15.12.1987
Efri deild: 23. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2224 í B-deild Alþingistíðinda. (1603)
47. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Júlíus Sólnes:
Hæstv. forseti. Ég skal ekki hafa mörg orð um þetta. Ég get ómögulega fallist á að hér hafi verið rofnir neinir samningar. Við ræddum um að við mundum reyna að ljúka 1. umr. um húsnæðismál eftir því hvernig tíminn ynnist til. Nú hefur farið svo að það vannst ekki tími til að ljúka umræðunni og við því er ekkert að gera. Við töluðum um að við mundum í hæsta lagi vera hér til hálfátta og klukkan er orðin rúmlega það. Ég hafna því algjörlega að okkur sé meinað að fjalla ítarlega um þessar till. sem við erum búin að leggja ómælda vinnu í að vinna. Við erum búin að liggja nótt og dag yfir þessum till. okkar og ég tel að þarna séu svo merkilegar till. á ferðinni að það beri að ræða þær. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta eru miklu betri og merkilegri till. en hingað til hafa séð dagsins ljós á hinu háa Alþingi. Ég hafna því algjörlega að það eigi að afgreiða þær með fimm mínútna ræðu án þess að þær fái neina málefnalega umfjöllun til að hraða húsnæðisfrv. hæstv. félmrh. í gegn. Ég krefst þess að þessar till. fái málefnalega og skipulega umfjöllun.