15.12.1987
Efri deild: 23. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2223 í B-deild Alþingistíðinda. (1601)
47. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Varðandi það samkomulag sem hv. 3. þm. Vesturl. gat um greindi minn þingflokksformaður mér frá því að það hefði verið miðað við að reyna að greiða fyrir því að tvö þau mál sem eru hér fyrr á dagskránni kæmust til Nd. ef kostur væri á þessum fundi og síðan yrði hafin umræða um húsnæðismálin. Ég hafði gert ráð fyrir því að tala ekki lengi við 1. umr. þessa máls vegna þess að það hefur fengið allrækilega meðhöndlun í Nd. og í fjölmiðlum. Hins vegar hygg ég að það sé nú fulllangt gengið, eftir því sem hv. 4. þm. Norðurl. e. Steingrímur Sigfússon tjáði mér, að tala um að menn hafi rofið samninga. Ég hygg að reynslan sé miklu frekar sú að við þurfum að hnýta hnútana aðeins betur og kannski ekki skrýtið þó það sé eitt og eitt losaralegt atriði í meðferð mála þegar þm. eru orðnir langlúnir eftir langar og þreytandi fundarsetur. Mér finnst að þetta kenni okkur ekki að það sé ekki hægt að gera samninga heldur að við þurfum að reyna að gera betri samninga ef á að þoka málum áfram.