17.12.1987
Sameinað þing: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2454 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)
Greinargerð utanrrh. um byggingu flugstöðvar
Páll Pétursson:
Herra forseti. Það er alltaf þægilegt að vera vitur eftir á og það hefur verið sagt að eini kosturinn við mistökin sé þegar hægt er að læra af þeim. Sennilega og vonandi eigum við ekki eftir að byggja fleiri svona hús, a.m.k. ekki flugstöð af þessari gerð því að byggingarsagan er því miður, verðum við að viðurkenna, vörðuð mistökum.
Það var umdeilanlegt þegar verkið var hafið hvort, hvernig eða hvenær ætti að hefja það. Menn komust að því að teikningin væri allt of stór, hún var minnkuð og ákvörðun Alþingis fjallaði um það að byggja flugstöð samkvæmt þessari minni teikningu. Ákvörðun Alþingis var um það að byggja flugstöð sem átti að kosta 42,4 millj. dala, þ.e. 33 millj. bandaríkjadala að viðbættum milli 8 og 9 millj. dala vegna áætlaðra verðhækkana á byggingartímanum. Ég ætla mönnum til upprifjunar, með leyfi forseta, að lesa lög nr. 45 frá 1984, sem eru grundvöllur að byggingu flugstöðvarinnar. Þau hljóða svo:
„1. gr. Vegna byggingar flugstöðvar og tengdra mannvirkja á Keflavíkurflugvelli er fjmrh. f.h. ríkissjóðs heimilt:
1. Að taka lán að fjárhæð allt að 616 millj. kr. eða jafnvirði allt að 22 millj. bandaríkjadala. Lánsfjárhæð vegna framkvæmda ár hvert skal ákveðin í lánsfjárlögum í samræmi við fjárfestingar- og lánsfjáráætlun.
2. Að fella niður eða endurgreiða aðflutningsgjöld, sérstakt tímabundið vörugjald og söluskatt af byggingarefni, vélum, tækjum og búnaði til framkvæmdanna. Jafnframt er fjmrh. heimilt að fella niður eða endurgreiða gjöld þessi af vinnuvélum sem notaðar verða við byggingarframkvæmdir samkvæmt þessum lögum. Við ákvörðun endurgreiðslu gjalda af vinnuvélum skal höfð hliðsjón af fyrningu vélanna vegna notkunar þeirra við byggingarframkvæmdirnar. Fjmrh. getur sett nánari reglur um framkvæmd þessarar heimildar og getur þar m.a. kveðið á um fyrningar og fyrningarhlutföll vegna endurgreiðslu gjalda af vinnuvélum.
2. gr. Utanrrh. skal fara með yfirstjórn byggingar flugstöðvarinnar og tengdra mannvirkja.
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Í athugasemdum með lagafrv. sagði enn fremur: „Frv. það sem hér er lagt fyrir Alþingi er flutt í samræmi við samkomulag stjórnarflokkanna frá 26. maí s.l. um myndun ríkisstjórnar, en í samkomulaginu er kveðið svo á að reist skuli flugstöð á Keflavíkurflugvelli í samvinnu við Bandaríkjastjórn.
Fyrir Alþingi hafa tvívegis áður verið lögð frumvörp um flugstöð á Keflavíkurflugvelli, auk þess sem ýmsar fyrri ríkisstjórnir hafa fjallað um nauðsyn þessa máls án þess að framkvæmdir hafi verið ákveðnar.
Í tengslum við endurskoðun varnarsamnings við Bandaríkin frá 5. maí 1951 var m.a. ákveðið að stefnt skyldi að aðskilnaði farþegaflugs frá starfsemi þeirri sem varnarliðið rekur á Keflavíkurflugvelli samkvæmt ákvæðum varnarsamningsins. Algjör forsenda slíks aðskilnaðar er bygging flugstöðvar á nýju svæði. Samkomulag náðist milli ríkisstjórna Íslands og Bandaríkjanna um samvinnu um byggingu flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli og var samningur þar að lútandi undirritaður hinn 5. júlí 1983.
Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að ríkisstjórnin sjái um byggingu flugstöðvarinnar og er gert ráð fyrir að byggingu hennar verði lokið á árinu 1987. Heildarkostnaður við byggingu flugstöðvarinnar, þar með taldar svæðislagnir, er áætlaður 42 millj. bandaríkjadala og munu Bandaríkin greiða 20 millj. dala af þeirri upphæð. Hlutur Íslendinga, 22 millj. dala, er háður samþykki Alþingis, en fyrirvari er um að áfangagreiðslur af hálfu Íslendinga verði ákveðnar í ljósi ríkjandi efnahagsástands á hverjum tíma á meðan á framkvæmdum stendur. Til þess að ljúka fyrsta gagnlega byggingaráfanga er þó samkomulag um að skipta greiðslu milli Íslendinga og Bandaríkjanna, allt að 20 millj. kr., til helminga. Á fjárlögum fyrir árið 1983 var aflað heimildar til að taka lán að fjárhæð allt að 10 millj. kr. vegna flugstöðvarinnar. Hefur þegar verið tekið bráðabirgðalán af þeirri fjárhæð til greiðslu framlags Íslendinga vegna þessa áfanga, en samkomulag var um að framlag til byrjunarframkvæmda yrði fyrir hendi fyrir 1. okt. 1983. Jafnframt byggingu flugstöðvarinnar var samið um að Bandaríkin greiddu að öllu leyti þann kostnað sem leiðir af framkvæmdum við gerð flughlaða, ásamt lögnum, aðkeyrslubrauta og vega.
Samvinna um byggingu flugstöðvarinnar, sem verður íslensk eign, er að öðru leyti á því byggð að flugstöðin verði fyrst og fremst notuð til almenns flugrekstrar, en Bandaríkin hafi heimild til þess að nota hana á hættu- og ófriðartímum í samræmi við varnarsamninginn. Þegar hafin er almenn starfsemi í flugstöðinni er gert ráð fyrir að varnarliðið taki aftur við núverandi flugstöðvarbyggingu til afnota í sambandi við almenna starfsemi varnarliðsins.
Flugstöðvarbyggingin, þ.e. farþega-, þjónustu- og skrifstofurými, verður samtals 12 284 m2. Til samanburðar má geta þess að núv. flugstöðvarbygging er um 7 þús. m2. Um gerð flugstöðvarinnar hefur þegar verið fjallað á Alþingi bæði í ræðu og riti og skal hér látið nægja að vísa til skýrslu sem var lögð fyrir Alþingi á árinu 1981.“
Svo mörg voru þau orð í athugasemdum með lagafrv.
Allt hefur þetta farið úr böndunum, því miður. Og fyrrv. utanrrh., Matthías Á. Mathiesen, lýsti þeirri skoðun sinni hér áðan að breytingar þær sem gerðar voru í tíð hans og forvera hans hafi verið eðlilegar og réttmætar. (Samgrh.: ... ekki breytingar í minni tíð ...) Jæja, í tíð forverans og hafi breytingarnar verið réttmætar og það má vera. En þær voru ekki gerðar samkvæmt ákvörðun Alþingis og þar af leiðir að ég tel að skorti á um réttar heimildir. Sé það rétt að breytingar hafi verið réttmætar hafa ótrúleg hönnunarmistök verið gerð og það er eðlilegt að menn spyrji um faglega ábyrgð. Hönnuðir taka laun sem fagmenn. Ég þekki ekki í smáatriðum þá taxta sem þeir vinna eftir en veit að þeir eru svimandi háir. Það er útskýrt með því að ábyrgð þeirra og áhætta sé svo mikil að þeir þurfi að fá háa þóknun. Það hlýtur þá að vera spurning um hver er ábyrgð hönnuða í þessu tilfelli og hvort heppilegt sé að þeir hanni fleiri stórbyggingar.
Þóknun byggingarnefndar frá september 1978 til september 1987 hefur samkvæmt skýrslu utanrrh. verið 3,2 millj. kr. Þeir hafa sjálfsagt ekki unnið á hönnuðataxta en líklega hefði þó verið réttara að borga þeim betur því þá hefðu þeir getað sýnt enn þá meiri stjórnvisku við framkvæmdina.
