17.12.1987
Sameinað þing: 34. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2392 í B-deild Alþingistíðinda. (1778)
187. mál, erlent starfsfólk hérlendis
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Til mín er beint í þremur töluliðum fsp. er varðar erlent starfsfólk hérlendis. 1. tölul. fsp. hljóðar svo: „Veit félmrh. til þess að settar hafi verið á stofn hérlendis sérstakar ráðningarstofur eða að einhver aðili hafi tekið að sér að auglýsa eftir erlendu starfsfólki til vinnu hér á landi? I hvaða löndum hefur helst verið auglýst?"
Því er til að svara að með bréfi dags. 6. okt. 1987 var félmrn. tilkynnt að stofnað hefði verið í Reykjavík fyrirtækið Íslensk atvinnumiðlun hf., en sem kunnugt er er fyrirtækjum og einstaklingum heimilt að annast milligöngu um ráðningar starfsfólks, enda sé það gert á kostnað atvinnurekanda, sbr. 17. gr. laga nr. 18/1985, um vinnumiðlun.
Í bréfi fyrirtækisins kom fram að Íslensk atvinnumiðlun hf. hefði hug á að sérhæfa sig í vinnumiðlun milli Íslands og annarra landa, einkum Norðurlanda. Fyrirtækið óskaði eftir samstarfi við ráðuneytið varðandi samskipti við vinnumarkaðsyfirvöld í öðrum norrænum löndum, en því var af ráðuneytisins hálfu hafnað þar sem slíkt samræmist ekki samningum um sameiginlegan norrænan vinnumarkað sem Ísland er aðili að. Ráðuneytinu er ekki kunnugt um að fyrirtækið Íslensk atvinnumiðlun hafi auglýst eftir starfsfólki á Norðurlöndum og aðspurður neitar forstöðumaður fyrirtækisins því að svo hafi verið. Hins vegar vill hann ekki fortaka að umboðsmaður fyrirtækisins á Írlandi kunni að hafa auglýst eitthvað þar í landi.
Ráðuneytinu er ekki kunnugt um að önnur fyrirtæki hafi verið sett á stofn hérlendis í því skyni að auglýsa eftir eða ráða erlent vinnuafl til landsins. Hins vegar er vitað að innlend fyrirtæki auglýsa öðru hvoru eftir starfsfólki erlendis. Má þar nefna skrifstofu Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Bretlandi sem um árabil hefur annast ráðningu starfsfólks fyrir frystihúsin. Þá er og kunnugt að nokkur fyrirtæki auglýstu á sl. hausti eftir starfsfólki í Danmörku til verslunar- og þjónustustarfa.
Loks má geta þess, enda þótt það liggi utan efnis fsp., að ráðuneytinu er kunnugt um að í Bretlandi var sett á stofn fyrirtæki, Iceland International, sem auglýsti eftir vinnuafli til starfa á Íslandi. Að þessu fyrirtæki mun hafa staðið breskur ríkisborgari, að því að best verður séð í fjáraflaskyni og án samráðs við íslenska aðila. Íslenska sendiráðið í London gerði athugasemdir við auglýsingu og upplýsingadreifingu fyrirtækisins opinberlega og mun lítið hafa orðið úr starfseminni.
Í 2. tölulið fsp. er spurt: „Hafa slíkir aðilar fengið vilyrði hjá félmrh. fyrir veitingu atvinnuleyfa fyrir erlent starfsfólk?"
Lögum samkvæmt eru atvinnuleyfi veitt beint til atvinnurekenda en ekki til aðila sem hefur milligöngu um ráðningu svo sem ráðningar- og ráðgjafarfyrirtækja. Atvinnurekandi, sem hyggst ráða erlendan mann í þjónustu sína, verður að sækja um svonefnt fyrirframleyfi áður en ráðning fer fram og má enginn útlendingur koma til landsins í atvinnuskyni án slíks leyfis. Í samræmi við þessar meginreglur laga hafa hvorki Íslensk atvinnumiðlun né önnur sambærileg fyrirtæki fengið vilyrði til innflutnings á útlendingum frá félmrn.
Í þriðja lagi er spurt: „Hve margir erlendir menn hafa komið til starfa á Íslandi á árinu 1987, skipt eftir mánuðum?"
Fjöldi nýrra atvinnuleyfa sem veitt hafa verið á árinu 1987 skipt eftir mánuðum er þessi: Í janúar 6 leyfi, í febrúar 14 leyfi, í mars 93 leyfi, í apríl 61 leyfi, í maí 47 leyfi, í júní 29 leyfi, í júlí 59 leyfi, í ágúst 61 leyfi, í september 39 leyfi, í október 100 leyfi, í nóvember 57 leyfi, í desember, þ.e. til 10. des., 58 leyfi eða samtals 624 leyfi. Samtals hafa því verið veitt 624 ný atvinnuleyfi á árinu 1987, en auk þess er mikið um framlengingar eldri leyfa þannig að að jafnaði eru gefin út um 100 atvinnuleyfi á mánuði hverjum.
Eins og fram kemur af yfirlitinu skera mánuðirnir mars og október sig úr hvað fjölda nýrra leyfa snertir. Skýringin er sú að í þessum mánuðum fjölgar jafnan útlendingum sem hingað eru ráðnir til fiskvinnslustarfa, en eins og kunnugt er hefur það verið svo um árabil að fiskvinnslan víða á landinu hefur verið háð erlendu vinnuafli að verulegu leyti. Í þeirri eftirspurnarþenslu sem ríkt hefur á yfirstandandi ári hefur þeim stöðum á landinu fjölgað sem þurft hafa á útlendu vinnuafli að halda og er áætlað að 50–55% af nýjum atvinnuleyfum á árinu hafi verið vegna fiskvinnslunnar. Að öðru leyti dreifast atvinnuleyfi á flestar starfsgreinar, en af öðrum fjölmennum hópum má nefna heilbrigðisgeirann og ýmiss konar þjónustustörf.
Lausleg athugun á þjóðerni þeirra útlendinga sem hér fengu atvinnuleyfi leiðir í ljós að flestir eru breskir ríkisborgarar eða um 200 talsins, bandarískir ríkisborgarar eru um 100 talsins, þýskir 100 talsins, önnur Evrópulönd um 100 talsins, Suður-Afríkubúar 50 talsins, Asíubúar 50 talsins, Ástralir 30 talsins eða alls 630.
Ég vænti þess að ég hafi með þessu svarað þeirri fsp. sem til mín hefur verið beint.