15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2196 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)

1. mál, fjárlög 1988

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að lesa upp úr greinargerðum, ég hef komið þeim á framfæri við hv. þingheim varðandi þetta mál, greinargerð frá Rafmagnsveitum ríkisins. Ég hafði vænst þess að hv. þingheimur gerði sér ljósa alvöru þess máls sem hér er verið að greiða atkvæði um, en það verður að dæma að atkvæðagreiðslu lokinni.

Frá 1. febr. 1984 hafa niðurgreiðslur á raforku til húshitunar verið óbreytt upphæð á hverja kwst. Niðurgreiðslur sem hlutfall af rafhitunarkostnaði hafa síðan minnkað frá um 60% niður fyrir 30%. Frá næstu áramótum hækkar rafhitunartaxti Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða um 18%. Ef sú upphæð til niðurgreiðslna á rafhitun sem stendur í fjárlagafrv., 200 millj. kr., verður óbreytt mun það að mati Rafmagnsveitna ríkisins leiða til 40% hækkunar á rafhitunarkostnaði. Ég mismælti mig ekki: til 40% hækkunar á rafhitunarkostnaði. Slíkt skapar óþolandi og vaxandi mismunun fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Við þm. Alþb. erum andvígir þeirri öfugþróun og því er till. þessi flutt. Herra forseti. Ég segi já.