15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2193 í B-deild Alþingistíðinda. (1552)
1. mál, fjárlög 1988
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Það var kannski mál til komið, þó þess væri ekki að vænta í atkvæðagreiðslu um fjárlög, að hv. þingheimur af karlkyni bæði konur hér í þingsölum almennt afsökunar. Og vegna þess sem hv. 5. þm. Reykv. sagði rétt í þessu og skoraði á hæstv. fjmrh. að biðja hv. 3. þm. Reykv. afsökunar vil ég ráðleggja hv. 5. þm. Reykv. að biðja hæstv. félmrh. afsökunar í leiðinni því að í gær sagði hann, ef ég man orðrétt, að best færi á því að hún færi nú heim að prjóna.