Fyrrv. utanrrh. og núv. hæstv. samgrh., Matthías Á. Mathiesen, varði af mikilli hreysti gerðir forvera síns og sínar reyndar líka. Skv. 2. gr. laga nr. 45/1984 skal utanrrh. fara með yfirstjórn byggingar flugstöðvarinnar og Alþingi valdi þessa menn til að veita framkvæmdinni forstöðu. Því miður fóru þeir ekki nógu vel með það umboð og flugstöðin fór nærri 900 millj. kr. fram úr því sem Alþingi ákvað. Auðvitað bera hæstv. fyrrv. utanrrh., Matthías Á. Mathiesen og Geir Hallgrímsson, ábyrgðina á því að flugstöðin fór fram úr áætlun, enda hafa þeir mér vitanlega ekkert skorast undan því. Þeirra pólitíska ábyrgð liggur alveg ljóst fyrir og þess vegna er allt tal hér um það að menn séu eitthvað í vafa um hver ábyrgðina beri í þessu efni óþarft. Það liggur alveg ljóst fyrir að ábyrgðin er þessara manna og þeir bera ekkert á móti því heldur.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir á bls. 7 og því kvaddi ég mér nú hljóðs að ég þurfti að gera athugasemd sérstaklega við það atriði:
„Upplýsingagjöf um gang og stöðu verkefnisins til ýmissa opinberra aðila var áfátt. Áfangaskýrslur voru ekki gefnar út eftir 17. febr. 1984. Í skýrslum utanrrh. til Alþingis um utanríkismál árin 1984–1987 er í kafla um byggingu flugstöðvar ekki gerð grein fyrir þeim breytingum sem orðið höfðu frá upphaflegri áætlun. En ætla má að alþm. hafi verið þetta ljóst með samþykki fjárlaga og lánsfjárlaga. Ekki er heldur í skýrslum til Alþingis gerð grein fyrir viðbótarsamningi við Bandaríkjamenn sem gerður var 24. apríl 1986.“
Ég vek athygli á þessum orðum: en ætla má að alþm. hafi verið þetta ljóst með samþykki fjárlaga og lánsfjárlaga.
Ég var formaður fjh.- og viðskn. Nd. síðasta kjörtímabil og við nefndarmenn fjölluðum um lánsfjáráætlun ár eftir ár. Sverrir Haukur Gunnlaugsson ambassador gerði okkur nefndarmönnum ekki grein fyrir því að allt væri komið úr böndunum. Hæstv. utanrrh., Matthías Á. Mathiesen eða Geir Hallgrímsson, gerðu okkur heldur ekki grein fyrir stöðu mála í utanríkismálaskýrslum sínum. Mig langar til að lesa með leyfi forseta örstuttan kafla úr þeirri skýrslu sem fyrrv. utanrrh., Matthías Á. Mathiesen, mælti fyrir hér á Alþingi hinn 11. mars sl. Þar segir hann um nýja flugstöð:
„Í samræmi við samning við Hagvirki hf., sem er aðalverktaki í nýrri flugstöðvarbyggingu, verða öll svæði í byggingunni sem snúa að afgreiðslu farþega tilbúin fyrir miðjan apríl 1987 og stefnt er að því að nýja flugstöðvarbyggingin verði opnuð 14. apríl. Unnið er að vegagerð til að tengja Reykjanesbraut við flugstöðina. Um það bil helmingur tengibrautarinnar er fullgerður nú. Þá eru flugvélastæði og akbrautir, sem tengja flugbrautir og flugvélastæði, að mestu fullgerð. Birgðastöð fyrir flugvélaeldsneyti er í byggingu og Flugleiðir eru að reisa stórhýsi um 4200 fermetra að flatarmáli í nágrenni flugstöðvarbyggingarinnar. Byggingin var fokheld um miðjan janúar 1986. Í byggingunni verður fullkomið flugeldhús, tollvörugeymsla, vöruafgreiðsla og fleira. Stefnt er að því að taka bæði þessi mannvirki í notkun um leið og flugstöðvarbygginguna sjálfa.
