyrirgreiðslu af sveitarstjórnunum. Það þykir nokkuð hjáróma á svona fundum þegar bent er á að árangur af þessari miklu samstöðu þm. byggist nú oftar en ekki á afstöðu og stefnu ríkisstjórnar. Það hefur heldur ekki þótt gott að vekja athygli á því að margar af þeim beiðnum sem sveitarstjórnir á Vesturlandi leggja fyrir þm. eru þær sömu ár eftir ár. Sérstaklega var sú staða áberandi í haust, en við þm. fórum um kjördæmið rétt síðustu dagana fyrir þingsetningu.
Það má þó reyndar segja að svipað hafi verið uppi á teningnum bæði haustið 1985 og 1986. Minnkandi og verðminni framlög á fjárlögum urðu þess valdandi að framkvæmdum hefur miðað lítið áfram. Byggðastefna ríkisstjórnar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks kom einna gleggst fram í minnkandi framlögum til skóla, hafnamannvirkja, sjúkrahúsa, dagvistunarstofnana, flugvalla, vegamála og annarra brýnna framkvæmda á landsbyggðinni. Þannig var staðan á Vesturlandi jafnt sem annars staðar á landinu. Ég skal nefna nokkur dæmi:
Á Laugum í Sælingsdal stendur enn og hefur staðið ófrágengið íþróttahús. Það er sama sagan í Grundarfirði, Laugagerði og á Kleppjárnsreykjum. Þrátt fyrir stækkandi fiskiskip og auknar og viðurkenndar kröfur um öryggi og þrifnað í höfnum hefur verið biðstaða í framkvæmdum, t.d. í höfn eins og í Ólafsvík þar til í ár, og biðstaðan heldur áfram í Grundarfirði, á Akranesi, í Borgarnesi, á Arnarstapa, Rifi og í Stykkishólmi. Þar eru framkvæmdir vegna hafnaraðstöðu fyrir væntanlega nýja Breiðafjarðarferju auk annarra framkvæmda í höfninni í algjörri óvissu.
Svipaða sögu má segja um aðra þætti svo sem skólabyggingar, vegamál og fleira.
Yfirlýsingarnar um samstöðu þingmanna voru endurteknar, síðast á Akranesi og sameiginlega skyldi unnið að framgangi mála. Fulltrúar sveitarstjórna fluttu óskir sínar sjálfri fjvn., bæði með bréfum og með því að ganga á fund nefndarinnar.
Tveir nýir Vesturlandsþingmenn komu til starfa eftir kosningar í vor, hv. þm. Ingi Björn Albertsson og Danfríður Skarphéðinsdóttir. Þau fóru að spyrjast fyrir um samstarfið í þingmannahópnum, forvitnast um það hjá mér sem var nokkuð reyndari á þessum stað. Ég held að þau hafi ekki trúað mér, jafnvel alls ekki skilið mig, þegar ég sagði þeim, sem ég hafði nú reyndar verið að nefna á fundum með sveitarstjórnum, að samstarfið fælist í því að við fengjum að sjá úthlutunarlista fulltrúa ríkisstjórnarinnar til hinna ýmsu verkefna í kjördæminu trúlega tvisvar, þrisvar áður en tillögur fjvn. kæmu fram. Mín reynsla væri þó sú að okkar samstarfsverkefni væri það eitt að færa á milli verkefna ef eitthvað þyrfti að laga og þá með því að taka af öðrum og færa til hins. En þótt ég væri kannski að segja frá frekar ótrúlegum hlutum um allt samstarfið gekk þetta ekki eftir því að nú í ár var ekki talin ástæða til þess að fjalla um framlagalistann nema einu sinni. Klukkan hálfsjö sl. fimmtudag var kallaður saman fundur þm. Vesturl. og fram lagður listi yfir fjárveitingar til Vesturl. á fjárlögum ársins 1988. Þetta skyldi vera eini fundurinn. Þannig fór um öll stóru orðin um samvinnu þm. og samstarf.
Ég gerði enga athugasemd við þá skiptingu sent lögð var til. Vandamálin voru ekki þau að færa þyrfti á milli framkvæmda. Vandamálið var það að engin umræða hafði farið fram né gat farið fram milli allra þm. Vesturl, um þessar fjárveitingar, ríkisstjórnin var búin að skammta fjármagnið og það fjármagn sem til þessara verkefna var ætlað var allt of lítið.
