20.10.1987
Sameinað þing: 6. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (159)

Sláturleyfi sláturhússins á Bíldudal

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Það var að frumkvæði Helga Seljans sem þm. meðan hann sat hér á Alþingi að flutt var till. um bætta nýtingu sláturhúsa og að leita leiða til að lengja nýtingartíma og bæta rekstrarstöðu þeirra. Ég var á þáltill. með honum um þetta efni á þinginu 1983–1984 og þessi till. var afgreidd, hins vegar með breytingum, frá atvmn. 8. maí 1984 og var þá svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta athuga hvernig bæta megi rekstrargrundvöll sláturhúsa m.a. með því að tryggja sláturhúsunum önnur verkefni svo að lengja megi nýtingartíma þeirra. Enn fremur verði kannað hvort hagkvæmt sé að endurbæta eldri sláturhús svo að viðunandi sé eða ráðast í nýbyggingar.“

Þetta var till. eins og atvmn. samþykkti hana og á grundvelli þessarar þál. Alþingis setur hæstv. ráðherra landbúnaðarmála á fót nefnd 27. febr. 1985 og þessi nefnd hefur skilað af sér miklum doðranti, nál. um hagræðingu í rekstri sláturhúsa. Þar er m.a. gert ráð fyrir að á Austurlandi, þar sem starfrækt eru tólf sláturhús, verði að fimm árum liðnum aðeins þrjú starfrækt. Árið 1991 verði búið að leggja níu niður. Ég tel í rauninni, herra forseti, að hér hafi verið gengið til verka með allt öðru hugarfari en gert var þegar þessi mál voru hér til umræðu á Alþingi 1983–1984 og sem lá til grundvallar samþykktar þeirrar tillögu sem Alþingi síðar afgreiddi. Og ég tel að orki meira en tvímælis sú stefna sem þarna hefur verið tekin í ýmsum greinum þó að hitt sé ljóst að auðvitað ber að leita leiða til að bæta rekstrarstöðu og lækka úrvinnslukostnað í landbúnaði bæði bændum og neytendum til hagsbóta almennt séð. Þetta á einnig við um það sláturhús sem hér hefur orðið kveikjan að umræðum. Þar sýnist mér að það hafi verið gengið heldur fljótt til verka og það séu mjög hæpnar ákvarðanir sem þar er verið að taka.