17.12.1987
Sameinað þing: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2430 í B-deild Alþingistíðinda. (1795)
Greinargerð utanrrh. um byggingu flugstöðvar
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir:
Hæstv. forseti. Þessar umræður um flugvallarhótelið eru sprottnar af tillögum sem við komum með, nokkrar hagsýnar húsmæður á Alþingi, þar sem við vildum fá skýringu á ýmsu sem við höfðum heyrt um kostnað umfram áætlun við þessa byggingu ásamt öðru. Við eigum það sammerkt að við erum húsmæður jafnframt okkar atvinnu annars staðar og við eigum það sammerkt að við höfum eiginlega verið og erum fjármálaráðherrar okkar heimilis inn á við. Ég hugsa að við eigum það líka sameiginlegt að við höfum alla jafnan þurft að velta hverjum seðli oftar en einu sinni fyrir okkur og þegar við höfum ekki getað staðið okkur við að láta tekjurnar endast höfum við tekið ábyrgð á því sjálfar og við höfum ásakað sjálfar okkur fyrst og fremst þó að það hafi kannski ekki verið réttlátt.
Hér virðist enginn bera ábyrgð á neinu. Það er blásið út í loftið yfir 1000 milljónum, blásið rétt si svona eins og það sé verið að blása á biðukollu. Og það finnst engum að hann beri ábyrgð á því, ekki byggingarnefndinni, ekki húsameisturunum, ekki ráðherrunum. Það veit enginn hvernig þetta skeði. Þetta bara var svona. Maður fær í raun og veru enga skýringu á því af hverju þetta var svona. Út úr flugstöðvarbyggingunni vex eitthvert æxli, einir 1000 fermetrar. Það veit enginn hvernig það varð til. Byggingarnefndin virðist ekki bera neina ábyrgð á því. Hvernig stóð á því að það varð til? Einhver hlýtur að hafa samþykkt það. Einhver hlýtur að hafa stjórnað.
Ég held að það sé meira en mál til komið að þeir menn sem sitja í ráðherrastólum beri ábyrgð á þeim framkvæmdum sem framkvæmdar eru undir þeirra fagráðuneyti. Þeir hljóta að vera ábyrgir fyrir þessum milljarði sem þegar hefur verið eytt og á eftir að stækka meira. Það þýðir ekkert að koma fram fyrir Alþingi og segja: Það var ekkert hægt við þessu að gera, það gat enginn að þessu gert. Menn hljóta að hafa ákveðið þetta einhvers staðar.
Það eru afar oft við konurnar hér á Alþingi sem komum með tillögur um að einhverjum fjármunum sé eytt, oftast nær í þágu þeirra sem okkur finnst einhverjum órétti beittir. Þá fáum við yfirleitt þau svör: Það eru engir peningar til. Þetta er ekki hægt. Við viljum gera það, en það er bara ekki hægt. Það eru engir peningar til. Svo eru til milljarðar í svona fyrirtæki og það finnst engum neitt athugavert við það. Það eru peningar til bara þegar þið viljið eyða þeim. Það virðist ekki skipta ykkur neinu máli þó þið séuð að eyða langt fram yfir það sem þið hafið lofað eða ákveðið að eyða.
Haldið þið virkilega að almenningur trúi þessu? Haldið þið virkilega að almenningur trúi því að þrælmenntaðir menn hafi ekki getað reiknað út hvað þetta kostaði? Haldið þið að almenningur trúi að menn, sem eru eins verkvanir og þeir sem byggðu þessa flugstöð, hafi ekki vitað að hún var stækkuð? Hvað haldið þið eiginlega að við séum, þetta venjulega fólk í landinu? Hvernig dettur ykkur í hug að bera þetta á borð fyrir okkur? Við vitum vel að þið hafið setið einhvers staðar saman í hnapp og falið þetta. Þið hafið alltaf vitað af því. Okkur dettur ekki í hug að trúa þessu. Þið eigið að vera svo stórir og það góðir drengir að viðurkenna þetta. Þið eigið að viðurkenna hver ber sökina. Það þýðir ekkert að koma með plagg eins og kom fram í þessari ámátlegu skýrslu, sem ekki tekur að lesa, og segja: Við ætlum að leggja til að svona gerist ekki aftur. Það er nefnilega ekki í fyrsta skipti í þessari flugstöð sem skeð hefur einhver vitleysa. Hún er kannski stórkostlegri þarna. Og alltaf er sagt: Þetta kemur ekki fyrir aftur. Þetta skal ekki koma fyrir aftur. Þetta kemur alltaf fyrir aftur þegar ykkur hentar. Það gerir það.
Mér finnst virðingarvert af hæstv. núv. fjmrh. að hafa þó mótmælt þessu. Ég veit auðvitað að hann kyngir því öllu saman aftur. En hann mótmælti þó. Það gerði hann.
Fólk er orðið þreytt í þessum umræðum og ég er ekki vön að lengja umræður mikið. Ég þakka hæstv. samgrh. þó fyrir að hann skuli sitja hérna og hlusta á mig. Hinir læddu sér út sem von er. Sumir þeirra eru svo nýkomnir til landsins að þeir kunna ekki almennilega við sig á Íslandi enn þá. En þeir eru heldur ekki vanir því að sitja hérna þegar við erum að tala „þessar konur“, ég tala nú ekki um verkakonur eins og ég sem hafa ekkert vit á fjármálum að þeirra dómi.