17.12.1987
Sameinað þing: 34. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2389 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)

161. mál, snjómokstur

Samgönguráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Snjómokstursreglur þær sem nú er í gildi voru gefnar út í desember 1985. Hefur endurskoðun reglna þessara farið fram með nokkurra ára millibili undanfarin ár. Við hverja endurskoðun hafa reglurnar ætíð verið rýmkaðar nokkuð. Í gildandi reglum er snjómokstur á hringveginum í aðalatriðum sem hér segir:

Frá Borgarnesi til Reykjahlíðar við Mývatn er mokað tvisvar í viku eins og fram kom í ræðu fyrirspyrjanda. Frá Reykjahlíð að Jökulsárbrú hjá Fossvöllum er ekki mokað og þaðan í Egilsstaði er mokað einu sinni í viku. Frá Egilsstöðum til Reyðarfjarðar er opnað fimm daga í viku, en þaðan til Víkur í Mýrdal er mokað þrisvar í viku. Frá Vík til Borgarness er haldið opnu 5–7 daga í viku.

Upptalningin hér á undan varpar ljósi á að misjöfn áhersla hefur verið lögð á hina ýmsu hluta hringvegarins. Sá hluti hans sem ekki er haldið opnum að vetrinum er um 150 km og er þar farið um langa og sumpart háa fjallvegi, þ.e. Möðrudals- og Mývatnsöræfi.

Í fsp. er einnig rætt um að moka leiðir frá hringvegi til stórra þéttbýlisstaða. Ekki er skilgreint nánar hvaða staðir þetta eru, en sé t.d. miðað við þúsund íbúa eða þar um bil næði þetta til þéttbýlisstaða á Snæfellsnesi, Patreksfjarðar, Ísafjarðar, Siglufjarðar, Ólafsfjarðar, Húsavíkur, Seyðisfjarðar og Neskaupstaðar. Til flestra þessara staða er nú opnað 1–2 daga í viku nema til Patreksfjarðar. Þangað er vegur ekki mokaður, enda illgerlegt miðað við núverandi ástand vegarins um miðbik Barðastrandarsýslu. Meðal þessara vega er að finna marga snjóþyngstu kafla landsins og um leið þá dýrustu. Kostnað sem af þessu leiði er erfitt að segja fyrir um með nokkurri nákvæmni. Með því að líta til undangenginna ára má þó e.t.v. átta sig á stærðargráðu kostnaðar. Hér verður litið til síðustu fimm ára, 1982–1986, bæði árin meðtalin, fremur en þriggja eins og gert er í fsp., þar eð reikna verður með því að gefa mynd sem er nær meðaltali. Sé þetta gert má ætla að aukinn kostnaður á hringveginum gæti verið af stærðargráðunni 30 millj. kr. á verðlagi í október 1987. Meiri hluti þessa kostnaðar félli til á þeim kafla sem ekki er mokaður samkvæmt gildandi reglum. Séu teknar með tengingar við þéttbýli sem nefnd voru hér áðan mætti líklega margfalda töluna hér á undan með 2–3. Til samanburðar má nefna að heildarkostnaður við vetrarviðhald síðustu fimm ár er um 250 millj. kr. á ári á sama verðlagi.

Svo sem hér er rakið eru reglur um snjómokstur á hringveginum breytilegar eftir ástæðum. Það á einnig við um tengingar þéttbýlisstaða utan hringvegarins. Fyrir þessu liggja gild rök og þá fyrst og fremst fjárhagsleg. Ekki verður séð að skynsamlegt sé að breyta þessu í þá veru að taka upp eina reglu fyrir alla þessa vegi. Á hinn bóginn ber þess að geta að snjómokstursreglur munu koma til endurskoðunar áður en langt um líður. Hafa þegar borist margar óskir um aukna þjónustu á þessu sviði og munu þær ásamt öðrum hugmyndum sem fram koma, þar á meðal þeim sem felast í fsp., verða skoðaðar í heild.