Það er eitthvað meira en lítið að í okkar þjóðfélagi þenslu og góðæris þegar eitt höfuðmarkmið sósíaldemókratísks jafnaðarmanns í sæti fjmrh. er að halda í og reyna að draga úr framkvæmdum úti á landsbyggðinni til hafna- og skólamannvirkja. Það er merkilegt að þegar almennt er viðurkennt að styrkja þurfi stöðu landsbyggðarinnar gagnvart höfuðborgarsvæðinu sé ekki reynt að gera átak a landsbyggðinni á hinum samfélagslega vettvangi þar sem verkefnin eru unnin með samstarfi ríkis og sveitarfélaga og þá með því að auka framlag ríkisins til þessara verkefna. Sú er ekki raunin samkvæmt þeim fjárlagatillögum sem nú liggja fyrir.
Virðulegi forseti. Á undanförnum þingum hef ég ekki flutt brtt. við fjárlög um einstök verkefni á Vesturlandi. Þm. Alþb. hafa jafnan flutt brtt. við heildarupphæðir hvers málaflokks og það gerum við einnig nú. En ég breyti nú út af venjunni og flyt ásamt hv. 5. þm. Vesturl. Inga Birni Albertssyni og hv. 6. þm. Vesturl. Danfríði Skarphéðinsdóttur brtt. á þskj. 258 við 4. gr. frv., um framlag til sundlaugar á Akranesi. Við leggjum til að í stað 900 þús. kr. komi 4 millj. kr. ríkisframlag til sundlaugarinnar.
Í áranna röð hefur ríkissjóður ekki greitt neitt framlag til sundlaugar á Akranesi. Árið 1944 var lokið við byggingu á sundlaug á staðnum og var hún vígð 4. júní það ár. Allur kostnaður við byggingu þeirrar sundlaugar var greiddur af minningarsjóði Bjarna Ólafssonar skipstjóra og skipstjórafélaginu Hafþóri og vélstjóra- og sjómannadeild Verkalýðsfélags Akraness. Þessi sundlaug, sem er ekki nema 121/2 m að lengd, hefur orðið að duga Akurnesingum til þessa dags. Hún hefur verið kennslulaug, almenningslaug og aðstaða til sundæfinga afreksfólks en íslenskt afreksfólk í sundíþróttinni hefur margt komið frá Akranesi. Það nafn sem nú er þekktast er nafn Ragnheiðar Runólfsdóttur sem nú um sinn hefur orðið að hverfa frá Akranesi vegna ónógrar aðstöðu til þjálfunar og æfinga.
Í nokkur ár hafa á Akranesi verið uppi áform um að hefjast handa um byggingu nýrrar sundlaugar og á 40 ára afmæli Akranesbæjar 1982 var tekin ákvörðun um sundlaugarbyggingu. Framkvæmdir hófust svo árið 1984 og var í fyrstu áætlað að taka sundlaugina í notkun í ár en vegna fjárskorts og þá fyrst og fremst sökum þess að ekkert fé fékkst til verksins á fjárlögum ársins í ár frestuðust framkvæmdir um ár en nú er áætlað að sundlaugin verði tekin í notkun fullbyggð í maí 1988. Gerður hefur verið samningur milli menntmrn. og Akranesbæjar um þessa framkvæmd þótt enn sé hann reyndar ekki undirritaður. Þar er gert ráð fyrir að kostnaður við skólahluta sundlaugarinnar sé 16–17 millj. kr. Brtt. okkar gerir ráð fyrir að á fjárlögum 1988 verði veitt til verksins 4 millj. kr. og með þeirri fjárveitingu yrði stefnt að því að hlutur ríkisins, skólahlutinn, yrði greiddur á fjórum árum.
Það mætti hafa mörg orð um réttmæti þess að hv. Alþingi samþykkti þessa till. okkar. Réttur Akurnesinga til þess að fá nú loks á árinu 1988 framlag sem um munaði frá ríkissjóði til sundlaugar er studdur siðferðislegum rökum sem hv. þm. hljóta að gera sér grein fyrir. Sá réttur er einnig studdur þeim rökum að vítt um landið eru í gangi og hafa verið í gangi framkvæmdir, kannski ekki allar á vegum ríkisins en sumar þó, sem eru ekki brýnni nema síður sé en sundlaug á Akranesi.
Virðulegi forseti. Full þörf hefði verið á því að flytja brtt. um aukið framlag til ýmissa annarra verkefna á Vesturlandi og með því vekja athygli á því hve staða ríkisins er bágborin gagnvart landsbyggðinni og hlutur þess langt úr hófi fram á eftir. Sú tillögugerð verður nú látin vera, m.a. í trausti þess að sú eina till. sem við flytjum njóti þess að ekki er farið fram á meira en það að um 1/4 lögbundins viðurkennds framlags ríkisins til sundlaugar á Akranesi verði greiddur á árinu 1988 með þeim ásetningi að framlagið verði að fullu greitt á þarnæstu þremur árum.