17.12.1987
Sameinað þing: 34. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2386 í B-deild Alþingistíðinda. (1771)

204. mál, afstaða Íslands til framkvæmdar afvopnunartillagna

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs einungis til að staðfesta það, sem hæstv. utanrrh. hér sagði, að tillögurnar voru sýndar í utanrmn. og raunar ræddar eftir að atkvæði höfðu verið greidd í fyrstu nefnd allsherjarþingsins.

Ég kannast ekki við það eða minnist þess ekki að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hafi sérstaklega beðið um skýringar á þessu máli. Það var svo að einmitt daginn fyrir utanríkismálanefndarfund áttum við mjög langan fund saman inni í utanrrn., ég og hæstv. utanrrh., um margháttuð utanríkismál. Við vorum að gera hvor öðrum grein fyrir okkar sjónarmiðum sem mér virtust falla yfirleitt saman. Við rákum augun í þessa tillögu einmitt og að hinar Norðurlandaþjóðirnar höfðu setið hjá. Þess gat utanrrh. morguninn eftir í utanrmn. að hann ætlaði að kanna það mál betur fyrir atkvæðagreiðslu á allsherjarþinginu eins og hann greindi frá hér. Þetta er allt saman satt og rétt og þarf ekkert að fara dult.

En mergurinn málsins er sá að utanrmn. hefur ekki ákvörðunarvaldið, það er ráðherrans. Við ræddum þetta efnislega á þann veg sem hann hér gat um. Ég held að okkur greini ekki mikið á um meginefni á þessu sviði, enda hefur ráðherrann rækilega t.d. undirstrikað að það er samstaða Atlantshafs-bandalagsríkjanna sem hefur orðið þess valdandi að árangur hefur náðst í utanríkismálum og samstaða Alþingis Íslendinga í þál. 23. maí 1985 er auðvitað hin merkasta og við hana eigum við að halda.