15.12.1987
Efri deild: 23. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2224 í B-deild Alþingistíðinda. (1604)
47. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Í fyrsta lagi: Þær till., sem hv. þm. Júlíus Sólnes vék að, eru ekki á dagskrá hér. Hann getur flutt þær sem brtt. við frv. við 2. umr., en þær eru ekki á dagskrá. Hann hefur því ekki verið að ræða dagskrármál. Ég ítreka að á þeim fundi sem haldinn var í myndaherberginu áðan var niðurstaðan í mínum huga sú að við næðum þeim áfanga að koma þessu máli til nefndar og þurfa ekki að vera með kvöldfund annað kvöld, bæði vegna starfsfólks þingsins og eins vegna þm. sjálfra sem orðnir eru þreyttir af löngum fundahöldum sem ekki er óeðlilegt. Ég skildi niðurstöðu fundarins þannig og ég veit að ég var ekki einn um að skilja hana þannig. Það er enginn maður að koma í veg fyrir að hv. þm. Júlíus Sólnes geti rætt till. sínar og Borgarafl. í húsnæðismálum. Hann verður bara að hlíta því að gera það þegar þær till. eru á dagskrá. Þó hann hafi gert það nú undir öðrum dagskrárlið eru till. ekki komnar með formlegum hætti inn í deildina í tengslum við þetta mál. Þær koma þar síðar. Það meinar manninum enginn, hv. þm., að ræða þessar till. Það er mikill misskilningur. En við skulum gera það eftir réttum hætti.