16.12.1987
Efri deild: 24. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2243 í B-deild Alþingistíðinda. (1633)
121. mál, Vísindaráð og Rannsóknaráð ríkisins
Frsm. menntmn. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Menntmn. hefur fjallað um frv. til l. um breytingu á lögum um Vísindaráð og Vísindasjóð. Hér er um að ræða frv. til staðfestingar brbl. sem út voru gefin með breytingu á gildistökuákvæði. Nefndin leggur einróma til að frv. verði samþykkt.