15.12.1987
Neðri deild: 25. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2227 í B-deild Alþingistíðinda. (1613)
125. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Eins og fram kemur á nál. skrifaði ég undir það með fyrirvara. Sá fyrirvari lýtur að nokkrum hlutum þó að ég sé efnislega samþykkur bæði þeim breytingum sem lagðar eru til í frv. og þeim brtt. sem fjh.- og viðskn. flytur. Þar er í öllum tilfellum, hygg ég, um tæknilegar úrbætur eða lagfæringar að ræða sem nefndin varð sammála um að gera og að betur færi. Eins hygg ég að þær breytingar, sem milliþinganefnd og aðrir þeir sem hönd hafa lagt á plóginn og lagt er nú til að gera á gildandi lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, séu til bóta. Það fór eins og menn grunaði á síðasta þingi að þegar á því hausti sem í hönd færi, áður en staðgreiðslan kæmist til framkvæmda, yrði nauðsynlegt í ljósi þeirrar skoðunar sem færi fram að gera ýmsar lagfæringar á frv. Og sú hefur orðið raunin á. Mikið mega þeir sem um þetta hafa fjallað á undanförnum vikum og mánuðum vera glöggskyggnir ef ekki leynast þó enn ýmsar holur eða göt í þessum kerfisbreytingum og lögum sem utan um þá breytingu eiga að ná. Því er næsta víst að enn mætti betur gera ef nægur tími væri fyrir hendi. Það voru reyndar þegar á sl. vetri uppi efasemdir um að skynsamlegt væri að ganga svo hratt fram í jafnviðamikilli kerfisbreytingu og raun ber vitni og talið að nauðsynlegt væri að hafa aðlögunartíma eða lengri aðdraganda að kerfisbreytingunni. Höfðu menn þá einkum tvennt í huga, annars vegar það að nægur tími ynnist til að fínpússa það fyrirkomulag sem hafa skyldi á um skattheimtuna og alla meðferð málsins, og hins vegar, og e.t.v. ekki síður, það að mikil nauðsyn væri á að kynna almenningi í landinu þær breytingar sem í vændum væru með mjög rækilegum hætti. Þar sem slíkar eða eitthvað hliðstæðar breytingar hafa átt sér stað í skattamálum nálægra landa hefur það yfirleitt átt sér alllangan og ítarlegan aðdraganda og mikið hefur verið lagt upp úr að kynna það fyrir almenningi hvað hann ætti í vændum. Fyrirvari minn við þessi tvö frv. sem eru á dagskrá fundarins í kvöld, þ.e. annars vegar gildistökufrv. og hins vegar frv. um staðgreiðslu opinberra gjalda, lýtur einkum og sér í lagi að þessum þætti.
Ég tek það skýrt fram við yður, herra forseti, að ég hef fyrirvara á um það að þessum þætti málsins sé nógu vel komið og ég þykist hafa orðið áþreifanlega var við það og vænti þess að ýmsir aðrir hv. þm. hafi orðið varir við það að þrátt fyrir ágætlega leiknar auglýsingar í sjónvörpum, sumar hverjar, og hinar myndarlegustu sviðsmyndir sem þar blasa við þjóðinni hefur það ekki dugað betur en svo að ýmsir virðast næsta ruglaðir í jafnvel einföldustu atriðum málsins, eins og þeim hvað þeir eigi að gera við skattkortið sitt.
Ég vil því að það komi skýrt fram að þegar verið er að afgreiða þessar lagfæringar, sem eins og ég hef þegar tekið fram eru, að mínu mati, til bóta fylgir því þó ekki samþykki mitt við málsmeðferðina að öllu leyti. Ég tel að menn hafi, m.a. vegna þess hversu milliþinganefndin hóf seint störf og hversu hæstv. ráðuneyti var lengi að afgreiða síðan málin hér inn í þingið, tapað mjög dýrmætum tíma sem hefði þurft að nota, bæði til ítarlegrar yfirlegu á frv. en þó e.t.v. ekki síður til þess að hefja fyrr kynningarstarf og fræðslustarf með þjóðinni, með væntanlegum skattgreiðendum, þannig að komast mætti hjá meiri ruglingi en óhjákvæmilega sjálfsagt verður, meðal annars t.d. með því að senda fyrr út þau einstaklingsbundnu gögn eins og skattkort og aðrar upplýsingar sem hver og einn fær í hendur, þannig að ekki væru einungis fáeinir virkir dagar eftir fram að áramótum sem aftur leiðir til þess og hefur leitt til þess að flestar símalínur til þeirra aðila, sem nú treysta sér til að veita einhverjar upplýsingar um þessi efni, eru nú rauðglóandi. Það á ekki einungis við hið háa fjmrn. og skattstjóraembættin víða um landið heldur er mér tjáð að flestir þeir aðilar, bókhaldsskrifstofur, endurskoðendur, jafnvel lífeyrissjóðir og stéttarfélög og ýmsir slíkir, geri nú lítið annað þessa síðustu daga en að svara spurningum ráðvilltra væntanlegra staðgreiðsluskattgreiðenda.
Þessu tvennu vildi ég sérstaklega halda til haga, herra forseti, þó að ég undirstriki það að ég tel þessar lagfæringar til bóta og styðji þær. Sérstaklega er ég ánægður með að samkvæmt minni ósk eða tillögu náðist samkomulag í hv. fjh.- og viðskn. um að færa ákvæði í 7. gr. úr 10% í 20% sem lýtur að því hversu mikið af persónufrádrætti sínum einstaklingur má hafa nýtt ef hann verður síðan fyrir tekjuleysi hluta af árinu, að þá skuli hann eftir sem áður hafa rétt til þess að fá út gefið uppsafnað skattkort þar sem hans ónýtti persónuafsláttur kemur fram og nýtist honum til frádráttar á síðari hluta ársins. Ég tel hér vera um stórt réttlætisatriði að ræða. Og þó að það sé vissulega augljóst mál að það að hækka þessi mörk úr 10 í 20% þýðir að umtalsvert fleiri geta þarna komið til greina og það þýðir nokkuð aukna vinnu fyrir skattstofur fagna ég því að með þessu móti er verið að koma til móts við þær athugasemdir sem ýmsir hafa bent á, sem ýmsir hafa haldið fram, að tekjusveiflur og tekjulaus tímabil gætu, ef ekki væri reynt að koma til móts við það með þessum hætti, orðið mönnum þung í skauti. Þess vegna styð ég þessar breytingar með þeim fyrirvara sem ég hef rakið.