15.12.1987
Efri deild: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2202 í B-deild Alþingistíðinda. (1584)

137. mál, launaskattur

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 284 leggur meiri hl. nefndarinnar til að þetta frv. verði samþykkt en eins og fram kemur í fjárlagafrv. hefur verið gert ráð fyrir því að stefna að samræmingu launaskattsins og er nú stigið fyrsta skrefið með þessu frv. með því að leggja 1% launaskatt á þær greinar aðrar en búrekstur sem undanþegnar hafa verið launaskatti.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara mörgum orðum um efnisatriðin að öðru leyti. Auðvitað orkar skattur eins og launaskattur tvímælis, en þessi lög eru nú orðin allgömul, síðan 1965, og þær ríkisstjórnir sem setið hafa síðan hafa ekki treyst sér til að leggja þessa skattheimtu niður. Hún hefur verið með ýmsum hætti á þessum árum og kann ég ekki að rekja það nægilega vel til að fara út í þá sálma en legg sem sagt áherslu a að með samþykkt frv. nást um 400 millj. kr. í ríkissjóð sem er nauðsynleg skattlagning til að standa undir vaxandi þjóðarútgjöldum og ríkisútgjöldum.