Þegar ákveðið var að byggja nýju flugstöðina var sú stefna mörkuð að skilja að starfsemi farþegaflugs og herflugs á Keflavíkurflugvelli, að svo miklu leyti sem það væri framkvæmanlegt. Slíkur aðskilnaður hefur ekki í för með sér að flugstöðin verði utan varnarsvæðisins, enda er flugstöðin og önnur tengd mannvirki í beinum tengslum við flughlað og akstursbrautir flugvallarins og til notkunar fyrir varnarliðið ef til hættuástands kæmi. Með nýju flugstöðinni og breytingu á öryggis- og tollgirðingu skapast annars vegar sú aðstaða fyrir farþega að aka beint að flugstöðinni og hins vegar sá möguleiki að láta af hendi frekari svæði til nágrannasveitarfélaga í samræmi við aðalskipulag fyrir Keflavík, Njarðvík og Keflavíkurflugvöll sem staðfest var haustið 1983. Huga þarf jafnframt að samkomulagi við önnur sveitarfélög vegna skipulagsmála flugvallarins og varnarsvæðanna.“
Þetta var það, herra forseti, sem utanrrh. hafði að segja um nýja flugstöð í skýrslu sinni til Alþingis hinn 11. mars sl.
Það er hvergi á það minnst að næstum 900 millj. væru farnar fram úr áætlun. Ég er ekki að ásaka eða láta mér detta það í hug að það hafi verið ætlun hæstv. fyrrv. utanrrh. að blekkja Alþingi eða fara á bak við okkur alþm., ég treysti því að hann hafi ekki vitað betur á þeim tíma og að starfsmenn hans og byggingarnefndarmenn, þar á meðal framkvæmdastjóri Sjálfstfl., hafi þarna farið á bak við hann og ekki látið hann hafa þær upplýsingar sem honum hefði komið vel að hafa.
Ég átti þess kost sem varamaður í utanrmn. að skoða byggingu flugstöðvarinnar nokkrum vikum fyrir vígslu. Okkur utanríkismálanefndarmönnum var ekki greint frá því í þessari vettvangskönnun að kostnaður væri kominn langt fram úr áætlun. Ég var formaður þingflokks Framsfl. allan byggingartíma flugstöðvarinnar og þingflokknum barst ekki nein greinargerð um fjárhagsstöðu hennar, sem þó hefði verið eðlilegt þar sem við áttum stjórnarsamstarf við Sjálfstfl. á þessu tímabili.
Hér er pottur brotinn og ég verð að leyfa mér að rifja upp 41. gr. stjórnarskrárinnar sem hljóðar svo: „Ekkert gjald má greiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum.“
Svo mörg voru þau orð. Og á grundvelli þessa ákvæðis eða með hliðsjón af þessu ákvæði var nú Sturla rekinn sem frægt er orðið og hér hefur verið talað um í dag.
Ég trúi mætavel orðum hæstv. samgrh., fyrrv. utanrrh., að vígsludagurinn hafi alls ekki verið valinn með neinu tilliti til komandi kosninga. Auðvitað var þetta bara tilviljun með vígsludaginn. Líklega hefur hæstv. þáv. utanrrh., Matthías Á. Mathiesen, samt verið búinn að frétta af kosningunum, að þær yrðu 23. apríl, þarna á vígsludeginum 14. apríl. Það er sennilega líka bara tilviljun að mynd af flugstöðinni prýddi umslag sem þáv. utanrrh. sendi ungum kjósendum í kjördæmi sínu nokkrum dögum fyrir kjördag. Matthías Á. Mathiesen, hæstv. ráðherra, er mjög reyndur og hygginn stjórnmálamaður og varfærinn, en í samræmi við varfærni ráðherrans hefði verið eðlilegt að draga vígsluna fram yfir kosningarnar. Hann hefði vel getað dagsett hátíðina t.d. helgina eftir kosningarnar. Og það er líka spurning hvort hátíðin var ekki óþarflega íburðarmikil og óþarflega dýr með tilliti til þess að flugstöðin var komin nokkuð fram úr áætlun.
Það er mikilvægt að læra af mistökunum og reyna að láta þetta ekki koma fyrir aftur, reyna að standa svo að verki að hönnun sé fullnægjandi og gæta hófs um íburð og framkvæmdahraða og síðast en ekki síst að ráðherrar fylgist betur með framkvæmdum sem þeir eiga að hafa yfirstjórn yfir og bera ábyrgð á og geri Alþingi grein fyrir stöðu mála samviskusamlega. Það er reyndar ein huggun harmi gegn að flugstöðin er komin þarna. Þetta er að ýmsu leyti fallegt og gott mannvirki og vonandi endist hún okkur um ókomin ár þó að hún hafi orðið dýrari en nokkurn okkar óraði fyrir.