17.12.1987
Sameinað þing: 34. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2391 í B-deild Alþingistíðinda. (1777)

187. mál, erlent starfsfólk hérlendis

Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):

Herra forseti. Að undanförnu hefur streymt erlent fjármagn inn í landið í formi lánsfjár. Þetta hefur m.a. valdið tímabundinni þenslu á vinnumarkaði og skorti á vinnuafli í sumar atvinnugreinar. Hafa nýlega orðið talsverðar umræður um flutning á erlendu vinnuafli hingað til lands til að leysa þennan vanda þar sem Íslendingar hafa af ýmsum ástæðum ekki fengist til að sinna honum. Sýnist þar sitt hverjum og hafa leiðarar dagblaða og margir aðrir látið skoðanir sínar í ljós um þetta efni. Er Ísland of stórt? var heiti ráðstefnu sem Verslunarráðið hélt nýlega og hafði að viðfangsefni atvinnuástandið í landinu og hugsanlegan grundvöll fyrir stórfelldan innflutning á erlendu vinnuafli. Þar kom fram að Þjóðhagsstofnun hefði gengist fyrir könnunum hjá fyrirtækjum varðandi eftirspurn þeirra eftir starfsfólki. Þessar kannanir hafa verið gerðar undanfarin þrjú ár þrisvar sinnum á ári og síðasta könnunin var framkvæmd í október sl. og reyndist heildareftirspurnin samsvara um 3250 störfum sem er mun meira en í síðustu könnunum. Eftirspurnin var áberandi mest eftir verkafólki og iðnaðarmönnum, en hins vegar var eftirspurn eftir sérhæfðu starfsfólki stöðugt vaxandi og sérstaklega þá í heilbrigðisþjónustunni. Eftirspurn eftir starfsfólki við afgreiðslu-, skrifstofu- og tölvuvinnu var hins vegar ekki veruleg og það var líka áberandi í niðurstöðum þessarar könnunar að á höfuðborgarsvæðinu hefði ekki verið eins mikil eftirspurn og úti á landi þar sem verulega mikil þörf er, aðallega fyrir fiskvinnslu. Það kom einnig fram á ráðstefnunni að um 700 útlendingar vinna nú hér á landi, flestir í fiskvinnslu, en þó einnig nokkrir í heilbrigðisstofnunum.

Í nóvemberlok sótti ég ráðstefnu írskra kvenna í Dublin sem vilja styðja konur til þátttöku í stjórnmálum. Það kom mér verulega á óvart hve margar konur og reyndar karlar líka, t.d. tveir leigubílstjórar sem óku mér þessa tvo daga þegar ég dvaldist þarna, spurðu mig að fyrra bragði, þegar þeir fréttu hvaðan ég væri, um atvinnu og atvinnu ástand á Íslandi. Þetta var vegna þess að nýlega hafði verið talsvert auglýst í fjölmiðlum á Írlandi og þá sérstaklega í Dublin eftir fólki til starfa á Íslandi, en í Írlandi ríkir mikið atvinnuleysi. Ég hélt sannast að segja að þessi mál væru fyrst og fremst á umræðustigi hér heima en hefðu ekki náð svo langt að farið væri að auglýsa í stórum stíl erlendis eftir starfsfólki. Því hef ég leyft mér ásamt hv. þm. Málmfríði Sigurðardóttur að bera fram fsp. til hæstv. félmrh. á þskj. 212:

„1. Veit félmrh. til þess að settar hafi verið á stofn hérlendis sérstakar ráðningarstofur eða að einhver aðili hafi tekið að sér að auglýsa eftir erlendu starfsfólki til vinnu hér á landi? Í hvaða löndum hefur helst verið auglýst?

2. Hafa slíkir aðilar fengið vilyrði hjá félmrh. fyrir veitingu atvinnuleyfa fyrir erlent starfsfólk?

3. Hve margir erlendir menn hafa komið til starfa á Íslandi á árinu 1987, skipt eftir mánuðum?"