15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2193 í B-deild Alþingistíðinda. (1553)

1. mál, fjárlög 1988

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Það hefur verið haft að máltaki: Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Ef ég væri fjmrh. í dag mundi ég sýna aðgát í nærveru ósamþykkts fjárlagafrv. Eftir þau ómaklegu ummæli sem hæstv. ráðherra hafði hér áðan tek ég undir þau orð þar sent farið var fram á að hann bæði hv. 3. þm. Reykv. afsökunar.