16.12.1987
Neðri deild: 28. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2359 í B-deild Alþingistíðinda. (1730)

129. mál, kirkjugarðar

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. menntmn. og frsm. hennar fyrir þeirra álit og gagnlegar tillögur sem horfa til batnaðar á þessu máli. Þá á ég við hvort tveggja frv., um sóknargjöld, sem rætt var hér áðan, og það sem nú liggur fyrir um breytingu á lögum um kirkjugarða.

Ég stend hér eingöngu upp til að segja að sú eina brtt. sem segja má að feli í sér efnisbreytingu er hin síðast nefnda, við 3. gr. í frv. til l. um breytingu á lögum um kirkjugarða, þar sem breytt er orðinu „skal“ í: „er heimilt að“. Ég vil taka það skýrt fram að ég er samþykkur þeirri breytingu og þakka hv. menntmn. fyrir hennar tillögugerð.